Vorið - 01.09.1945, Side 12

Vorið - 01.09.1945, Side 12
VORIÐ 74 sinna. Hann sneri sér að fyrirliðan- um og spurði: „Við verðum þó látnir lausir aft- ur?“ Fyrirliðinn yppti öxlum og svar- aði með daufu brosi: „Við getum nú talað um það seinna. En sem stendur óskunt við þess eins, að þið gefið okkur nokkr- ar upplýsingar, og þið verðið að minnsta kosti ekki látnir lausir fyrr en við verðum þess fullvissir, að þið séuð okkur ekkert hættuleg- ir.“ „Þið eruð ræningjar," mælti Ferdinant reiður. Fyrirliðinn kinkaði kolli. ,,Ég neita því ekki. Við höfum verið í leiðangri og lánið hefur verið með okkur. Við hefðum vel getað tekið skútuna, en látum það þó bíða fyrst um sinn. En foringja ykkar verðum við að ná á okkar vald, og þeim af mönnum hans, sem eftir eru.“ Ferdinant hristi höfuðið.-------- „Ég skil ekki eitt orð af þessu." „Það er heldur ekki nauðsynlegt,“ mælti foringinn. „Það er nóg, ef við skiljum, hvað um er að vera.“ Eftir hálfrar klukkustundar róð- ur komu þeir að seglskútu, sem lá í hvarfi við nes eitt. Ferdinant og Óli voru fluttir yfir í skútuna og þeir síðan leiddir niður í káetu. Þeir veittu enga mótspyrnu, það var tilgangslaust. Liðsmunurinn var svo greinilegur. Þegar komið var niður í hina þröngu og dimmu káetu, spurði fyrirliðinn þá, hve margir þeir hefðu verið, og þegar Ferdinant svaraði sem fyrr, að þeir væru að- eins þrír á skipinu, hélt hinn áfram. brosandi: „Þið skuluð nú ekki komast hjá því að segja allan sannleikann. Þið eruð fangar mínir, hér verðið þið lokaðir inni og þið þurfið ekki að hugsa ykkur að losna héðan. En ég get huggað ykkur með því, að þið skuluð fá nóg að borðar og það verður farið vel með ykkur.“ Að svo mæltu hvarf foringinn út úr káetunni og Ferdinant og Óli urðu einir eftir. „Ég skil ekki baun í þessu öllu saman,“ sagði Óli. „Ekki ég heldur,“ mælti Ferdi- nant „Heldurðu, að þeir taki okkur al' lífi?“ spurði Óli hikandi. „Það veit ég ekkert um,“ mælti Ferdinant. „Þetta eru vafalaust smyglarar, þótt ungir séu. Þeir eru flestir á aldur við okkur. Það er nokkuð snemmt fyrir pilta á því reki að byrja á slíkri atvinnu." Þegar dimmt var orðið um kvöld- ið, lagði Claudíus skipstjóri aftur af stað fram til skútu sinnar. Hann hafði lagt fyrr af stað en hann hafði ætlað í fyrstu. Þegar hann kom að hlið skútunnar, kallaði hann \ Ferdinant, en þegar enginn svar- aði, kallaði hann á Óla. En það fór á sömu leið. En þegar enginn svar- aði, tók hann til að blóta og skamm

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.