Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 6
166 Heima er bezt Nr. 6 um ekki að skapi, var Torfi furðu laginn að gæða það því lífi, að menn færu að hrífast með án þess að gera sér þess fulla grein. Frásagnarsnilldin skýr og lifandi, krydduð góðlátlegri kímni og gamansögum, sem hann fléttaði inn í námsefnið. Piltar voru í vín- og tóbaks- bindindi meðan þeir dvöldu í skólanum. Torfi neytti hvorugs. Þeir menn sneiddu helzt hjá garði þar, er mikið voru undir áhrifum víns; var það þó ekki vegna þess, að þeim væri verr tekið en öðrum. Ég minnist þess, að bóndi úr næstu sveit kom að Ólafsdal allmikið ölvaður. Þegar honum var borið kaffi ásamt öðrum gestum, virtist honum verða eins og ráðafátt. Sá Torfi víst, hvers kyns var og segir við bónda: „Blessaður láttu út í bollann þinn.“ Hann lét ekki segja sér það tvisvar, dregur pela upp úr vasa sínum og verður all- ur að brosi. Ég hef fyrr getið þess, að gest- kvæmt var mjög í Ólafsdal; oft sátu þar gestir dögum saman, ekki sízt meðan Pöntunarfélag Dalamanna stóð með mestum blóma og Torfi var formaður þess. Oft voru stúlkur að námi lengri og skemmri tíma hjá dætrum Torfa, þá mátti ekki síð- ur læra alla verkshætti, sem til fyrirmyndar voru hjá Guðlaugu húsfreyju. Þegar ég kom að Ólafsdal, voru komnar allar þær byggingar þar, eins og þær voru mestar. Var reisulegt þangað heim að líta: stórar og miklar byggingar á stóru og víðlendu, rennisléttu túni. Bæjarhúsin stóðu allhátt upp frá ánni, er fellur neðan við túnið og kvíslast eftir Eyr- unum til sjávar. Þó að dalur sé þröngur til allra átta nema vest- uráttar, sem veit að Gilsfirðin- um, er sviphýrt og hlýlegt þar, enda veðursæld í flestum áttum. Geta þó komið allharðir svipti- byljir af suðri. f góðu veðri að vorinu eru síðkvöldin fögur, þeg- ar hin hnígandi sól gyllir eyjar og sund út um Breiðafjörð. Svanirnir, höfuðprýði Gilsfjarð- ar, eru að mestu komnir til heiða; þó sjást enn nokkur pör, sem hafa orðið síðbúnari og syngja þar angurblítt sinn sól- arlagsóð í ró og tign kvöldsins. Leggi menn leið sína til hlíðar- innar upp af bænum, verður út- sýnið enn tilkomumeira. Það hefur margur furðað sig á því, að Tprfi skyldi setjast að í Ólafsdal og hefja þar stór- framkvæmdir og stofnsetja skóla. Þröngt var þarna til ræktunar og ekki hægt að koma við stórbúskap nema njóta ann- arra jarða, sem ekki lágu nærri, og erfitt um samgöngur. Hann hafði dvalið í Skotlandi, ferðazt til Ameríku. Dvalið í góðsveit- um landsins, bæði norðan og sunnanlands. Hafði því kynnzt margháttuðum möguleikum um- fram flesta aðra landa sína. Þrátt fyrir þetta fer hann heim í sveitina sína, sezt að á smájörð, sem er lítt við hans hæfi. Þó eru innan þessarar sveitar stórar jarðir með miklum framkvæmd- armöguleika. Þær hafa sennilega ekki legið lausar fyrir. Hverjum getum, sem menn um þetta leiða og hvað sem því hefur valdið, liggur það þó ljóst fyrir, að framkvæmdir Torfa í Ólafsdal sýna, hvað gróðrarmold fóstur- jarðarinnar er gjöful, þegar leit- að er eftir því með áhuga og dugnaði. Framkvæmdir heima fyrir og störf Torfa í ýmsum félagsmál- um útheimtu það, að hann varð oft að vera fjarri heirnilinu. Það vannst nokkuð upp með því, að frú Guðlaug var mikilhæf og stjórnsöm, heimilishættir allir voru fastmótaðir; voru þó hús- bændurnir lausir við alla ofstjórn, leitað meira eftir að vekja ábyrgðartilfinningu manna og því sýnt um að hafa það bezta úr hverjum manni. Leiðbeiningar og forsagnir Torfa voru oft kryddaðar góðlátlegri kímni, en þó svo fram settar, að þær misstu ekki marks. Þegar ungir menn, sem þó eru komnir til nokkurs þroska, koma saman, sinn af hverju lands- horni, með ólíka siði og háttu, kann svo að henda, að smá- árekstur verði. Þykir þá sumum bezt, er þeir heiman höfðu. Ég hygg, að þegar litið er til baka með augum hins reynda manns, hafi þau ráðin bezt þótt, sem framkvæmd urðu að fyrirsögn húsbóndans í Ólafsdal. í dag- legri umgengni var Torfi glað- ur og úppörvandi. Átti hægt með að velja umræðuefni við hvers manns hæfi. Ótrúlega lítið urðu gestir varir annríkis hans og umsvifa. Það var eins og hann hefði ávallt nægan tíma til áð sinna þeim. Vel var hann máli farinn, rökfastur og náði vel tökum á viðmælendum sínum. Tók líka heill og óskiptur á við- fangsefnunum og fylgdi því fast eftir og bar þau oftast fram til sigurs. í hópi manna var marg- ur hærri að vallarsýn. Hvergi mun hann þar hafa komið, að hann vekti ekki athygli. Við kynningu sjálfkjörinn foringi. Ég kom að Ólafsdal á fyrsta eða öðru ári eftir brottför mína þaðan. Þá var komið hop á að breyta til um búnaðarfræðsluna. Jafnvel leggja þá Ólafsdalsskól- ann niður. Reynslan virðist samt staðfesta það, að háttur sá, er hafður var á búnaðarfræðsl- unni í Ólafsdal, hefur verið upp- tekinn. Aðeins breytt til eftir því, sem aukin tækni og betri að- stæður skapa. í bréfi frá Torfa. 25. maí 1899 segir: „Ef Ólafsdalsskólinn fell- ur nú, þegar hann er orðinn 20 ára, fellur hann þó, vona ég, við góðan orðstír. Það er mér nokk- ur huggun.“ Auðskilið er, að hon- um hefur ekki verið sársauka- laust að sjá á bak skólanum, meðan hann enn hafði krafta til að starfa við hann. Skólinn stóð nokkur ár eftir þetta. Hvernig nemendum frá Ólafsdal hefur tekizt að halda uppi góðum orðstír skólans, ætti fortíð og samtíð þegar að hafa kveðið upp sinn dóm. En hlutur skólastjór- ans í Ólafsdal er sá, að sæmd má þar af hljótast. Þetta er það helzta, sem vakti athygli mína þann tveggja ára tíma, sem ég dvaldi í Ólafsdal. Sum atvik hafa fallið úr minni. Heildarútkoman verður sú, sem eftir vakir í vitundinni og mót- ar skapgerð og manndóm gagn- vart samferðamönnum og hin- um ýmsu viðfangsefnum lífsins. Flestir, sem þangað fóru, gerðu það af þrá til menntunar og aukins manngildis. Þá stóðu fá- ar dyr opnar til þeirra hluta þeim, sem enga fjármuni höfðu í vegarnesti. Að síðustu set ég hér kafla úr Framh. á bls. 189.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.