Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 27
Nr. 6 Heima er bezt 187 hennar fram í hugskotið, og hann þráði innilega að leggja höfuðið í kjöltu hennar og finna hend- urnar á henni strjúka yfir hár sitt. — Malí, hvísl- aði hann, Malí! — Hann lét undan þessari tilfinn- ingu og stundi eins og hann kenndi sársauka. — Jens liggur inni í hellinum. Ég veit ekki hvað geng- ur að honum. Ég er hræddur! Malí, ó, að þú værir komin hingað í kvöld, þó ekki væri nema ofurlitla stund!------ Hann grét — hafði ekki styrk til að yfirvinna grát sinn. Hann stóð þarna og grét og skalf í ákafri þrá eftir manneskju, sem var innilegri og blíðari en Jens. Nú marraði í frostsnjónum bak við hellinn. Jens var að koma. Hann var eitthvað svo óvenjulega keikur og andlitið horfði til himins, eins og hann væri að njóta tunglsljóssins. Hann gekk að drengn- um og nam staðar við hlið hans og starði á tunglið. Hann sagði ekkert, stóð þarna eins og trédrumbur. Lengi. — Jens, hvíslaði drengurinn. Hann var angistar- fullur. Jens hvarflaði augunum frá tunglinu og yfir að Djúpinu, sem var þarna líkast dökku striki í snjón- um. Hann benti þangað. Drengurinn sá að hönd hans skalf. — Þarna — þarna uppfrá — sérðu það ekki? Sjáðu, hann reikar. Og nú er skotið! Þeir skjóta á hann. Sjáðu, hann kastar byssunni og bakpokanum bak við sig — og — og — ó, varaðu þig, þú þarna uppi, varaðu þig! — Skjóttu ekki — skjóttu ekki! — Jens! æpti drengurinn og varpaði sér að hon- um. — Talaðu ekki svona, Jens! Heyrirðu það! Ég er hræddur, Jens — þú hræðir mig bara! Horfðu ekki svona á mig. — Hann þrýsti sér inn að Jens og grét sárt. Þá var eins og Jens kæmi til sjálfs sín. Hann hélt um gagnaugun og starði undrandi og hræddur á drenginn. Svo tók hann Ingólf í arma sína og bar hann inn í hellinn. Seinna um kvöldið gengu þeir upp úr Svartadjúpi með skíðin um öxl sér. Þeir voru þögulir. Drengur- inn var grátklökkur ennþá. í norðurátt, yfir Svarta- djúpsmýrina, gengu þeir á móti ísköldum vindin- um. Snjórinn marraði undir skíðunum og kaldur skuggi eftir tunglsljósið fylgdi þeim eins og vofa. Jens gekk á undan, það gerði hann alltaf til þess að drengurinn gæti þrætt brautina eftir hann. En nú var brautin verri en enginn. Jens gekk eins og í svefni og komst varla úr sporunum. Á hverju augna- bliki var hann að hrasa, og stakkst þá stundum á höfuðið niður í fönnina. Þar lá hann dálitla stund og stundi. Slíkt hafði aldrei komið fyrir hann áður. Ingólfur var dauðhræddur, en hann þorði ekki að spyrja, hvert Jens ætlaði, eða hvaða tilgang þessi næturferð ætti að hafa. Hann þorði ekki að spyrja Jens neins í kvöld. Hann svaraði spurningum drengsins út í hött; það var einna líkast því, sem hann hefði misst vitið. Kannske ætlaði hann niður í sveitina til þess að gefa sig fram. Þá færi Jens í tukthúsið, og hann! — Hugsunin var eins og gím- ald. Hann vissi ekki hvað falzt í þessu gímaldi, en hann var viti sínu fjær af ótta við það. Seint um kvöldið voru þeir komnir svo langt nið- ur í dalinn, að ljósið í Króki sást aðeins. Þá beygði Jens burt frá ánni og gekk á ljósið, þvers gegnum kjarr og skafla, klifraði upp bakkana og renndi sér svo eins og viljalaus, þar sem landinu hallaði. Drengurinn fylgdi honum eftir. Svitinn bogaði af honum. Það hlaut að vera eitthvað alvarlegt að Jens, því að hann æddi áfram eins og hann þyrfti einskis að gæta og ekkert að óttast. Skíðgarðurinn hafði fokið niður, svo að þeir komast beint að glugganum. Þótt hérna væri alveg slétt, víxlsté hann sig þó á skíðunum, svo að hann hrasaði, en stóð skjótt upp aftur og reikaði að glugganum. Rúðan var hrímuð að innanverðu, svo að það var ekki hægt að sjá inn. — Jens, hvíslaði drengurinn. Sá er vit hafði, varð að nota það á þessari stundu. En Jens heyrði ekki. Hann slangraði að tröppun- um og ætlaði að stíga af skíðunum, en datt kylli- flatur. Hann lá lengi á hliðinni og fálmaði eftir bindingunni, áður en honum tókst að losa fæturna. Nú heyrðist lásahljóð og mjó rönd af ljósi frá dyrunum, eins og klauf frostloftið. — Er þarna einhver? var spurt. — Geirmundur! — sagði Jens hógværlega. — Þú mátt ekki taka það illa upp, en------ Þá var dyrunum skyndilega skellt í lás. — Burt með þig, þinn — æpti hann fyrir innan dyrnar og sló krepptum hnefanum í hurðina. — Geirmundur! Jens lagði munninn við skráar- gatið. — Þú verður að hlusta á mig, Geirmundur! Það er skylda þín sem kristins manns. — Aldrei að eilífu! Og ef þú ferð ekki strax, þá skal ég sjá um að þú komist burt. — Við sveltum í hel. — Já, farðu þá bara til helvítis! Við komum sjálf- sagt bráðum á eftir! — En Geirmundur, neyttu skynseminnar! heyrðu þeir að Geirþrúður sagði. Og nú heyrðu þeir stymp- ingar fyrir innan og þungar stunur. — Hvað er að? kallaði Geirþrúður til þeirra úti. En áður en Jens gat svarað, heyrðu þeir rödd Geirmundar. — Þú skiptir þér ekki af þessu, kerling! Hefurðu ekki skipt þér nóg af þessum djöfli! Röddin varð sterk- ari: — Og þú þarna úti, ef þú ferð ekki á stund- inni, þá náði þig guð almáttugur! Ég ætla að skjóta gegnum skráargatið. — Heyrðu nú, Geirmundur! Ég er ekki einn. Ég ber ábyrgð á litlum dreng. — Ég er heldur ekki einn. Og nú hleypi ég af! — Geirmundur! Angistaróp Geirþrúðar skar myrkrið eins og eldur. Hún var víst að reyna að taka frá honum byssuna. Loks fór hún að gráta og stamaði á milli til Jens, að þeir skyldu gæta sín. Þau áttu ekkert matarkyns, og nú kom Geirmund- ur. Flýtið ykkur! Þeir voru komnir nokkur skref frá húsveggnum, þegar skotið reið af. Jens sneri sér við og eins og urraði, meðan þeir flýttu sér til skógar. Ingólfur var dauðhræddur. Honum fannst skotið vera á eftir sér, en þrátt fyrir það, að hann var bullsveittur og óttasleginn, hugsaði hann með sér að nú væri hann í félagsskap við úlf. Um miðnæturleytið vakti Guðmundur blindi konu

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.