Vorið - 01.09.1945, Blaðsíða 3
VORIÐ
HANNES J. MAGNÚSSON:
Litlir
löggjafar
Smáleikur í einum þætti.
(Sænsk fyrirmynd).
Leikendur: Mamma, Knútur, Karl, María, Gunnar, Sveinn, Búi, Bolli.
KNÚTUR: Vitið þið, að pabbi er
orðinn alþingismaður?
SVEINN: Alþingismaður! Hvað er
það?
KNÚTUR: Veiztu það ekki, dreng-
ur? Hann fer til Reykjavíkur og
finnur alla ráðherrana og verður
kannske í veizlu hjá forsetanum.
BOLLI: Gerir hann ekkert annað?
K.NÚTUR: Jú, jú, hann hjálpar
víst til að stjóina landinu, og svo
búa þeir til alls konar lög.
KARL: Syngja þeir svo liigin á eft-
ir?
KNÚTUR: Nei, það held ég ekki,
það eru víst einlivern veginn
öðruvísi lög. En ég skal spyrja
mömmu um það. Mamma!
Mamma!
MAMMA (kemur inn): Já, já, hvað
viljið þið, börnin góð?
KNÚTUR: Hvað gerir pabbi á
Alþingi? Er hann ekki að béta til
einhverlög?