Menntamál - 01.12.1946, Blaðsíða 46

Menntamál - 01.12.1946, Blaðsíða 46
180 MENNTAMÁL er að ræða svo þýðingarmikil mál fyrir framtíðina sem uppeldismálin. eru. — Framar í þessu liefti Menntamála er birt i þýðingu ein af rit- gerðunum í þessari bók, Baráttan um börnin í Noregi. Fréttir Þórarinn Eldjárn ■Kristjánsson, kennari að Tjörn í Svarfaðardal, varð sextugur á síðastliðnu sumri (f. 26. maí 1886). Hann lauk námi við gagnfræðaskólann á Akureyri 1905 og stundaði síðan nám við lýðliáskólann á Vossi í Noregi 1907 —1908. Kennaranámskeið sótti liann í Reykjavik 1909. Að |>ví loknu gerðist hann kennari í Svarfaðardal og hefur verið það alla stund síðan. Jafnframt hefur liann búið búi sínu á Tjörn og gegnt mörgum trúnaðarstörfum í sveit sinni, meðal annars lengi verið lireppstjóri. Jónas Jósteinsson, yfirkennari við Auslurbæjarbarnaskólann í Reykjavík, varð fimmt- ugur s.l. haust (f. 7. sept. 1896). Hann lauk kennaraprófi 1920, var skólastjóri á Stokkseyri 1920—1931, en frá 1931 kennari í Reykjavík. Jónas hefur lengi staðið framarlega í flokki í stéttarsamtökum barna- kennara. Kr. Júlíus Kristjánsson, kcnnari í Rauðasandslireppi, varð fimmtugur s.l. sumar (f. 12. júlí 1896). Hann lauk námi í Hvítárbakkaskólanum 1917, gerðist kennari í Rauðasandshreppi 1918 og hefur gegnt því starfi síðan. Klemens Þorleifsson, kennari við Laugarnesskólann í Reykjavík, varð fimmtugur s.l. sumar (f. 5. júlí i8g6). Ilann lauk kennaraprófi 1922, var kennari í Torfalækjarhrepp 1923—25, í Bólstaðarhlíðarhrepp 1925—28, í Norð- urárdalshrepp 1929—30, í Skeiðahrepp 1930—43 og við Laugarnes- skólann síðan 1943.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.