Menntamál - 01.04.1958, Page 53
menntamál
47
enda er mér kunnugt um, að háttv. menntamálaráðherra
hefur fullan hug á því að ráða hér á nokkra bót.
Ég vil svo að lokum flytja þakkir þeim mönnum, sem
brautryðjendur voru hér í barnaverndarmálum og áttu
^nestan þátt í því, að löggjöf um barnavernd komst á hér
a landi. Ég þakka öllum þeim barnaverndarráðsmönnum,
sem ég hef starfað með, langan eða skamman tíma, þau
20 ár, sem ég hef verið ráðunautur ráðsins. Á það sam-
starf hefur aldrei neinn skugga borið. Og ég óska þess,
að barnaverndarráðið megi ávallt njóta starfskrafta
haefra og góðra manna og að það fái í framtíðinn æ
hetur gegnt hlutverki sínu.
Orðsending frá ritstjóranum.
Vera má, að næsta liefti Menntamála komi út í síðara lagi sakir
^jarvistar ritstjórans.
Fulltrúaþing
Sambands íslenzkra barnakennara
verður háð í Reykjavík
dagana 6. til 8. júní.
Þingið verður sett föstudaginn 6. júni
kl. 10 árd. i Melaskólanum i Reykjavik.
Dagskrá auglýst síðar.
Stjórn S. í. B.