Menntamál - 01.04.1958, Page 52

Menntamál - 01.04.1958, Page 52
46 MENNTAMÁL áhrif á þróun barnaverndarinnar í landinu, og það er að verulegu leyti undir því komið, hvernig tekst til um framkvæmd barnaverndarlaganna. I fjölmörgum tilvikum veltur heill og framtíð barna á ákvörðunum þess. En hér er oft mikill vandi að sjá, hvað réttast er og bezt, þegar meta skal allar aðstæður með framtíðarheill barnsins fyrir augum. Hvor lausnin er betri eða verri? Hve mikla áhættu er réttmætt að taka og stofna barninu í? Á því getur stundum leikið mikill vafi, og auk þess geta atburðir ráðizt á annan veg en sennilegt þykir. Sjálfsagt hefur barnaverndarráðinu stundum skjátlazt í ákvörðunum sín- um. En ég fullyrði, að við í barnaverndarráði höfum rækt starf okkar eftir beztu getu og leitazt við að láta ekki nein annarleg sjónarmið glepja okkur. Okkur hefur ávallt verið efst í huga, að þroski og lífshamingja barna geta oltið á því, hvaða ákvarðanir við tökum um framtíð þeirra. Við höfum verið þess minnugir, að sum börn eiga allt undir trúmennsku og forsjá barnaverndarmanna og þeim ráðum, sem þeim eru tiltæk til þess að koma þeim til þroska. Á Norðurlöndum, t. d. í Danmörku, eru barnaverndar- ráðin virðulegar stofnanir og vel er að þeim búið, enda þarf svo að vera, þegar mikilvægar menningarstofnanir eiga í hlut. En þrátt fyrir 25 ára aldur er íslenzka barnaverndarráðið enn næsta umkomulítið að ytra bún- aði og sniði. Þótt verkefni þess hafi vaxið, er aðbúnaður og starfskjör þess mjög hin sömu og þau voru fyrir 20 —25 árum, og fjárveiting til þess, einkum í seinni tíð, er of naum. Barnaverndarráðið er ein þeirra örfáu stofn- ana, sem ekki hefur belgzt út. Það er gott að vera spar- samur og kröfuvægur, en þó aðeins að vissu marki, sem sé því, að starf og hlutverk stofnunarinnar bíði ekki tjón af. Þykir mér ekki hæfa að hafa hér fleiri orð um þetta,

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.