Menntamál - 01.04.1958, Blaðsíða 54
48
MENNTAMÁL
BRYNDÍS VÍGLUNDSDÓTTIR:
Úr skýrslu
Efnahagssamvinnustofnunar Evrópu
um þörf á tæknimenntuðum mönnum.
Hvert sem litið er, blasa við áþekk vandamál í fylgd með sívax-
andi tækni um víða veröld. Eitt þeirra er skortur sérmenntaðra
manna. Efnahagssamvinnustofnun Evrópu hefur rannsakað nokkurt
svið þessa vandamáls og birt um það rækilega skýrslu, The problem
of scientific and technical Manpower in western Europe, Canada and
the United States. Jafnframt er þó kennaraþörfin athuguð lítillega.
Þegar fræðslulöggjöfin frá 1946 var undirbúin, vann milliþinga-
nefndin að athugun og áætlun á þörf sérmenntaðra manna í ýmsum
greinum hér á landi. Ekki er mér kunnugt um, að nein þess háttar
athugun hafi verið gerð síðar. Þar eð fyrr nefnd skýrsla OEEC greinir
ljóslega frá því, hversu glöggar gætur þarf að hafa á nýtingu mann-
aflans og menntunarinnar, þótti mér hæfa að minna á þessi efni með
því að birta kafla úr henni. Ritstj.
í ýmsum löndum hafa hugsandi menn velt fyrir sér
spurningum sem þessum: Hvernig notum við starfskrafta
ungra og efnilegra námsmanna, sem varið hafa mörgum
árum til að menntast á ákveðnu sviði ? Hvernig er aðstaða
unga fólksins til að menntast? Er þörf fleiri sérmennt-
aðra manna? Hvernig má tryggja, að þeir, sem hafa sér-
menntun, fái unnið einmitt þar, sem sérhæfing þeirra
kemur að notum?
Atvinnumálanefnd efnahagssamvinnustofnunar Evrópu
skipaði nefnd sérfræðinga, sem átti að rannsaka, hversu
mikið væri af sérmenntuðum mönnum og hve margra væri
þörf.
Nefnd þessi tók til starfa árið 1954, og hefur hún birt
skýrslu um niðurstöður sínar. 1 flestum löndum Vestur-
Evrópu, Samveldislöndunum, Kanada og Bandaríkjunum
fór fram víðtæk rannsókn á málum þessum, og er síðasta
skýrsla nefndarinnar byggð á staðreyndum, sem þá komu