Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 10
170 Heima er bezt Nr. 6 1870 og þá ort kvæðið Umkvört- un, er synjun kom. Líkur virð- ast þó benda til, að þetta hafi átt sér stað árið 1869 og Um- kvörtun sé þá ort, enda þótt kvæðið þurfi ekki að vera ort þá þegar. En í Öngulstaðahand- riti nefnir skáldið kvæðið: Bœn og nauðsyn hins vesœla og upp- gefna forsmá 1869. Jónas Jónsson frá Hriflu seg- ir í formála að ljóðaúrvali Hjálmars,1) að honum hafi í fyrstu verið veittur sveitarstyrk- ur árið 1871. Ekki veit ég, hvað- an Jónas hefur þessar upplýs- ingar, en þetta bendir líka til þess, að sveitarstjórnin hafi haft hönd í bagga, er Hjálmar fluttist í Grundargerði, eins og Ari segir. Jón Þorkelsson telur í formála fyrir ljóðum skáldsins, að hann muni ekki hafa fengið sveitarstyrk fyrr en árið 1874 og vitnar í manntalsbók Mælifells- prestakalls, en Hjálmar flutti að Starrastöðum frá Grundargerði 1873. Segir séra Jón Sveinsson það ár: „ekkill, í húsmennsku", en við árið 1874 stendur „á sveit, í dvöl.“ Þeir félagar Brynjólfur frá Minna-Núpi og Símon Dala- skáld segja í sögu Hjálmars: „Sú sögn gekk syðra, að Blöndhlíð- ingar hefðu „látið sér segjast", og veitt Hjálmari sveitarstyrk þegar á eftir. Nokkuð leið þó á milli.“ Hér er átt við, að Blönd- hlíðingar hafi séð að sér eftir útkomu kvæðisins Umkvörtun í 'Norðanfara 12. nóv. 1870. Segir Símon á öðrum stað, að Hjálm- ar hafi verið i húsmennsku á Starrastöðum hið fyrra ár sitt þar. Jónas Jónsson frá Hriflu segir hann á sveitarframfæri tvö ár í Grundargerði og tvö á Starrastöðum, en þaðan fór hann 1875 og dó um sumarið.2) Raunar má segj a, að það skipti nútímann ekki miklu máli, hvort Hjálmar hefur þegið af sveit eða ekki, en þó verða það að teljast nokkrar málsbætur Blöndhlíðingum, ef þeir hafa séð l) Hjálraar Jónsson frá Bólu: Ljóð- mæli, Menningarsjóður 1942. (ísl. úrvals- rit). 2) Við dánar- og greftrunardag Hjálm- ars í prestsþjónustubók Miklabæjar er þess getið, að hann hafi verið hrepps- ómagi. að sér og létt baráttu skáldsins síðustu æviárin, en það hefur löngum andað kalt til þess byggðarlags sökum harðýðginnar við Hjálmar, og naumast hefur það bætt úr skák, að Símon Dalaskáld ber sveitinni ekki gott orð. Sannleikurinn er sá, að hin svonefnda íslenzka bændamenn- ing hefur verið — og er kannski enn — þar á vegi stödd, að hún hefur síður en svo hlúð að skáld- um sínum, það er því langt því frá, að Blöndhlíðingar séu hér einir um sök, en saga þeirra og Hjálmars varð kunnari en saga smærri spámanna í öðrum byggðarlögum og stafar það af því, hvílíkt höfuðskáld hann var og hvernig hann brást við, er á hann var leitað. Hjálmar átti því láni að fagna, eins og fleiri skáld í sveitum landsins bæði fyrr og síðar, að hann átti að- dáendur, sem höfðu bæði getuna og viljann til að hlaupa undir bagga með honum. En hvernig hefði farið fyrir honum og mörgum öðrum skáldum i sveit- um landsins hefði guð ekki upp- vakið ýmsa menn (svo ég noti orð Hjálmars) til að rétta þeim hjálparhönd, svo að þeir gætu annað þessu tveggju: að draga fram lífið og halda áfram að yrkja? Það segir sig sjálft. — Listamannslundin er viðkvæm, og gróður, sem sprottinn er í gjósti, ber þess jafnan nokkur merki. — Einhver kynni nú að spyrja, hvort ástæða sé til að gera sér þann mannamun að hlúa sérstaklega að listamönn- um og verma veikan gróður listamannsgáfunnar. Auðvitað ber að gera það, því að listamenn leggja svo ríflega í sjóðu fram- tíðar, að af má ausa til yndis og ánægju jafnvel mörgum öldum eftir þeirra dag. Við slíka menn hlýtur þjóðin ávallt að standa í þakkarskuld. En ég sný nú aftur að efninu. Ég læt það alveg liggja á milli hluta, hvort Hjálmari hefur ver- ið lagt af sveit lengur eða skem- ur. Hugsanlegt er, að hann hafi verið styrktur af Akrahreppi án þess að vita það, þótt erfitt sé að sjá ástæður til að leyna hann því, jafnólíkt er það og, að Hjálmar hafi gert sér far um að leyna, ef hann hefur fengið styrk. Hann reyndi ekki að fara í launkofa með neitt, þá hann orti Umkvörtun og birti. Ef til vill eru til gögn, er leitt geta hið sanna í ljós. En furðuleg ráðstöfun verður það að kallast á örvasa gamalmenni, jafnvel þótt ekki væri skáld, að hugsa því ekki fyrir neinum viðunan- legum samastað. Þegar Hjálmar varð að hrökklast frá Starra- stöðum, er hjónin brugðu búi, skutu blásnauð hjón, Bjarni Bjarnason og Rannveig Sigurð- ardóttir skjólshúsi yfir hann, lof- uðu honum að hírast hjá sér í beitarhúsunum frá Brekku; af öðrum híbýlum höfðu þau ekki að segja um þær mundir. Og þar andaðist þessi langþreytti ferða- langur, saddur lífdaga, en snilld hans lifir, og getum við í þessu sambandi minnzt orða Steins Steinars um Snorra Sturluson: Og þó. Sú böðulshönd, sem högg- ið greiðir, hún hæfir aldrei það, sem mest er vert, því hvert eitt skáld til sigurs lif sitt leiðir, hve lengi og mjög sem á þess hlut er gert.1) Kristmundur Bjarnason. x) Leturbreytingin er mín. — K. B. (Handrit þau, sem ég hef notað við samningu þessa greinarkorns, á Steingr. Arason á Sauðárkróki; þau eru úr all- miklu og dýrmætu safni, er hann ekki alls fyrir löngu bjargaði frá tortímingu.) Ekki svo slæmur Gömul kona kom í heimsókn á geðveikrahæli, sem hún hafði stofnað af auðæfum sínum, en maður hennar hafði verið mill- jónamæringur. Þegar hún kom inn í garðinn, var hún nærri dottin um einn af sjúklingunum, sem lá þar og steinsvaf. Gamla konan vakti hann og sagði með ávítunarhreim í röddinni: „Af hverju eruð þér ekki að vinna?“ „Ég — ég er — vit-vitlaus“. „Já, en allir hinir eru að vinna“, sagði hún og benti á nokkra menn, sem voru að vinna í garðinum. „Það getur vel verið, en svo vitlaus er ég nú ekki“.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.