Menntamál - 01.04.1958, Page 40

Menntamál - 01.04.1958, Page 40
34 MENNTAMÁL lesa sem fyrst heil or8, og þó þannig, að þau þurfi þar ekki að treysta eingöngu á minnið. Er börnunum nú kennt að nota þann lykil, sem þau æfðu og áunnu sér á stafhljóðastiginu. Þekki barnið ekki orðið, á það að grípa strax til tengingar eftir hljóðan stafanna og röð — frá vinstri til hægri —. Köllum við samkennararnir þetta orð- kynningu. Þess er gætt, að lestexti dagsins hafi ekki of mörg kynniorð. Og þau verða í fyrstu að vera létt, eins og tveggja atkvæða orð. Fjögur til sex kynniorð í æfinga- texta dagsins mun vera hæfilegt, sé kennarinn orðinn leikinn í listinni og börnin móttækileg fyrir kennsluna. Orðkynningin verður að vera lipur og nákvæm og standa stutt yfir. Fyrst er lögð áherzla á að kenna sjálfsbjargar- aðferð til að lesa orðin. Lítill drengur kallaði þetta: „Að herma eftir stöfunum." Svo er æfing í að þekkja orð, þ. e. að þekkja „andlit“ orðs af útlitinu, en þó með lykil- inn í vasanum. Við þær æfingar er brugðið upp orðspjöld- um, bent hratt á orð á töflunni, orðin sýnd í hraðsjá o. s. frv. Og eins og börnin fengu á stafhljóðastiginu tækifæri til að vinna með stafinn, þannig er börnunum nú gefið tækifæri til að vinna með orðin, einkum með prentæfing- um. Því skal skotið hér inn í, að hjá okkur er börnunum kennt prent af mjög einfaldri gerð. Og eru framkvæmd- ár sérstakar stuttar og tíðar æfingar í stafaprenti. Börn- in þurfa að hafa náð nokkurri leikni í að prenta, eigi að vera hægt að beita orðprents-aðferð við letsrarnámið. En sé þetta fyrir hendi, styður orðprentið mjög að per- sónulegu öryggi við lesturinn. Við orðprentið kynnast börnin af eigin raun og við hraða, sem hverju barni hent- ar, byggingu orðsins, auk þess sem þau æfa persónulega aðferð við að lesa orðið og festa það í minni. Því að markmiðið er að prenta og lesa í huganum, heyra hugar- eyrum, læra orðin svo, að þau verði sögð hindrunaraust um leið og komið er auga á þau í lesmáli. Þess skal getið,

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.