Heima er bezt - 01.03.1954, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.03.1954, Blaðsíða 10
74 Heima er bezt Nr. 3 er ekki tilfært, en grein sína endar hann á þessum orðum: „Öll voru bréf Jóns hógvær og góðmannleg og þykist ég vita, og jafnvel heyrt hafa að siðferði hans og dagfar allt hafi verið samboðið hans stjörnufræði, því hún Úranía hans mun hafa dregið hug hans frá öllu því hé- gómlega, auvirðilega og fávísa jarðneska og haldið honum í auðmýkt til hins stóra, hátign- arfulla og eilífa.“ Um Jón Bjarnason, þekkingu hans og störf er nægilegt efni í stóra ritgerð, þótt hér verði ekki skráð meira, en rétt að minna á hann, um leið og hugurinn reikar að leiði hans í gamla grafreitnum í Grímstungu. Fyr- ir atbeina góðra manna komst mikið af handritum hans í Landsbókasafnið, það er minn- isvarði, sem hann reisti sér sjálfur. Ýmislegt er ennþá í Vatnsdal, sem minnir á Jón, þar á meðal kálgarðar og kálgarða- stæði. Gerði hann mikið til að leiðbeina mönnum með kartöflu- rækt, og skrifaði um það ritgjörð í Húnvetning. Dóttir Jóns Bjarnasonar var Hólmfríður, er giftist Hannesi Þorvarðarsyni, bónda á Haukagili. Þessi voru börn þeirra: Jón Hannesson í Þórormstungu, Hannes í Dæld- arkoti, Sigríður á Kistu, Guðrún og Anna, er báðar fluttu til Ame- ríku. Munu systurnar nú allar dánar. Reiknisgáfan virðist hafa gengið í ættir til afkomendanna. Skal í því sambandi minnzt á dótturson hans, Jón í Þórorms- tungu, og ef lengra er farið, Hannes, son Jóns, endurskoð- ara í Stjórnarráðinu, og systur hans, frú Hólmfríði Jónsdóttur á Undirfelli. í teboði „Hún ætti ekki að láta okkur vera alein eftir,“ sagði gestur nokkur í teboði, þegar húsmóð- irin gekk út um stund, „því að það er hérumbil sama sem að koma á stað slaðri.“ t Páll Ólafsson, Sörlastöðum: Á FÖRNUM VEGI Ég var á leið heim úr kaup- staðnum. Hafði, sem venja mín var, skroppið þangað skömmu fyrir jólin. Orðið var áliðið dagsins. Um morguninn hafði hríðað og fyrst frameftir degi, en hríðina stytti upp og var komið allgott veður og sæmilegt skíðafæri. Tungl óð í skýjum. Ég var einn á ferð og þótti mér vænt um að svo var. --------Söguna, sem hér fer á eftir skrifaði ég þetta skamm- degiskvöld á hinn drifhvíta dúk mjallarinnar og notaði stafinn minn í staðinn fyrir penna. Alllöngu fyrri um daginn, þeg- ar ég var að keppast við að koma af kaupstaðarerindunum, vissi ég ekki fyrri til en klappað var léttilega á aðra öxlina á mér og ég ávarpaður með nafni. Ég leit snöggt við og varð í bili hverft við, en áttaði mig samt fljótt og sagði: „Er sem mér sýnist, að hér sé kominn Þor- valdur Þorvaldsson?“ „Já, víst er það hann,“ var svarað. „Sæll og blessaður og þökk fyrir það liðna,“ sögðum við báðir í einu og tókumst um leið hressilega í hendur. — Áður en ég segi söguna lengra áfram, vil ég geta þess, að við Þorvaldur höfðum eigi sést í mörg ár — enda verið talsvert langt í milli okkar — en fyrir tólf árum höfðum við unnið saman í heilt sumar. Féll þá vel á með okkur, enda var Þorvaldur drengur góður. Um það leyti, er við unnum saman var Þorvaldur trúlofaður stúlku, sem var kölluð Lilla. Hét stúlkan þó eigi því nafni. Hafði hún í skírninni hlotið þrjú nöfn, en nefndi sig engu þeirra. Aldrei sá ég stúlkuna hans Þorvalds vinar míns þetta sum- ar. En hann talaði oft um hana við mig, og virtist mér stundum að hann sæi alls ekkert annað en hana, og leit út fyrir að hann væri þá hinn hamingjusami maður. — Svo skildu leiðir okk- » ar Þorvalds, en ég frétti síðar að þau Lilla hefðu gifzt. --------Er við höfðum heils- ast þarna á götunni, spurði Þor- valdur mig, hvort ég væri það tímabundinn, að ég gæti ekki komið með honum inn á „hótel- ið“ til að fá hressingu. Ég sagði, sem var, að ég hefði ákveðið að komazt heim um kvöldið, en ég þægi hið góða boð hans með þökkum, — þótti méð sjálfum mér vænt um að fá tækifæri til að rabba við hann um stund og geta fræðst af honum. Við fórum svo inn á „hótel- ið,“ og þar keypti Þorvaldur kaffi handa okkur. Við settumst einir úti í horni. — Er við höfðum setið þar nokkra stund, vakti ég máls á því við Þorvald, hvernig honum liði. Lét hann vel yfir því. Ég sagði, að mér sýndist hann svo frjálslegur og vel útlítandi, að ég væri viss um að Lilla hlyti að vera umhyggjusöm kona, er stæði vel í stöðu sinni sem hús- móðir og spurði því, hvernig henni liði. Þessari spurningu minni svaraði Þorvaldur ekki al- veg undir eins, en áttaði sig þó fljótt og sagði, að henni mundi vafalaust líða vel, — en hann bætti því við um leið, — að svo vildi til, að reyndar gæti hann ekki svarað þessari spurningu, því fyrir rúmum fjórum árum hefði Lilla strokið til útlanda með brezkum setuliðsmanni; síðan hefði ekki neitt til hennar spurzt. Er ég fékk þetta svar, sá ég óðara eftir að hafa ymprað á þessu, en sem betur fór tók Þorvaldur sér það ekki neitt nærri. — Augnablikshlé varð á viðræðum okkar. — En þá hóf Þorvaldur máls á ný og mælti á þessa leið: „Eftir að Lilla fór, varð ég al- veg eirðarlaus maður, vissi ekk- ert hvað ég ætti af mér að gera eða hvað skyldi taka til bragðs. Ég festi hvergi yndi, vildi ekki vera heima — átti raunverulega ekki heldur neitt heimili, —

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.