Menntamál - 01.04.1958, Side 19

Menntamál - 01.04.1958, Side 19
MENNTAMÁL 13 HÁKON BJARNASON: UngviSi, kennarar, skógrækt Ritstjóri Menntamála hefur beðið mig um stutta grein í tímarit sitt. Mér finnst þá liggja næst að ræða þann þátt skógræktarmálanna, sem kennarar geta styrkt með starfi sínu. Á undanförnum árum hefur oft verið ritað og rætt um að nota skólabörn til þess að gróðursetja tré, og einstöku menn hafa verið með mikla loftkastala og skýjaborgir í þessu sambandi. Þá hafa og börn úr efstu bekkjum barna- skólanna og unglingaskólum verðið látin gróðursetja tré á ýmsum stöðum, og þótt árangurinn hafi verið misjafn, má margt af því læra. Þessi hugmynd, að nota börn til skógplöntunar, hefur borizt hingað frá Noregi, þar sem börn hafa víða verið látin taka þátt í skóggræðslunni. Norðmenn hafa því mikla reynslu í þessu, og er skemmst frá því að segja, að nú dettur engum manni í hug að nota vinnuafl barnanna sem ódýran vinnukraft. Þar sem slík skógplöntun er enn stund- uð, og er það víða, er það einungis gert til þess að kenna börnum og unglingum handtökin við gróðursetningu sam- tímis því, sem hollt er talið, að þau kynnist hinni lifandi náttúru. Á árunum 1937 'til 1939 var nokkuð gert að því í Reykjavík og Hafnarfirði, og jafnvel víðar, að láta börn annast gróðursetningu trjáplantna. í Reykjavík hafði Skógræktarfélag íslands forgöngu um þetta í nágrenni bæjarins og á Þingvelli. í Hafnarfirði hafði Ingvar Gunn- arsson kennari tekið þetta upp nokkru áður, og naut hann til þessa nokkurs stuðnings samkennara sinna. Hafnfirzku

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.