Heima er bezt - 01.03.1951, Síða 27

Heima er bezt - 01.03.1951, Síða 27
Nr. 1 Heima er bezt 23 SÖNGKEPPNIN Saga eftir Arthur Conan Doyle Á ÞVI herrans ári 66 sigldi Neró keisari til Grikklands. Hann var þá 29 ára gamall og hafði farið með völd í þrettán ár. Hann lagði af stað frá Puteoli og flutti með sér heilmikið af máluðum leiktjöldum og ann- an leiksviðsbúnað, en í förinni með hon- um var mikill fjöldi aðalsmanna og sena- tora, sem hann þorði ekki að skilja eftir í Róm og allir týndu lífinu með dularfull- um hætti í ferðinni. Nánar tilgreint voru í fylgdarliði keisar- ans Natus, söngkennari hans og Cluvius, maður nokkur, sem hrópaði upp öll tign- arheiti keisarans ógurlegri röddu, ásamt þúsund unglingum, sem klappa skyldu herra sínum lof í lófa, er hann söng eða lék fyrir almenning. Svo mikilli leikni höfðu þeir náð í list sinni, að hver þeirra hafði fastákveðnu hlutverki að gegna. Sumir voru til þess eins kvaddir, að gefa frá sér lágan, djúpan hrifningarsón. Aðrir klöppuðu saman lófunum sem ákafast. Enn aðrir áttu öldungis að verða viti sínu fjær af aðdáun — grenja og stappa og lemja stöfum sínum um bekkina. En þeir, sem mest skyldi um muna, áttu að rymja þyngslalega og þannig, að þeir yfirgnæfðu eða hálfkæfðu alla aðrá háreysti. List þessa höfðu þeir numið af manni nokkrum frá Alexandríu. Þótt söngrödd Nerós værý lítilfjörleg og listflutningur hans beinlínis átakanlegur, átti hann það þó öldungis víst fyrir sakir þessara keyptu aðdáenda, að snúa heim til Rómar með þann heið- urssveig, sem jafnan var sigurvegaranum í té látinn á hverri söngkeppni í grískum borgum. Daginn út og daginn inn dvaldist keis- arinn með söngkennaranum f tjaldi sínu, meðan hinni skrautbúnu galeiðu hans var róið yfir Miðjarðarhaf, og æfði sig á þeim lögum, sem hann hafði valið sér til flutn- ings. Við og við kom núbískur þræll inn í tjaldið og smurði háls drottins síns með •olíu og balsami, svo að hann væri í góðu lagi við raunina miklu í landi söngs og ljóða. Um mat hans, drykk og fótavist giltu ákveðin fyrirmæli, eins og gerist um aflraunamenn, sem æfa sig undir stranga keppni, og frá tjaldi hátignarinnar barst ■sí og æ hörpuglamrið og gjallandi rödd keisarans. Nú bar svo við, að uppi var á þessum tíma geitahirðir einn grískur, sem Pólikles "hét. Hann hirti geitahóp, sem hann átti sjálfur mikils til og hélt um þessar mundir til beitar í fjalllendinu við Hereu, röskar fimm rastir norður af Alfeusfljótinu og skammt frá Olympíu, hinni víðkunnu borg. Hirðir þessi var þekktur þar um slóðir fyrir óvenjulegar gáfur og mikinn skapofsa. Skáldmæltur var hann svo vel, að tvívegis hafði hann hlotið sveig fyrir Ijóð sín. Þá var hann og söngvinn mjög og svo hneigður fyrir að leika á hljóðfæri, að menn áttu öllu fremur von á að hitta hann staflausan en án hörpunnar. Hann bar meira að segja með sér hörpuna um ein- manalegar næturvökur að vetrarlagi, og marga einverustundina stytti hann sér með félagsskap við hana. Hún var orðin sem hluti af honum sjálfum. Þá var hann líka fríður sýnum, hör- undsdökkur og ákaflyndur. Honum svipaði til Adónis, og að hreysti fannst hans enginn jafni, en hann var svo ráðríkur, að hann þoldi hvorki minnstu andmæli né and- stöðu, enda átti hann í sífelldum erjum við nágranna sína, og þá er geðofsinn hafði hann á valdi sínu, dvaldist hann oft, svo að mánuðum skipti, í grjótbyrgi sxnu á fjöllum. Hann undi sér með hörpu sinni og geit- unum og vissi ekkert um, hvað fram fór í heiminum. Vormorgun einn árið 67 höfðu þeir Pólikles og hjarðdrengurinn Dórus rekið geitahjörðina á nýja