Menntamál - 01.12.1946, Síða 45

Menntamál - 01.12.1946, Síða 45
MENNTAMÁL 179 Second Jungle liook eftir hið heimskunna skáld Breta, Kipling. — Nokkrar þessara sagna liafa áður birzt á íslenzku, sumar oftar en einu sinni, og má af þvi marka, hverjum augum menn ltafa á þær litið, og er það að maklegleikum, því að sögurnar allar eru hið prýði- legasta lesefni fyrir unglinga, og reyndar fyrir liveni sem er. Og um þýðingu Gísla á þessum sögum má segja liið sarna og um þýðingu hans á Dýrheimum Kiplings, sem út komu í fyrra, að hún er svo vel af hendi ieyst, að af ber. Eru þessar bækur báðar að efni, máli og frágangi með allra beztu unglingabókum, sem hér er völ á. Súl og regti, sögur frá Kenýu, eftir Baden-Powell skátahöfðingja. Jón Helgason blaðamaður íslenzkaði. Snælandsútgáfan, Reykjavík. 1946. 153 bls. Verð: 30 kr. í bandi. — Allir kannast við Baden- Powell, stofnanda skátafélaganna, en liitt vita kannske færri, að hann var óvenjulega skemmtilegur rithöfundur, því að hann átti til kímni- gáfu í ríkum mæli, og kemur það glögglega fram í frásögnunum í þessari bók, og Jró ekki síður í teikningunum í henni, en þær eru allar eftir Baden-Powell sjálfan. Sögurnar gerast allar eða flestar í guðs grænni náttúrunni í Austur-Afríku og eru að mestu leyti um dýr og aðra skógarbúa, lifandi og iðandi af fjöri, góðar og skemmti- legar fyrir unglinga, einkum stráka. Þýðing' Jóns Helgasonar er lipur og mál hans og stíll eðlilegt. Hins vegar eru prentvillur nokkuð margar. Pedagogisk Ársbok 1945. Forum för samverkan ntellan Nordens lárare. Skolförlaget, Gávle. au bls. Verð: 4 kr. sænskar. í rit Jjetta skrifa ntargir þekktir skólamenn á Norðurlöndum og aðrir áhuga- menn um uppeldismál. Flestir þeirra eru sænskir, en þó eru þarna greinar eftir nienn í Danmörku, Noregi og Finnlandi. Efnið er mjög fjölbreytt. Fyrirsagnir nokkurra greina skulu teknar hér upp, valdar af handahófi: Samstarf rnilli skóla og heimila, Fjallræðan og tíu boð- orð guðs, Bókmenntanám í 7. bekk, Liíandi sögukennsla, Matreiðslu- kennsla fyrir drengi, Hjálparskólar og hjálparkennsla, Norræn sam- vinna og landafræðikennsla. Um þessar greinar og aðrar í ritinu er það skemmst að segja, að þa:r eru hver annarri betri og vel til þess fallnar að vekja menn til umhugsunar um rnörg aðkallandi atriði í skólamálum, sjálfsagt ekki alltaf á þann hátt, að lesandinn sé höf- undinum sammála um öll atriði, enda skiptir það ekki mestu rnáli, heldur liitt, að bókin auki skilning manna á viðfangseínunum, fái þá til að athuga þau frá fleiri hliðum en áður, ýti við áhuga þcirra og rifji ýmislegt upp, sem þeir hafa kannske ekki leitt hug sinn að um lengri eða skemmri tirna. Ekki sízt er þetta mikils vert, Jtegar um

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.