Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.06.1954, Blaðsíða 25
Nr. 6 Heima er bezt 185 og skömmuðust sín um leið. Guðmundur blindi strauk skegg sitt og starði fram hjá þeim með blindum augunum og leið verst. Hann tautaði eitt- hvað um, að veðrið væri ágætt. Jens jankaði við því og svo var það umtalsefnið tæmt. Ingólfur fór að snúa birkistöfunum við eldinn; þeir áttu að hitna jafnt og svo var gaman að geta sýnt Jens, að hann væri duglegur við stólasmíði. — Það er sennilega óáran þar sem þú heldur til, er það ekki? — Ójú, ekki verður því neitað. Svo var heldur ekki meira um það að segja. Það varð eins og tómrúm í timanum og ekkert gerðist. Á arninum blossaði eldurinn og fluga suðaði í glugg- anum. En slíkt gerði þögnina ennþá átakanlegri. —- Hja, þetta eru undarlegir tímar, sagði sá gamli eins og andvarpandi. Það er talað um mann úr Norðurlandi, sem kom til Þrándheims með fulla síldartunnu i vor. Og svo skipti hann á síldinni og heilli jörð. Það er fullyrt, að það sé satt. Jens hristi höfuðið. Honum fannst það slæmt. Síðan sneri hann sér að Ingólfi og sagði, að nú yrðu þeir víst að fara að hugsa til heimferðar. Gamli maðurinn fylgdi þeim út á hlaðið og svo stóðu þeir þar og þögðu um allt, sem þá langaði mest til að vita. — Geturðu getið, hvað margar stúlkur með Ingi- bjargarnafni eru hér í sveitinni? spurði Ingólfur allt í einu. Jens kipptist við og leit hvasst á drenginn. Nú hafði hann sjálfsagt sagt allt, sem hann átti að þegja um. Hann stóð eins og á glóðum. Hingað gæti komið fólk, allt illt gat skeð, ef þeir tefðu lengur. En honum leizt vel á gamla manninn blinda, nú, kannske var eins gott að spyrja strax! — Já, Ingi- björg, sagði hann og sneri sér að gamla manninum, — hvað er orðið af stúlkunni, sem var í Haugsselinu fyrir sex eða sjö árum? — Hja, það er líklega sú Ingibjörg, sem kom frá Hakkadal, sem þú átt við? Það er sagt, að hún hafi vinnu einhversstaðar nálægt Þrándheimi. Á bónda- bæ við Strind. — Svo-o! ■— •— Jæja, lifðu vel! Þeir voru komnir að hliðinu, þegar sá gamli ræskti sig allt í einu. — Ef þú þarft að láta skila einhverju til Ingibjargar, þá — þá gæti ég kannske reynt að komast í samband við hana. ' Jens hugsaði sig um nokkur andartök. — Já, það er ágætt, sérðu, en við hittumst sjálfsagt bráðum aftur og getum þá talað um það. En ég vildi gjarna biðja þig að hafa ekki orð á því við neinn, að þú hafir hitt okkur. — Ég sé ekki, sjáðu til! sagði sá gamli og það var bæði spaug og sársauki í rödd hans. XI. Það var eins og skelfingaróp hljómaði yfir land- inu, angistaróp þjáðra manneskja. Fólkið þrýsti sér fastara saman. Menn spurðu, en fengu engin svör, því að þetta var ofar öllum skilningi. Það var í júlí- lok og fyrsta frostnóttin var komin og seinkaði fyr- ir hinum lélega grasvexti. Hið mikla ár neyðarinn- ar var enn ekki liðið. Nú byrjaði það í alvöru. Og nótt eftir nótt var jörðin frosin, svo að öxin fölnuðu og fræin dóu. Á himninum birtust ísköld norðurljós, eins og armar illra anda, og vötn og ár lágu milli skara. Manneskjurnar voru orðnar svo ógnariega litlar og hjálparlausar. Þær strituðu daginn langan, kveiktu bál á ökrunum til þess að halda frostinu burtu, en frostið varð samt sem áður sterkara. Brún rófublöð og tóm, frosin kornöx breiddu sig út um akrana. Nautgripirnir stóðu magrir og vesaldarlegir á básum sínum og mauluðu hreindýramosann. Hlöð- urnar voru ekki einu sinni hálfar, og ef nokkur leið væri til að halda lífinu í skepnunum til næsta vors, varð að spara fóðrið eins og unnt var og auk þess reiða sig á miskunn drottins. Þegar allt annað brást, var aðeins eitt eftir: Að biðja til guðs. Það var margt um manninn í Odda og Búdalnum messusunnudagana. Fjallabændurnir voru bláir af kulda og vanlíðan og leituðu trausts og hjálpar hver hjá öðrum. Menn, sem komu frá Þrándheimi, töluðu um stríðið á suðurlandinu. Sví- ar og Englendingar höfðu sameinazt um að berja á Norðmönnum og Dönum. Kornhlöðurnar stóðu tómar og kaupmennirnir voru allslausir. Hvað gagn- aði það að hafa peninga að kaupa fyrir, þegar her- skip Englendinga lágu fyrir utan ströndina og lok- uðu öllum höfnum. Það hafði ekki komið eitt ein- asta kornskip inn í Þrándheimsfjörðinn. Á suðurströndinni var ástandið svo illt, að sum- ir gerðu tilraunir til að róa til Danmerkur eftir korni. Margir þeirra voru teknir af óvinunum. Og það var sagt, að einn þeirra héti Þorgeir í Vík. Jens var uppi við Híárfossinn þegar fyrsta frost- nóttin kcm. Hann varð forviða á þessum öfugsnún- ingi náttúrunnar. Hafði hann gleymt tímatalinu, eða voru árstíðirnar komnar i ólag? Það hafði varla komið heitur dagur það sem af var sumrinu og nú var frostið komið. Þeir lágu þétt saman þá nótt, drengurinn og hann. Næturloftið var rakt og napurt og það hjálpaði lít- ið, að þeir kyntu, svo að klettarnir sveipuðust rauð- um bjarma. Maður svitnaði á annarri hliðinni en var ískalt á hinni. Fjórum dögum siðar fluttu þeir niður í hellinn í Svartadj úpi, reknir þangað af kuldanum. Það varð að hætta á, að selsfólkið yrði þeirra vart. En Haugsselið virtist vera cautt og gleymt. Fólk- ið var flutt þaðan nýlega. Hafði flúið. Nú var dal- urinn aftur auður og kaldur. Ekkert baul, engar bjöllur og engin köll í syngjandi tónum frá mjalta- konunum. Svo kom snjórinn. Það var í ágústlokin. Eins og

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.