Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 49

Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 49
Nr. 1-2 Heima 47 --------------------------------er bezt---------------------------- gömlum, hálfan Garð í Fnjóskadal. Skal nú lítils háttar litið á þessar átyllur: — 1. Vera má, að Þórkatla hafi verið vinnukona í Garði í Aðaldal á líklegum tíma, áður en Olgeir fæddist (1799), en ekki hef ég fundið heimild fyrir því. 2. Það hef ég heldur hvorki heyrt né séð, að Þórður sýslum. hafi verið „allmjög við konur kenndur". 3. Þó að syslumaður bvggði Olgeir hálflendu af niðurníddri jörð 1823 þykir mér það alls engin átylla í þessu efni. Er mcr kunnugt um, að Þórður sýslumaður byggði ýmsum mönnum jarðir og jarðarhluta án þess, að hann yrði bendlaður við faðerni þeirra leiguliða sinna. Vera má, að einhver orðasveimur hafi gengið í Fnjóskadal um vafasamt faðerni Olgeirs, einkum meðal niðja hans. Slíkt er al- gengt, þegar menn óska að seilast til höfðingsmanna um ættar- sambönd og vilja þá fórna öðrum, sem ritaðir eru ættfeður þeirra. Aftur á móti er ég, sem þetta rita, uppalinn í Aðaldal, rúm- lega hálfri öld eftir fráfall Þórðar sýslumanns. Kynntist ég þar í æsku ýmsu fróðu og langminnugu fólki, er mikið talaði um þennan höfðingja sveitarinnar og héraðsins. Fllustaði ég oft á þær utnræður, en aldrei heyrði ég þar getið þeirrar grunsemdar, að Olgeir í Garði ætti að vera sonur Þórðar sýslumanns. Heíði það þó varla legið í láginni, ef það hefði orðið hljóðbært í Aðal- dal. Þessarar grunsemdar varð ég fyrst var, eftir að ég fluttist til Akureyrar árið 1930. Sr. Asmundur segir (á bls. 187): . „Við faðerni sveinsins (þ. e. Olgeirs), gekkst Árni Sigurðsson, Guðmundssonar.... Árni þessi mun þá hafa verið ókvæntur." — Að Árni hafi þá verið ókvæntur, er fjarri öllum sanni, því að hann hafði þá eignazt a. m. k. 4 börn með konu sinni, Sigríði Þorsteinsdóttur, og þykir mér líklegt, að hann hafi búið með henni á Þverá í Reykjahverfi um það leyti, sem Olgeir kom til sögunnar. Nokkuð er það, að fleiri börn Árna en Olgeir eru fædd á Þverá. — Árni var af góðum ættum, og geta niðjar Olgeirs vel unað við ættlínur hans. — Eftir aldamótin 1800 bjó Árni á hluta af Ljósavatni, svo á Arnstapa og síðast á Hall- dórsstöðum í Kinn. Þar segir prestur hans um hann: „Les vel; góðvikinn; vel kunnandi." Of mikið er gert úr hrakningi þeirra tnæðgina, Þórkötlu og Olgeirs í uppvexti hans. Frá Þverá í Reykjahverfi fluttust þau að Austari-Krókum, góðu heimili, til Jóns Þorkelssonar, er þar l)jó lengi, og konu hans, Guðrúnar Sigurðardóttur, er var föður- systir Olgeirs. Þar hefur Olgeir alizt upp með móður sinni og hjá föðursystur sinni a. m. k. til 10—11 ára aldurs. En úr því hefur hann farið að vinna fyrir sér sjálfur eftir sögn sr. Þorsteins Pálssonar á Hálsi i líkræðu Olgeirs, eins og sr. Ásmundur tilfærtr (sjá bls. 188). Fleiri athugasemdum bæti ég ekki við. En óhætt mun eigendum bókarinnar að merkja við Jrau missmíði í henni, sem hér er var- að við. Bók þessi er með mörgum fallegum myndum úr ættinni og af ættstöðvum sr. Ásmundar. Hún er prentuð í Prentverki Odds Björnssonar og er, eins og vant er þaðan, ágætlega úr garði gerð að prentun, pappír og bandi. Þó hefur prófarkalestri verið eitt- hvað áfátt, því að slæðzt hafa inn í hana nokkrar óviðkunnan- legar prentvillur. Konráð Vilhjálmsson. Þjóðvinafélagið og Menningarsjóður. Þjóðvinafélagið er eitt elzta og virðulegasta útgáfufyrirtæki landsins. Áratugunr saman gaf það út hin ágætu rit sín, Alman- akið, sem vinsælast hefur orðið íslenzkra tímarita, og Andvara, sem flutt hefur fleiri gagnmerkar ritgerðir en