Menntamál - 01.04.1958, Síða 12

Menntamál - 01.04.1958, Síða 12
6 MENNTAMÁL landsins 1903—04, hlustaði á kennslu, athugaði skólahús — þar sem þau voru —, stundatöflur, bókakost, menntun og launakjör kennara, ræddi við kennara, presta og aðra, er afskipti höfðu af barnafræðslunni. Hann gerði síðan skýrslu um fræðslu barna og unglinga veturinn 1903—04 og greindi þar frá rannsóknum sínum. Var skýrslan birt árið 1905. Þar er margs konar fróðleik að finna. Hiklaust má telja, að mjög viturlega hafi það verið ráðið á Alþingi að hafa þann hátt á undirbúningi frum- varps til laga um almenna barnafræðslu, sem að framan getur. Guðmundur Finnbogason sýndi það með störfum sínum og ritum þeim, er hér hefur verið getið, að hann hefur verið mikilvirkur, glöggur og hagsýnn skólamaður. Enginn hafði ferðazt um allt landið til þess að kynnast menntunarástandi þjóðarinnar, síðan þeir Harboe og Jón Þorkelsson Skálholtsrektor ferðuðust hér um það bil 60 ár- um áður en Guðmundur Finnbogason fór sína kynnisferð. Áður voru það kóngurinn og kirkjan, sem ákváðu, hvað gert skyldi í fræðslumálunum, nú var það Alþingi, Hið íslenzka kennarafélag og fólkið sjálft, sem frumkvæði hafði um þessi mál. Á grundvelli athugana og þeirrar þekkingar, er Guð- mundur Finnbogason hafði aflað sér á sviði skóla- og menningarmála erlendis og hérlendis í nærfellt 4 ár, samdi hann árið 1905 fyrir stjórnina „frumvarp til laga um fræðslu barna og unglinga, með aðstæðum og athugasemd- um“. Frumvarp þetta — ef að lögum yrði — átti að tryggja öllum námshæfum 10—14 ára börnum fræðslu í þeim greinum, sem þá þótti þörf á, að þau kynnu nokkur skil á. Auk þeirra námsgreina, sem tilgreindar voru í áður- greindu konungsbréfi frá 1790 og lögum frá 1880 — þ. e. lestri, kristnum fræðum, skrift og reikningi — áttu börnin að fá tilsögn í landafræði, sögu, náttúrufræði, söng og fleiri greinum, ef ástæður leyfðu. Prófa skyldi árlega öll 10—14 ára börn, skilyrði sett fyrir styrkveitingum úr landssjóði til skólahalds, ákvæði sett um, að Stjórnarráðið

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.