Heima er bezt - 01.06.1954, Síða 7

Heima er bezt - 01.06.1954, Síða 7
Nr. 6 Heima er bezt 167 Kristmundur Bjarnason: HÚS SKÁLDSINS Bólu-Hjálmar flutti að Minni- Ökrum árið 1844, en Símon Þor- láksson á Stóru-Ökrum mun hafa útvegað honum verustað þar. Jón Bjarnason, er þar hafði búið, var þá nýlega látinn, en Símon, sem áður er nefndur, hafði látið hann hafa gjafabréf fyrir jörðinni, er var upplesið á manntalsþingi árið 1829 að Stóru-Ökrum. Á Minni-Ökrum vegnaði Hjálmari illa, bæði vegna þess, að heilsa hans var þá mjög tek- in að bila og þar missti hann konuna (1845), og urðu því heim- ilisástæður allar erfiðari; auk þess átti hann þar í eilífum úti- stöðum við nágranna sína og sambýlismenn. Verður sú saga ekki rakin hér, enda hefur það verið gert áður og bezt af sjálf- um honum í ljóðum þeim, sem eftir hann liggja. Árið 1871 urðu eigendaskipti að Minni-Ökrum, og varð þá Hjálmar að hverfa þaðan. Þótti honum, sem von var, illt að verða að sæta þeim kostum. Þarna hafði hann átt samastað í meira en aldarfjórðung, gert nokkrar umbætur á jörðinni, meira að segja flutt bæ sinn til á túninu. Hjálmar fór þess á leit að fá að dvelja eftirleiðis sem hingað til í kofa sínum, en fékk þvera synj- un. Um þessar mundir var Guð- rún, yngsta dóttir hans, fyrir búi hjá honum og hlynnti að hon- um í ellinni. Voru þau nú alveg vegalaus. En þá bar svo við þetta vor, að Jón nokkur Jónsson, sem búið hafði í Grundargerði frá 1869, sagði því lausu og flutti brott, og gat Guðrún fengið kot- ið til ábúðar. Grundargerði, hjá- leiga frá Miðgrund, var nauða- lélegt kot og undu ábúendur þar illa. Næstur á undan Jóni hafði búið þar Baldvin nokkur Jóns- son í eitt ár. Ari kansellíráð á Flugumýri, sem átti kotið, ritar Ólafi bónda Guðmundssyni i Litladalskoti um áramótin 1868 —’69, en Ólafur hafði gengið í landskuldarábyrgð fyrir Bald- vin, og vill Ari vita, hvað hann hugsi sér með byggingu á kot- inu. Ólafur svarar þessu bréfi 20. janúar 1869 og segir svo á einum stað um kotið: „. . . því næst álít ég því [að] sjálfsögðu lausu, þar líf og eignir eru þar í veði á hverri stundu ef til vill . . .“ Hér mun Ólafur einkum r-------------------------------^ Margt hefur verið ritað um dvöl Bólu-Hjálmars í Akrahreppi og við- skipti hans öll við mannfélagið. Hér bregður Kristmundur Bjarna- son upp nokkrum myndum, sem ekki hafa áður komið fram í dags- ljósið, og er ekki ólíklegt, að þeim, sem kynnast vilja sem bezt ævi- kjörum skáldsins, þyki nokkur fengur að. V-------------------------------. eiga við það, að kotið „lá und- ir áföllum frá Dalsá“, en hún hafði oft reynzt hættuleg bú- endum í Grundargerði, enda hafði það verið og var um þess- ar mundir kvöð á Grundargerð- isbændum og öðrum landsetum Ara á þessum slóðum að reyna að koma í veg fyrir, að áin ylli spjöllum.1) Auk þess var húsa- kostur í Grundargerði nauða- lélegur, jafnvel hættulegur lífi og limum. Ekki mun Baldvin hafa bætt jörðina, meðan hann bjó þar, reif hann t. d. fjós, sem fylgt hafði jörðinni, en byggði ekki í stað þess. Mér er ekki kunnugt um, að !) í byggingarbréfi Jóns segir svo: „Eins og af öðrum búendum í Grundargerði áskilst einnig af téðum Mr. Jóni Jóns- syni, að hann í samfélagi með öðrum, sem það hafa undirgengist, revni til af ýtrustu kröftum að bægja Dalsá frá að gjöra skaða hér norður á bóginn, hvað tilheyrir að leggja til duglegan mann, hvenær sem reynt verður að stemma stigu fyrir ánni . . . .“ byggingarbréf Guðrúnar Hjálm- arsdóttur fyrir Grundargerði sé til, en hins vegar byggingarbréf Jóns Jónssonar fyrir jörðinni, og tel ég því rétt að birta glefsur úr þvi. Fjórða grein í bygging- arbréfi Jóns er á þessa leið: „Á móti tilhlýðilegum kvittunum hér upp á borgi ábúandi í ár- lega landskuld heim til mín 4, fjóra sauði veturgamla gelda og gallalausa og að öllu í bezta standi í fardögum, einnig taki það ásauðarkvígildi, er jörðinni fylgir til eigin ábyrgðar og eft- irgjalds í skileyri réttum með 20 — tuttugu — pundum hreins og velverkaðs smjörs í tuttug- ustu viku sumars árlega og skili kvígildi þessu eins og sérhvörju öðru jörðunni tilheyrandi við burtför sína í fullgildu standi eða þá með uppbót eftir skyn- samra úttektarmanna mati.“ Fimmta grein byggingarbréfs- ins er á þessa leið: „Vegna þrengsla og óánægju, er þar af kynni að verða, ósk- ast, að ábúanddi hafi aldrei milli fardaga og rétta ótamin hross heima og ekki taki fleiri haga- gönguhross, en eftir jöfnuði bæri í tilliti til hrossafjölda á Mið- grund.“ Hér slær Ari kansellíráð var- nagla. Honum hefur verið vel kunnugt um nágrannakrit þeirra í Blönduhlíðinni og veit, að ekki má mikið út af bera, svo að upp úr sjóði. Þarna átti Bólu-Hjálmar að setjast að, með stórhættulega ána á aðra hönd, en á hina nágranna, er áttu alls kostar við hann, gamlan og ör- vasa. Eins og áður er sagt, mun byggingarbréf Guðrúnar fyrir Grundargerði ekki vera til, og þess vegna óvíst, með hvaða kjörum Guðrún hefur tekið jörðina í ábúð, en ég tel víst, að þeir kostir hafi verið sanngjarn- ir, því að Ara var vel til Hjálm- ars, eins og síðar mun sýnt verða, og hefur hann vel kunn-

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.