Heima er bezt - 01.06.1954, Side 16

Heima er bezt - 01.06.1954, Side 16
176 Heima er bezt Nr. 6 en faðir, og ekki varð þess hið minnsta vart í dagfari hans, að honum þætti neitt síður en skyldi á heimilinu. Veturinn var allharður, og vor- ið kom seint. Gekk fiskur ekki á mið á venjulegum tíma, og virt- ist mönnum óvænlega horfa um bjargræði. Veður var kalt, en sólfar mikið og stillur, og þá er Teiti bónda þótti sýnt, að fisk- ur mundi ekki ganga undir land fyrr en upp úr Jónsmessu, mann- aði hann áttæring sinn og tók að sækja á haf út. En afli var treg- ur, og tók það þrjá sólarhringa að fá upp á bátinn, þó að skips- höfnin væri fjórtán manns. Þá er voraði, varð Ólöf hús- freyja enn tómlátari en áður um heimilisstörfin, enda var hún orðin mjög föl og mögur. Oft svaf hún ekki um nætur, einkum þegar veður var stillt og bjart, og reikaði hún þá út og inn. Stundum fór hún út á hólana við sjóinn og stóð þar eða rjátlaði fram og aftur. Hún hafði enga forsögn á um vallarvinnuna, og Teitur bóndi setti þar Guðborgu til verkstjórnar. Virtist nú hafa gripið hann nokkur óró, þá er hann kom úr hafróðrum sínum, gekk hann jafnan heim, óðar en báturinn var lentur. Dag einn í áttundu viku sum- ars kom Teitur bóndi úr haf- róðri skömmu fyrir hádegi og gekk þegar til bæjar. Hann mætti Guðborgu á hlaðinu. Hún sagði: „Nú er þér ekki til setu boð- ið, Teitur frændi.“ Teitur bliknaði. „Gakk þú með mér hér upp fyrir bæinn,“ sagði hann tóm- lega. Þau settust síðan að húsabaki, og Guðborg mælti: „í gærkvöldi kom smalinn ekki heim á venjulegum tíma frá lambfénu, og þegar ganga skyldi til hvílu, var hann ekki kominn. Ég fór þá inn til Ólafar hús- freyju og vakti á því athygli hennar. Hún drap þessu á dreif, en ég þóttist sjá, að hún færi hjá sér. Þá vaknaði hjá mér grunur um, að þarna mundi eitthvað á seiði, og hafði ég á mér andvara. Þegar liðið var fast að óttu, heyrði ég gengið um bæjardyrnar, og brátt kom hús- freyja fram úr húsinu og gekk hljóðlega ofan. Ég fór fram úr, kippti á mig skóm og læddist niður. Ég heyrði, að þau gengu til eldhúss. Þá laumaðist ég út og upp á eldhússtrompinn, og þar heyrði ég hvert orð, sem þau sögðu.“ Guðborg þagnaði, en Teitur bóndi ýtti óþyrmilega við henni, og hélt hún þá áfram: „Húsfreyja hafði falið smalan- um að fara norður á Ingjalds- sand, hitta þar að máli Ingjald Bjarnason og biðja hann að koma til fundar við hana í Nes- dalsdrögum um miðmundaskeið í dag. Og fyrir fjórðungi eyktar hélt húsfreyja af stað inn hlíð, kvaðst ætla að skreppa inn að Arnarnesi til fundar við Björgu, systur sína. Hún var skartbúin, svo sem skyldi hún sitja veizlu. Þá er hún var komin hér nokkuð inn í hlíðina, hækkaði hún sig mjög, og mun hún hafa ætlað norður Skörð.“ Eftir skamma stund hélt Teit- ur Ormsson upp hlíð. Hann var búinn léttum ferðafötum og gyrður sverði. Hann stefndi að gjá þeirri, sem er í hamrana skammt fyrir utan bæinn. Er þetta styttri leið upp á fjallið en að fara inn í Skörð, en svo er hún torfær, að aðeins eru fá dæmi þess, að hún hafi verið farin. Teitur bóndi gekk upp hlíðina sem stikaði hann eftir jafnsléttu, og á furðu stuttum tíma fikaði hann sig upp gjána, og hafði hann þó ekki farið þessa leið síðan hann var unglingur, og þá hafði það tekið hann ær- inn tíma. Þá er hann kom ofan í drög Nesdals, sá hann karl- mann standa í brekkuhalli, skammt undan. Hann kenndi þegar, að maðurinn var Ingjald- ur. Teitur nam staðar og skim- aði um drögin, renndi augum upp á fjallsbrúnina og niður í dalinn, þar sem vatnið blasti við sýn í skugga fjallsins, dökkt og dulrammt. En hann fékk hvergi komið auga á konuna, sem hann skimaði eftir. Hann hélt þá á- fram í áttina til Ingjalds og fór mjög hratt yfir. Þegar hann átti aðeins ófarin nokkur skref, spyrnti hann við fótum og stöðvaði sig. Hann virti Ingjald fyrir sér. Hann var búinn klæð- um þeim, sem Ólöf húsfreyja hafði gefið honum. Þau voru orðin mjög snjáð. Ingjaldur bar sverð við hlið. Teitur greip um meðalkaflann á sverði sínu og mælti: „Hvar er Ólöf húsfreyja? Hef- ur þú fólgið hana?“ Ingjaldur þagði andartak og virti hann fyrir sér. Hann mælti síðan: „Ekki hefur hún hingað kom- ið, og skyldi þó svo verið hafa, eftir þeim boðum, sem hún gerði mér.“ Teitur glotti. „Ég sé, að þú hefur að heim- an haft sverð þitt,“ sagði hann ögrandi. „Sjá munt þú það rétt,“ svar- aði Ingjaldur, „enda er nú bjart yfir og skyggni svo gott, sem verða má.“ Teitur hleypti brúnum, dró sverðið úr slíðrum og brá því. „Þá munt þú sjá þetta,“ sagði hann, „og minnast fyrri sam- funda, en ekki mun ég nú hnit- miða sem þá, hvar þú kynnir að verða sár.“ Ingjaldur greip til sverðs síns, en dró það þó ekki úr slíðrum. Hann mælti: „Vel má ég berjast við þig, en meira er mér nú í hug að svip- ast um eftir Ólöfu húsfreyju, því að með ólíkindum er það, að ekki skuli ennþá sjá til ferða hennar.“ Það kom hik á Teit, og hvarfl- aði hann sjónum upp eftir dal- drögunum. Hann sagði síðan og brá grönum: „Ekki mundi hún fá aftrað því, sem ég hef nú ætlað að fram gengi. Tak þú nú til sverðs þíns og ver þig, svo sem þú mátt.“ Ingjaldur sagði: „Þau orð gerði mér Ólöf hús- freyja, að hún væri vanheil, og vildi hún hitta mig einu sinni, áður en henni þyngdi.“ Teitur bliknaði. Hann leit enn á ný upp í daldrögin, slíðr- aði síðan sverðið og sagði: „Hví gazt þú ekki þegar sagt mér þetta? Mun ég nú fara og leita hennar.“ „Ekki mun ég láta þig einan um það,“ svaraði Ingjaldur. Teitur hafði haldið af stað. Hann svaraði ekki orðum Ing- jalds, en fór hratt upp brekku- kornið og skimaði í sífellu. Ingj- aldur hljóp á eftir honum og Framh. á bls. 184.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.