Menntamál - 01.04.1958, Síða 10

Menntamál - 01.04.1958, Síða 10
4 MENNTAMÁL a6 menn og sýslan þeirra væri misjöfn. Hér skal eigi farið nánar út í tillögur Jóns Sigurðssonar um skipan skólamála hér á landi, en þess skal getið, að þangað má rekja margt af því, sem síðar hefur verið framkvæmt. IV. Alþingi virðist ekki hafa látið barnafræðsluna til sín taka fyrr en 1879, ef frá eru taldar umræður nokkrar um barnaskóla í Reykjavík á þingunum 1847, 1853 og 1859. Eina fyrirskipaða barnafræðslan til þess tíma var kennsla í kristindómi og bóklestri. í konungsbréfi 2. júlí 1790 var prestum, að viðlögðum sektum, bannað að ferma nokkurt barn, án leyfis biskups, nema það væri nægilega læst á bók. I konungsbréfinu segir: „Þá álízt barn fulllæst, er það getur skýrt og viðstöðulítið lesið hverja prentaða bók á máli landsins, t. d. sálma- og guðspjallabók o. s. frv., en eigi má þá leita uppi handa barninu þá vandastaði, er jafnvel eldri almúgamönnum myndu þykja erfiðir." Á þinginu 1879 komu samtímis fram tvö frumvörp um barnafræðslu, þ. e. frv. „um skyldur presta og safnaða til að kenna börnum að skrifa og reikna" og frv. til laga „um uppfræðing barna“. Síðarnefnda frumvarpið gekk mun lengra í námskröfum en hið fyrrnefnda. Umræður og nefndarálit sýna, að þingmönnum var ljós nauðsyn lög- gjafar um barnafræðslu. Árangurinn af þessu varð sá, að samræmd voru að nokkru sjónarmið beggja frumvarp- anna og samþykkt voru lög um uppfræðing barna í skrift og reikningi, og voru þau staðfest hinn 9. janúar 1880. Eftir þetta kemst allmikill skriður á skólamálin á Al- þingi. Á flestum þingum frá 1881 til 1901 er ýmist komið með tillögur um skipun nefndar til þess að undirbúa frum- varp um fræðslu barna eða skólamál almennt eða lögð fram frumvörp um þau efni. Umræður urðu alllangar um þessi mál, er sýndu, að þingmönnum var ljós nauðsyn úr- lausnar og endurbóta á þessu sviði, en greindi á um leið-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.