Heima er bezt - 01.01.1956, Síða 4
ÍSLENZK AFREK
Ársins 1955 mun lengi verða getið í íslenzkri
bókmenntasögu sem þess árs, er íslendingur hlaut
í fyrsta sinn bókmenntaverðlaun Nobels. I sjálfu
sér mun engum hafa komið það á óvart með öllu,
né talið það nokkra furðu eða ómaklegt, að sú við-
urkenning bærist til einnar elztu bókmenntaþjóð-
ar í álfunni. Þjóðar, sem ljómi hefir staðið af öld-
um saman fyrir bókmenntaleg afrek liðinna alda.
Hér skal ekki Nobelsverðlaunaskáldið sjálft,
Halldór Kiljan Laxness né skáldskapur hans gerð-
ur að umtalsefni. Um skáldið og verk hans hefir
þegar svo margt verið ritað, að fá orð liér væru að
bera í bakkafullan lækinn, heldur verður einungis
minnt lítilsháttar á unnið afrek.
Það er fullkunnugt, að afstaða Halldórs K. Lax-
ness í stjórnmálum, og lýsingar hans ýmsar úr ís-
lenzku þjóðlífi og ummæli á opinberum vettvangi,
hafa síður en svo aflað honum almennra vinsælda.
Hann hefir ekki, þrátt fyrir óumdeilanlega rit-
snilld sína, orðið ástmögur þjóðarinnar sem skáld,
heldur hafa menn um hann deilt af kappi á báða
bósía, 02: lof og last verið um hann sagt meira en
góðu hófi gegnir, og sæmandi er þeim, sem vildu
ræða málin af hlutleysi og skynsemd. Og þótt hann
hafi nú hlotið Nobelsverðlaunin, sem tvímælalaust
er hin mesta sæmd, sem nútíma skáldi fær hlotnast,
er ólíklegt að deilurnar um skáldið og öfugmælin
á báða bóga hjaðni. En þetta haggar þó ekki þeirri
staðreynd, að hver sannur íslendingur hlýtur að
fagna orðnum hlut. Nobelsverðlaunaveiting til
Halldórs K. Laxness er ekki einungis persónulegur
sígur skáldsins sjálfs fyrir unnin afrek, heldur er
hún einnig viðurkenning á menningu íslenzku
o 00
þjóðarinnar allrar. Og fyrir það afrek, að afla þjóð
sinni slíkrar viðurkenningar, hljótum vér öll að
verða skáldinu þakklát, þótt oss annars greini á
um það. Hver slíkur sigur, senr íslendingur vinnur,
er þjóðinni ómetanlegur í baráttu hennar fyrir
sjálfstæðri tilveru í samfélagi þjóðanna. Þótt menn-
ingarafrek liðinna alda séu oss ómetanleg, þá eru
því takmörk sett, hversu lengi vér getum lifað á
frægð feðranna einni saman. En afrek Halldórs K.
I.axness og sá bókmenntasigur, sem hann hefir
unnið, er óhagganleg sönnun þess, að þjóðin hefir
verið trú arfleifð sinni á sviði bókmenntanna, allt
frá því, að Völuspá var kveðin og þeir Ari, Snorri
og Njáluhöfundur skráðu bækur sínar. I því ljósi
lrer oss að skoða þetta afrek, og um leið hlýtur
fögnuður alþjóðar yfir unnu þrekvirki, að vera
hafinn yfir persónulegan skoðanamun og dægur-
þvarg.
En nm leið og vér fögnum sigri Halldórs K.
Laxness, skulum vér einnig minnast þess, að áður
hafa Nobelsverðlaun fallið í skaut íslenzkum manni,
er Níels R. Finsen hlaut þau 1903 fyrir uppgötv-
anir sínar í læknisfræði, sem orðið hafa mannkyn-
inu til margskonar heilla. Skulum vér í því sam-
bandi minnast þess, að íslendingar geta verið hlut-
gengir á vettvangi annarra andlegra afreka en skáld-
skaparins eins, þótt ýmsir telji hann hina einu
framavon þjóðar vorrar á alheimsmælikvarða.
Síðustu mánuðir ársins 1955 færðu þjóð vorri
mikla sæmd, en ekki var liðin heil vika af árinu
1956 þegar unnið var annað íslenzkt afrek, sem
vakti alheims athygli. Skáksnillingurinn ungi
Friðrik Ólafsson komst þá í fremsta sæti í skák-
keppni í Hastings á Englandi, þar sem nokkrir af
fremstu skáksnillingum heimsins þreyttu íþrótt
sína. Með slíkum mótum er fylgzt hvarvetna í
heimi, og nöfn sigurvegaranna verða samstundis
heimskunn. Friðrik Olafsson var í senn yngstur
allra keppendanna og frá langminnstu þjóðinni.
Hann liafði því langtum minnstan stuðning ráðu-
nauta og hjálparmanna í hinum harða bardaga, og
í upphafi keppninnar var honum spáð 9. sæti, eða
hinu næst neðsta. Þegar á þetta er litið, verður
afrek hans enn meira 02; merkilegra. Það er vitað,
að færni í skák er að vísu ætíð að þakka meðfæddri
snilligáfu, en því aðeins fær sú gáfa notið sín, að
hún sé þjálfuð af kappi og festu, og til slíkrar þjálf-
unar þarf styrka skaphöfn. Afrek Friðriks Ólafs-
sonar verður ekki unnið án mikillar áreynslu og
skapfestu. Það er fullvíst, að skáksigur Friðriks
Ólafssonar í Hastings hefir vakið heims athygli,
2 Heima er bezt