Menntamál - 01.12.1946, Page 50

Menntamál - 01.12.1946, Page 50
184 MENNTAMÁL ríkissjóði til skólabygginga (i/g til lieimangönguskóla og i/2 til heima- vistarskóla) og heimild veitt til þess að færa skólaskyldu í einstökum skólahverfum tir 10 ára aldri allt niður i 7 ár. Síðan var engin veru- leg breyting gerð á fræðslulögunum fyrr en 1936. 10 dr voru liðin á þessu ári síðan alþingi samþykkti fræðslulög, er lækk- uðu skólaskyldualdur barna úr 10 árum i 7 ár, lengdu árlegan starfs- tíma fastra barnaskóla og gerðu mögulegt að hafa fasta námsstjóra. A sama ári (1936) voru samþykkt lög um ríkisútgáfu námsbóka til þess að tryggja, að hvert skólaskylt barn fengi nauðsynlegar náms- bækur. Ritstjórinn kveður. Þetta hefti Menntamála, hið síðasta í XIX. árgangi, kentur síðar út en skyldi, því að prentun þess verður sýnilega ekki lokið fyrr en seint í febrúar. Sumpart veldur dugleysi ritstjórans, sumpart annir í prentsmiðjunni, sumpart aðrar ástæður. Árgangurinn er og nokkru minni að efnismagni en næstu tveir árgangar á undan, en Jxi fyllilega svo stór sem heitið var, Jregar óg tók við ritstjórn Menntamála fyrir Jtrem árum. Með jtessu liefti læt ég af ritstjórn Menntamála. Ritið hefur að ýmsu verið Iakara en skyldi, enda er ekki erfiðislaust að gera það vel úr garði til lengdar í hjáverkum frá iiðrurri störfum. Orsök Jtess, að Jrað hefur ekki betra verið, er ekki sú, að mér hafi eigi verið ljósir ýmsir gallar á Jrví. En lesendur Jtess hafa lítt látið mig vita um álit sitt á efni þess. Fyrir skömmu barst mér þó ýtarlegt bréf um það frá gömlum vini mínum. Hefði ég viljað birta úr því lengri eða skemmri kafla, en Jtað kont of seint til Jtess. Annars verða handrit, sem lijá mér eru og ætluð til birtingar í Menntamálum, fengin hinum nýja ritstjóra í hendur. Eg vil nota tækifærið til þess að Jtakka þeim, sem styrkt hafa Mennlamál með greinum eða á annan hátt í ritstjórnartíð minni. Jafnframt vil ég Jrakka samstarfsmönnum mínum í útgáfustjórn fyrir misfellulaust samstarf. Og að lokum vil ég óska Menntamálum allra heilla í framtíðinni. — Ólafur Þ. Kristjánsson. ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA. Útgáfustjórn: Ólafur Þ. Kristjánsson, ritstjóri, Ingimar Jóhannesson, Arngrímur Kristjánsson. prentsmiðjan ODDI H.F.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.