Menntamál - 01.04.1958, Síða 34

Menntamál - 01.04.1958, Síða 34
28 MENNTAMÁL Margt fleira er æft og iðkað frjálsu vikurnar til undir- búnings lestrarnámi. Reynt er að samstilla hópinn, því hvað má höndin ein og ein. Lítið samfélag er í sköpun. Börnin læra að semja sig að hópnum, taka upp venjur, sem lærast þurfa, þegar persónulegt einræði dugir ekki lengur, og kröfur náungans byrja. Reynsla er fengin fyrir því, að frjálsu vikurnar þrjár eru hinn bezti undirbúningur undir skólastarfið næstu mánuðina. Þar er ekki unnið fyrir gýg. Framangreint skólastarf mætti kalla undirbúningsstig námsins. Það er eins konar millistig leikskóla og lestrarskóla. Á síðari hluta þessa stigs fara börnin að spyrja að því, hvort þau eigi nú ekki að fara að lesa. Útréttri hönd er fagnað af kennaranum. Og nú hefjast lestrarnámsins léttu spor, ef það er talið tímabært. En áður en farið er að lýsa degi og vegi lestrarkennsl- unnar, langar mig til að bregða mér um 700 ár aftur í tímann, um það bil í lok þjóðveldisins. Þá komu út tvær stórmerkar ritgerðir, Staffræði, eftir óþekktan höfund, og Málskrúðsfræði, eftir Ólaf lögmann Þórðarson, hvíta- skáld. f Staffræðinni stendur á einum stað: „Að raddstöfunum (þ. e. sérhljóðunum), einum og sér- hverjum, má kveða sem hann heitir. . . .“ Og einnig má lesa þar: „í nafni samhljóða, hvers sem eins, er nokkur radd- stafur. . . Skal þat atkvæði (þ. e. hljóðgildi) hvers þeirra í hverju máli, sem þá lifir nafnsins eftir, er ór er tekinn raddstafurinn ór nafninu... Þann staf, er flestir kalla þorn, þann kalla ég heldur þe, at þá er þat atkvæði hans (þ. e. hljóð), í hverju máli, sem eftir lifir nafnsins, er ór er tekinn raddstafurinn ór nafni hans.“ Þarna segir hinn óþekkti snillingur fyrir 700 árum það, sem við nú vitum, að nafn og hljóð sérhljóðanna fara saman, en þannig er það ekki hjá samhljóðunum. Hljóð þeirra kemur fram, „ef ór er tekinn raddstafur-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.