Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 17
Nr. 6 Heima er bezt 177 „Jónas í Gjánum” Gamlar sagnir gleymskan hylur geymist fátt frá liðnum dögum. Lærdómsgreinar þjóðin þylur þrýtur yndi af kynjasögum. Kynslóðirnar koma og fara hver ein elfa fær á brúnni í okkar landi lifa bara. Leifarnar af draugatrúnni. Vil ég eina sögu sanna samtíð minni birta í ljóðum. Máða á spjöldum minninganna frá mínum fornu æskuslóðum. Yfir grónar götur fennir gott er nýja reisu að taka. Ef að með mér nokkur nennir níutíu ár til baka. Miðvikudags á morgni heiðum margur þeytti gjarðaval. Eé var smalað heim af heiðum f hópum niður í Svartárdal. Sinnar skyldu sérhver gætti saman rekstrar störfin við. Pram við stóru Stafnsrétt mætti ■stundum fjölmennt búalið. Morgunverkin voru búin vildi margur réttar til. Hurð að Fjósum hart var knúin hádegis um tímabil. Eékkst þar jafnan beini beztur bóndinn alþekkt manna val. Kominn var þar víni hresstur vinnumaður frá Þverárdal. Þar var löngum gesta gaman glösum klingt að fornum sið. Ymsir hlut þar áttu saman orða sennu háan klið; — Sumar voru sóttar, varðar svo leið tíminn fram á nón. — Þar var skáldið Skagafjarðar að skálum: Víðimýrar-Jón. Jónas reiður rauk á hestinn Téttar glaumsins þráði ys. Nú varð ei tjónkað neitt við gestinn á næsta leiti biðu slys. — Hann þeim Brúna hlýfði ekki hart var blakksins fóta drif. Hverfa sást í moldarmekki maðurinn suður Fjósaklif. Flest er drukknum feigum manni fært, á meðan dagur er. Varkárni þó vitið banni verka sinna geldur hver. — Hestinn sveigði ofan að ánni engum farartálma kveið. Við svæðaflúð í „Syðri-Gjánni“ sundið hinzta Jónas reið. Ofan strauminn áin bar ’ann eyrar þar sem myndast brot. Klukkan fjögur fluttur var ’ann fram í Eiríksstaða-kot. Þó andaður væri ekki beið ’ann örugt skráir minja-safn. Skýring á kvæðinu Hinn 23. september 1862 skeði það slys, að ungur maður, Jónas Sigurðsson að nafni drukknaði í Svartá sunnan við bæinn Skeggstaði í Svartárdal í Austur-Húnavatns- sýslu. — Maður þessi var á leið til Stafnsréttar, sem er einhver stærsta rétt á Norðurlandi. Kom síðast að Fjósum, var drukkinn og bætti á sig, rauk þaðan í slæmu skapi og drukknaði í Svartá í svokallaðri Syðri-Gjá. Þótti mjög bera á svip eftir hann eins og kvæðið ber með sér. Höfundur kvæðisins er alinn upp á Eiríksstöðum, sem er einni bæjar- leið framar í dalnum og gæti sagt margar sögur um svip hans, þótt þær verði ei skráðar hér. Annars hefur Jónas Illugason fræðimaður á Blönduósi skráð greinilega um svip þennan í Rauð- skinnu. Jónas Illugason bjó lengi í Eiríks- staðakoti nú Brattahlíð í Svartárdal. Dalinn fram til réttar reið ’ann rennvotur hann kom í Stafn. Um Svartárdalinn sást hann ríða sífellt, þegar dimma tók. Þessar sagnir sveima víða svipleg spjöll og hræðsla jók. — Renndi að hurðum reið á þökum rétt með ánni þræða kaus. Hófaslátt menn heyrðu á vökum hringlaði beisliskeðjan laus. 6 Jónas margur maður kenndi ' mun það lengi í sögum haft. Fingurna á hægri hendi hafði kreppta um svipuskaft. Samtíð þekkti þína hrekki þér ei veittist dánum ró. Fjöldanum jókstu fararhnekki um Fjósaklif og hlíðarmó. — Langt til baka muni mænir, mörkuð var þér slysagröf. Fáar vina fyrirbænir fylgdu þér á hinztu nöf. Kærleiksrýrðin, ríkra og snauðra ryki á lífið stundum slær. Leiðin milli lífs og dauðra lengi var þér dánum fær. Munu ei jarðlífsþrárnar þrotnar þitt í slíðrum hefndarsverð? Kjúkur slitnar, kaldar, brotnar, krepptar um svipu I réttarferð. Umhverfi þér æðra blikar opnað dýrðar fegra svið. Sopinn hinzti sáttubikar, sem þú reiður skildir við. Fýkur yfir fornar slóðir flest er gleymt, sem liðið er. Við neistaflug og gamlar glóðir gaman er að orna sér. Enginn drenur minja máttinn mótuð sögnin lifa skal. Heyri ég enn þá hófasláttinn og hringl í keðju um Svartárdal. Gísli Olafsson, frá Eiríksstöðum.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.