Menntamál - 01.04.1958, Page 26

Menntamál - 01.04.1958, Page 26
20 MENNTAMÁL Um 3500 ár eru talin, síðan vísir að hljóðtáknum varð til, að vísu fyrst aðeins fyrir samhljóða. En þessi 35 alda gamla tilraun er sá mjói vísir, er það letur er byggt á, sem flestar menningarþjóðir nota nú, nema t. d. Kín- verjar, sem enn nota myndletur. Og er það haft fyrir satt, að leturmyndir kínverska letursins séu orðnar um eða yfir 40 þúsund og fari fjölgandi. Það er líka í frásögur fært, að hinir lærðustu menn í Kínaveldi komist varla yfir að læra meira en svo sem fjórða partinn af þessum leturmyndum, en allur almenningur, þeir, sem lesa kunna, varla meira en tæplega tuttugasta part leturmyndanna. Talar þessi saga sínu máli um leturgerð þessa, enda eru Kínverjar nú að breyta um letur. Augljóst er, að það var stórmerkur áfangi í þróunar- sögu leturgerðarinnar, er menn uppgötvuðu, að hægt var að gera tákn fyrir hvert hljóð málsins. Um þetta atriði eru til merk ummæli séra Gunnars Pálssonar, prófasts að Hjarðarholti í Breiðafjarðardöl- um. Hann samdi stafrófskver, er hét „Lítið, ungt stöf- unarbarn“ og út kom í Hrappsey árið 1782. Séra Gunnar Pálsson segir í formála fyrir þessu stöf- unarbarni sínu: „Bókstafirner eru ekke rett marger .... atkvæðen eru miklu fleire og margvíslegre, enn þó fá að reikna hjá tungunnar Orðum, og ganga þesser tvenner Höfuð-lyklar ad þeim öllum.“ Þetta segir þessi merki kennimaður fyrir 175 árum, og virðist skilningur hans á þessu máli sýna, að hann hafi verið langt á undan sínum tíma. Letrið var stórkostlega áhrifarík uppgötvun. En sá böggull fylgdi því skammrifi, að menn urðu að geta ráðið það. „Skal at maður rúnar rísta, nema ráða vel kunni,“ sagði Egill Skallagrímsson forðum.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.