haga, þangað sem sjá má úr fjarlægð til borgarinnar Olympíu Er Pólikles skyggndist þangað niður, vakti það honum furðu, að reist hafði verið þak , yfir nokkurn hluta hringleikahússins fræga, eins og þar væri eitthvað að gerast. Ekki hafði Pólikles neina hugmynd um það, hvað fram ætti nú að fara í borginni, enda jafnan einn síns liðs á fjöllum uppi, en hitt var honum ljóst, að grísku leikina átti ekki að halda fyrr en að tveimur ár- um liðnum, og því hlaut það að vera ljóða- og söngvakeppni, sem honum höfðu engar fregnir borizt af. Væri hugboð hans rétt, gat hann ef til vill unnið verðlaunin, og þótt ekki væri annað, þráði hann alltaf músik og neitaði sér aldrei um að hlusta á söng og leik frægra listamanna, ætti hann þess nokkurn kost. Hann kallaði því á Dor- us, fól honum geiturnar og skundaði af stað með hörpuna um öxl til að forvitn- ast um, hvað væri á seiði í borginni. Þegar Polikles kom að útborgunum, sást þar enginn maður á ferli, en furðulegra var þó, að á breiðgötum borgarinnar var heldur engin mannleg sál. Hann herti því gönguna, og er að leikhúsinu kom, heyrði hann lágan og samfelldan nið, sem gaf ó- tvírætt til kynna, að mikill mannfjöldi væri þar saman kominn. Aldrei hafði hann getað gert sér slíka söngkeppni í hugarlund — ekki einu sinni í draumi. Nokkrir hermenn voru á vakki utan við hliðið, en Pólikles tróð sér á milli þeirra inn í mannfjöldann, sem fyllti salinn. Hann skimaði í kringum sig og kom auga á ýmsa hjarðmenn, sem hann þekkti. Þeir sátu mjög þröngt á bekkjunum og mændu allir fram á leiksviðið. Hann varð þess var, að hermenn stóðu í röðum með veggjum fram og mikinn hluta salarins skipuðu ungir . menn með framandi svipfar, hvít- klæddir og síðhærðir. Þetta sá hann allt, en hann vissi ekki hverju það sætti. Hann beygði sig að hirði nokkrum til að spyrja hann, en samstundis stjakaði hermaður við honum með spjótskaftinu og skipaði honum að hafa hægt um sig. Mað- urinn, sem hann hafði ætlað að spyrja, hélt að hann væri að biðja um rúm á bekknum og þrýsti sér því fastar upp að næsta manni. Þannig varð það, að Pólikles fékk sæti á enda þess bekkjar, er næstur var dyrunum. Nú beindist öll athygli hans að leiksviðinu. Þar var þá Metas, frægur söngvari frá Korinþu og gamall vinur hans. Hann söng ög lék á hörpu sína, án þess að sérlega mikla hrifningu væri að sjá á áheyrendum. Pólikles þótti Metas ekki fá þá viður- kenningu, ér hann ætti skilið og klappaði af mikilli ákefð, en þá brá svo undarlega við, að hermennirnir hleyptu brúnum, og þeir, sem næstir honum sátu, virtu hann fyrir sér með, undrunarsvip. En hann var maður skapstór og uppreisnargjarn og klappaði þeim mun ákafar, sem hann fann betur, að hann stóð einn uppi. Það, sem á eftir kom, þótti geitahirðin- um þó stórfurðulegra. Þegar Metas hneigði sig og hvarf af sviðinu við daufar undir- tektir áheyrenda, kom sá fram, sem ein- kennilegastur var allra í salnum, og ætlaði þá allt niður að keyra af fagnaðarlátum mannfjöldans. Sá var maður lágvaxinn og þrekinn, hvorki ungur né gamall, með hrútssvíra, búlduleitur og stórleitur, og hékk öll ásjón- an í fellingum eins Qg húð á nautshálsi. Hann var skringilega til fara, í stuttum bláum kyrtli og með gullið belti um sig miðjan. Hálsinn og nokkur hluti brjóstsins var nakinn, og stuttit^ luralegir fótleggir hans berir frá háskónum og langt upp á læri, þar sem við tók kyrtillinn. I hár hans voru festir tveir gullnir vængir og á hæla hans líka, rétt eins og jafnan ef sýnt á myndum af guðinum Merkúríusi. Að baki

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.