nokkurt annað ís- lenzkt tímarit. Auk Jtess gaf féiagið um langt skeið út hið vinsicla rit Dýravininn, auk fjöldamargra annarra rita, frumsaminna og þýddra. Fyrir allmörgum árum sameinuðust Þjóðvinafélagið og Menningarsjóður um bókaútgáfu. Jókst útgáfan þá að miklunr mun, og hafa félagsbækur þessa fyrirtækis um langt skeið verið ódýrustu bækur á markaðinum. Stefnumið útgáfunnar hefur og verið að gera hverju heimili kleift að eignast nokkurt safn bóka við litlu verði, og jafnframt að sameina íslenzka menningararf- leifð við erlend fræði og skáldskap. Allt um þann góða tilgang má samt deila um, hversu lieppilega bækur þær, er félagsmenn liafa fengið fyrir áskriftargjald sitt, hafa verið valdar. Enda er eríitt að gera svo öllum líki. En hinu verður ekki neitað, að rnargar góðar bækur hafa verið meðal þeirra, og þótt ekki hefði verið annað en Almanakið og Andvari, væri áskriftargjaldinu vel varið. Hér skal nokkrum orðum farið um ársbækurnar 1955. Almanakið er með sínum fasta búnaði. Til athugunar gæti komið, að breyta formi þess, og hygg ég það yrði ekki óvinsælt. Auk hinna föstu þátta, Árbókar, sem Ólafur Hansson skrifar, og yfirlits úr Hagskýrslum, er Klemenz Tryggvason tekur saman, skrifar Þórir Baldvinsson um tvo arkitekta og Þorkell Jóhannes- son langa og skilmerkilega grein um Tryggva Gunnarsson. Ymis- legt smávegis er og í Almanakinu til skemmtunar og fróðleiks, eins og að undanförnu. Andvari hefst á ágætri ævisögu Guðmundar Björnssonar land- læknis eftir Pál Kolku lækni. Er hinum merka manni, Guðmundi landlækni, lýst svo vel, að vafasamt er, hvort betur verði gert í svo stuttu máli. Barði Guðmundsson heldur enn áfram ritgerðum sínurn um höfund Njálu, og eru tvær greinar um það efni í heft- inu. Kemur þar margt fram skemmtilegt og nýstárlegt, eins og í hinum fyrri greinum Barða um þetta efni, t. d. líkingin á frá- sögninni af Njálsbrennu og Flugumýrarbrennu. Segir Barði svo vel frá og er svo rökfimur, að ánægja er að lesa greinar hans jafnt fyrir ósögulærða menn sem fræðimennina. Þá eru í þessu Andvarahefti ritgerð um Magnús biskup Gissurarson eftir Björn Þórðarson. Er hún þurr á bragðið en fróðleg, og önnur grein um nýfundin hebresk handrit og sögu Essena eftir Þóri Kr. Þórðai- son. Mun mörgum þykja fróðlegt að kynnast þvi efni, því að lítið er ritað á íslenzku um trúarbragðasögu. En þó að allar greinar Andvara séu merkilegar og læsilegar, þá er ritið samt of einhæft. Ættu aðstandendur þess að taka til alvarlegrar athugunar, hvort ekki væri unnt að skapa þar meiri fjölbreylni án þess að slegið væri af gæðamati. íslenzk úrvalsrit. I þeim flokki koma nú Úrvalsljóð Gísla Bryn- jólfssonar. Eiríkur Hreinn Finnbogason hefir valið kvæðin, og skrifar hann alllangan formála um Gisla og skáldskap hans. Er þar margt vel sagt og ýntis fróðleikur á borð borinn, sem ekki liefur verið á almannavitorði, enda hefur minningu Gísla ekki verið svo uppi haldið sem sómdi gáfum hans og mannkostum. Er vonandi, að þessi formáli og ljóðaúrval bæti þar nokkuð úr skák. Þetta er 14. ritið í bókaflokki þessum. Vissulega má um það deila, hvort útgáfa þessi nær þeim tilgangi, sem henni var ætlað, að kynna og halda uppi tengslum almennings við hinar eldri is- lenzkar bókmenntir. Ég efast um, að svo sé. Og grunur minn er sá, að vænlegra vani í Jrvi efni að gefa út heil rit en úrvöl þessi, Jrótt vel takist urn þau. Lönd og lýðir. I þeim flokki skrifar Ástvaldur Eydal rit, sem heitir Jörðin. Fjallar það um almenna landafræði, Rit þau, sem áður hafa birzt í þessum flokki, hafa öll verið læsileg, en deila
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.