Menntamál - 01.12.1946, Qupperneq 32
166
MENNTAMÁL
Nýir skólasöngvar
Skólasöngva í tveim heftum hefur Ríkisútgáfa náms-
bóka nýlega gefið út fyrir barnaskólana, en skortur hef-
ur lengi verið á slíkri námsbók. í heftunum eru 190 ljóð,
er þeir hafa safnað, söngkennararnir Friðrik Bjarnason
í Hafnarfirði og Páll Halldórsson í Reykjavík. Þeir hafa
einnig útbúið nótnahefti, er á við ljóðin, og er þess að
vænta, að prentun þess þurfi ekki að dragast lengi, því
að söngkennurum er nauðsyn að geta gengið að öllum
lögunum á einum og sama stað. Ekki vill ritstjóri Mennta-
mála neitt um val laganna segja, því að hann ber þar
ekki skyn á, en það sér hann þó, að í heftunum er mesti
fjöldi af vinsælum barnasöngvum, enda hafa þeir Friðrik
og Páll mikla reynslu af því, hver lög eru við hæfi barna
á hverju aldursskeiði. Hitt þykist ritstjórinn geta full-
yrt, að ljóðin eru prýðilega valin sem Ijóð, þótt þau geti
að sjálfsögðu ekki að öllu leyti komið í staðinn fyrir skóla-
Ijóð, enda er bókinnj ætlað fyrst og fremst að vera söng-
bók. En mætavel hefur safnendunum tekizt að sameina
skemmtileg og falleg lög og ágæt ljóð, sem bókmennta-
legur ávinningur er, að börnin kynnist og læri. Þau börn,
sem lært hafa flest eða öll ljóðin í þessu söngvasafni, hafa
fengið góða kynningu af mörgum ágætum kvæðum margra
beztu Ijóðskálda okkar og jafnframt af nokkrum völdum
sálmum. Það er því full ástæða til að ætla, að Skóla-
söngvar þeirra Friðriks og Páls verði til þess að auka
drjúgum kvæðanám barna og glæða áhuga þeirra fyrir
ljóðum, og er hvort tveggja mikils virði. Það er gott,
þegar námsbækur eru gerðar af slíkri smekkvísi og skiln-
ingi á viðfangsefnunum sem þessi kver bæði.
0. Þ. K,