Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 41

Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 41
Nr. i-2 Heima 39 --------------------------------er bezt---------------------------- brosa og ók bifreið lögreglustjóra aftur á bak út á götuna. í þessum svifum var bifreiðinni gráu ekið eftir krókaleiðum um landsvæði, sem fór smáhækkandi, en með djúpum lægðum á milli. Glenn Griffin sat við stýrið í snjáðum samfestingnum. af bóndanum. Roskni maðurinn sat við hlið hans og kýtti hrika- legt höfuðið niður á milli mikilla axlanna. Dreng- urinn, bróðir Glenns, lá flötum beinum aftur í, gróf höfuðið niður í sætið og lá með aftur augun. En Hank Griffin svaf samt ekki. Hann minntist þess, er hann varð að skríða á maganum í myrkr- inu meira en hundrað metra yfir bersvæði, þar sem fangelsismúrarnir og varðturnarnir voru í baksvið- inu. Hann lifði upp aftur þennan fífldjarfa flótta þeirra þremenninganna gegnum myrkan skóginn. Hann var allur hruflaður á bringunni, skyrtubrjóst- ið í tætlum og blóðugt. Skurður var á enni hans, og hann verkjaði í hann. En þó var verst af öllu, að hann skyldi skjálfa. Nú, þegar hann gat ekki lengur lieyrt ískrandi hvininn í flautunum, sem vöktu dauðans ótta, ímyndaði hann sér, að hann heyrði liáreysti frá fangelsismúrunum. Þreklegur og þétt- vaxinn líkami hans tók að nötra, það fóru kippir um hann allan, og hann hafði ekki önnur tök til að hafa hemil á þessum ósjálfráðu hreyfingum en að bíta sem fastast á jaxlinn, liggja hræringarlaus og reyna að hlusta á viðræðu þeirra Glenns og Robish í framsætinu. „Þú ekur samt í suður,“ umlaði Robish önugum bassarómi. „Indianapolis er í norðausturátt héðan.“ „Já, ég ek dálítið í suður,“ sagði Glenn Griffin hressilega. Það mátti heyra á mæli hans, að hann var gleði drukkinn, hið nýheimta frelsi gaf hverju hans orði nýjan hljóm, og Hank hreifsí af þessu og var sem lieit fagnaðarbylgja færi um hann allan. „Sagðir þú ekki, að Lamar væri í Indianapolis? Með hafurtaskið?" „Hún fór þaðan í vikunni, sem leið. Til Pitts- burgh. Ef þeir geta ekki haft upp á henni í Indiana- polis, mun mesti móðurinn renna af þeim. Þeir finna hana ekki.“ „Hvern fjandann eigum við svo að fara?“ „Til Indianapolis,“ sagði Glenn með stökustu ró, en honum tókst ekki að leyna hlátrinum í röddinni, og það varð til að espa Robish upp. „Þú manst víst, að ég á nokkurt erindi þangað. En við ökum ekki beint inn í gildru, sem okkur er búin hér vestar, kunningi. Við tökum okkur stóran sveig og komum inn í borgina frá norðaustri einhvern tímann í dag.“ „Og hvað tekur svo við?“ „Þá verðum við okkur úti um viðkunnanlegan stað. Og svo kemst ég í samband við Helenu.“ „Viðkunnanlegan stað, — hvar?“ „Gildir einu, hvar hann gefst, Robish. Aðeins ekki gististað, því að á þeim munu þeir hafa nánar gætur. Heldur ekki veitingahús. Okkur ríður á að finna snoturt, kyrrlátt heimili í þokkalegri og kyrr- látri götu í útjaðri borgarinnar, þar sem önnur hús eru ekki í nánd. Þetta má gjarna vera stórt hús með þægilegum húsgögnum, heimili alúðlegs fólks, sem kann að hræðast, heimilisfaðirinn blessaður ein- feldningur, sem fer til vinnu sinnar daglega, og svo er ekkert móti því, að eitt barn sé á heimilinu. Sem sagt: við verðum að finna stað, sem kemur okkur til að gleyma fangelsislyktinni.“ „Og livað svo?“ „Nú, svo bíðum við.“ „Og hve lengi?“ „Þangað til Helena kemur frá Pittsburgh. Haltu þér svo saman, Robish, og lofaðu mér að njóta frelsisins." Hank heyrði, að Robish bölvaði lágt. Hank varð að láta Glenn um þetta, og sjálfsagt gæti hann haft stjórn á Robish. Fyrst hafði komið urgur í Robish, er þeir neyddust til að fleygja fangabúningnum, en Glenn lét sem hann heyrði ekki nöldrið. Honum •skyldi ekki verða skotaskuld úr að útvega föt, þegar þess gerðist þörf, góð föt meira að segja. En þangað til var réttast að láta ekkert á sér kræla. Og svo hafði Robish kvartað yfir því að hafa enga skammbyssu; honum þótti sem hann væri svo varnarlaus svona. Og hvað tæki svo við, ef þeir létu nú króa sig inni einhvers staðar? Glenn hafði svarað því til, að engin hætta væri á því. Og að því er skammbyssuna varð- aði, þá gátu þeir ekki lagt í hættu að komast yfir slíkan grip og koma þannig ofsóknarmönnunum á slóðina. Auk þess hafði Glenn skammbyssu, — skammbyssu nr. 0.38, er hann hafði rænt fanga- vörðinn, sem nú dvaldist á sjúkrastofu fangelsisins með dalaða höfuðkúpu, ef hann þá hafði sloppið svo vel. Taktu lífinu nú rétt, Robish, og reyndu að njóta þess. En Hank gat ekki losað sig úr viðjum óttans. Hann starði fram fyrir sig og reyndi að gera sér í hugarlund eitthvert heimili, sem áþekkast því, er Glenn hafði minnzt á. Eftir klefavist, hringl í lás- um, hörð steypugólf og járnbekki, gerði liann sér í hugarlund, hvernig það mundi vera að fá nú aft-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.