Heima er bezt - 01.03.1951, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.03.1951, Qupperneq 31
Nr. 1 Heima er bezt 21 uðu vinir hans að kasta spjót- um og boomerang á hann frá öll- um hliðum. Honum tókst að verja sig með því að hreyfa til skjöldinn. En einu sinni snerti spjót hann í lærið og rispaði hann. Þeir sem köstuðu öskruðu af kæti, er þeir sáu blóðið renna. Meðal Ástralíunegra eru ætt- artengslin ekki eins þýðingar- mikil og tengsli þjóðbálksins. Allir í þjóðbálkinum eru í raun og veru skyldmenni. Öldungarn- ir mynda ráð og gæta þess, að ekki sé brugðið út af siðum og venj um. Líf Ástralíunegra er alls ekki eins frjálst og maður skyldi halda. Ástralíunegrinn er háður mörgum siðum og venjum, og i raun og veru bundinn þeim. Áð- ur en pilturinn öðlast full rétt- indi sem fullþroska maður, verð- ur hann að þola sársaukafullar vígslu- og manndóms-aðgerðir. Umskurnin sem framkvæmd er með hnífi úr steini, er áreiðan- lega ekki sú sársaukafyllsta. f þessu sambandi má geta þess, að hugulsamur trúboði gaf eitt sinn einum þjóðflokknum rak- vélarblað til þessara hluta. Þetta nýja tæki var að visu not- að nokkrum sinnum, en svo var því hent og gripið aftur til steinhnífsins, sem hafði sannað yfirburði sína gegn um marga ættliði. Annað vígslufyrirmæli fyrir æskulýðinn er það að liggja í brennandi sólarhitanum svo dögum skiptir. Hann fær hvorki þurrt né vott á meðan. Aftur á móti er lifandi maurum kastað í andlit honum hvað eftir ann- að. Unglingarnir mega ekki sýna á sér sársaukamerki og yfirleitt verða þeir að láta líta svo út, að þeir séu tilfinningarlausir; þeir mega ekki einu sinni láta sjá á sér svipbrigði, þegar fram- tönn er slegin úr munni þeirra. en það er gert með kylfu með nagla á endanum. Unglingarnir fá heldur alls ekki leyfi til að læðast hljóðlega gegnum dimman kjarrskóginn til að hitta hinar dökkeygðu blómarósir, sem þá dreymir um. Þetta „litla“ tilfinningaatriði sér elzti maður ættbálksins um, og oft áður en þau eru fædd. Ástralíunegrarnir eru ekki eins duglegir veiðimenn og forfeður þeirra voru. Þegar innfæddir menn eru úti í leit að hunangi, veiða þeir býflugu með hendinni, síðan kreista þeir hana, og fylgja henni síðan eftir, er hún flýgur heim til búsins. — Frá gamalli tíð eru Ástralíunegrarn- ir sérfræðingar í því að dulbú- ast, og þeir geta synt undir yfir- borði vatnsins með pípu í munn- inum og gripið sundfuglana nið- ur til sín. Oftast geta þeir not- að tærnar jafnvel sem hendurn- ar. Þeir eru t. d. vanir að skríða á jörðinni og draga spjót sín á eftir sér með tánum, — og þeir eru einkennilega hittnir, er þeir kasta þeim. r-------------------------------- Einstaka ættflokkar á strönd- unum hafa reynt að lifa eftir háttum hvítra manna, en flest- ir þeirra hafa visnað upp og dá- ið, er þeir hætta að lifa sam- kvæmt sínum venjulegu lifnað- arháttum. Einstaka sinnum hjálpa þeir hvítu lögreglunni við að ná í glæpamenn, er leynast meðal hinna innfæddu. Það kemur mjög sjaldan fyrir, að þeir setjist að meðal hvítra manna, og það er aldrei lengi í einu. Fyrr eða seinna verða þeir gripnir ómótstæðilegri löngun til að fara aftur til kj arrskóganna og hins eyðilega hluta inni í landinu, og halda þar áfram að lifa á steinaldarhátt — á sama hátt, sem forfeður þeirra lifðu. Ví SN AMÁL Margt verður mönnum að ljóði. Þessar vísur eru nokkrar af mörgum, sem ortar voru undir útvarpsumræðunum frá Alþingi. Fjör í kringum firða er, frí af táli sálin, meðan þingsins horskur her hvessir mála stálin. Bjarna aldrei brestur vit, bhðan sínum vinum, en vopn sín, rök gegn rauðum Iit, reiðir snöggt að hinum. Hermanh raddar hreyfði tól hátt og snjalt að vonum. Bændur eirnir út við pól eiga traust hjá honum. Rútur gall, og geðið svall, górna skall þar boðinn. Margt við brall á stjórnarstall stríddi snjallur goðinn. Einn er halur æðrulaus ítem jafnhugaður: Stefán Jóhann stefnu kaus, stýrir hress og glaður. Brynki karlinn ekkert á utan flokkinn rauða. tefst í lífi og dauða. Rússum trúr og tryggur, sá Hér fara á eftir nokkrir botnar við vísu- helming, sem fram kom í útvarpinu fyrir skömmu. Fyrriparturinn, sem konur áttu að botna, var svona: Yndið jafnan fyrr eg fann í flokki ungra sveina. Hér eru nokkrir af botnum kvenn- anna: Nú á ég bara eiginmann og ótal börn, sem veina. Hve ástin heitt í brjósti brann brást mér oft að leyna. Það veit heilög hamingjan að hætt er ég að reyna. En eg fékk þó auman mann, ekki er því að leyna. Fyrripartur karlmannanna var svona: Yndið jafnan fyrr ég fann í flokki ungra meyja. Hér eru nokkrir botnarnir: Kom og sá og sigur vann um sumt er bezt að þegja. Drumburinn, sem engri ann, ætti strax að deyja. Kæmi hér við konum bann, kysi ég helzt að deyja. Lengi Sjafnar loginn brann lifir hann til að deyja.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.