Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 18
16 Heima Nr. 1-2 --------------------------------er bezt---------------------------- Sönnun á velgengni. Bifreiðin kostar 7.000 sterlingspund, er ein af nýjustu gerðum frá Mercedes-Benz verksmiðjunni, og ungfrú Sagan er að hugsa um að kaupa hana. veitt hæstu verðlaun, sem Frakkar veita fyrir bók- menntir, og í Hollywood var keyptur réttur, til þess að gera eftir henni kvikmynd. Og auðvitað hefir hún aflað höfundinum of fjár — sem hún bersýni- lega eyðir í kappakstursbíla. Eftir að ég las bókina, hafði mig alltaf langað til að hitta höfundinn. Söguhetjan, Cecile, sautján ára gömul stúlka, er í sumarleyfi í Suður-Frakklandi með föður sínum, fríðum, glaðlyndum ekkjumanni, og lifa þau lífinu saman í ábyrgðarleysi. En þá verður faðirinn ástfanginn, og stappar nœrri, að hann kvænist Önnu, fallegri, venjulegri, miðaldra konu, af allt öðru sauðahúsi, sem hefir mjög ólikan siðferðilegan mœlikvarða á hlutunum. Hinu kæru- leysislega lífi föður og dóttur er stofnað i voða. Anna kemur Cecile í skóla, og upp frá því er eilifur eldur á milli þeirra. Á endanum ber Cecile sigur úr býtum. Slíkar bækur skrifa Frakkar svo vel, og dá svo mjög — skrifaðar af næmleika, fágaðar á yfirborð- inu, og áherzla lögð á skaplyndi manna og blæ- brigði í sambandi þeirra, fremur en miklar geðs- hræringar og sorgarleik. En hvers vegna hafði hún skrifað hana? Hvernig var hún, þetta undrabarn? Af hvaða fólki var hún komin, hvers konar lífi lifði hún, hvaðan hafði hún fengið uppistöðuna í skáldsöguna? Umfram allt, hvaða áhrif hefir svo ótrúleg velgengni haft á stúlku á þessum aldri? Ég hitti hana fyrst heima í íbúð foreldra sinna — stórri, þægilegri íbúð, þar sem ekkert vantar og heldur ekki þjónustustúlkur og mömmu, sem lítur eftir öllu. Faðir hennar er ríkur, vel metinn kaup- sýslumaður af miðstéttinni. Eldri bróðir hennar er einnig kaupsýslumaður. Systir hennar er komin í örugga höfn, gift og á tvö börn. Satt að segja, er það sem á bak við liggur hjá þessum gáfaða, napur- yrta rithöfundi, ósköp venjulegt. Hún kom seint heim — smávaxin, taugaóstyrk, þögul stúlka. Naumast er hægt að segja, að hún sé fríð sýnum, en hinn niðurbældi yndisþokki í svip hennar er aðlaðandi eiginleiki, sem verður minnis- stæður. Hún reykir án afláts — eins og sá, sem varla veit, hvernig á að reykja, blæs reyknum strax út og held- ur vindlingnum varlega fyrir framan sig. Seinna var mér sagt, að hún eyddi miklu fé í fatnaðarkaup. í tvo daga sá ég hana samt aldrei í öðru en ullar- dúkspilsum og poplíntreyjum, sem ekki var laust við að væru krumpaðar. Enga skartgripi, enga hanzka, engan hatt og hún var jafnvel sokkalaus. En það lét hún mig vita, að pilsin hennar væru keypt í einni af dýrseldustu verzluninni í París. Hvorki frægð né fé virðist hafa breytt miklu í lífi hennar. „Sjáið þér til, ég hefi ávallt haft yfrið nóg. Ég hefi búið heima hjá foreldrum mínum, og þau hafa séð mér fyrir því, sem ég hefi þarfnazt. Þau gera það enn. Það væri tilgangslaust, að ég færi að kaupa mér hús — of mikið að sjá um, og ég er of ung til þess að búa ein.“ AMERÍKUFÖR „En ég get keypt bíla, sem ég er afar hrifin af, og ég get ferðast,“ bætti hún við. „í fyrra bauð ég mömmu minni og systur með mér til Bandaríkj- anna.“ í New York var hún hyllt sem snillingur í tíu daga. Þá flýði hún upp í sveit — þoldi ekki lengur ameríska gestrisni og ljúfmennsku. Mig langaði til þess að taka af henni nokkrar myndir þetta kvöld, þegar hún færi út að dansa með ungum vini sínum í einhverjum næturklúbbn- um á Vinstri bakka Signu. „Mér þykir það leitt, en það er ekki hægt,“ sagði hún. „Hann mundi ekki fella sig við það, og ég ekki heldur. Sjáið þér til, þegar ég er með kunningjum mínum, tölum við ekki um orðstír minn. I þeirra augum er ég rithöfundur — ekki víðfræg stúlka.“ Ég spurði hana, hvað hún hefði núna á prjón- unum. „Aðra skáldsögu — en ég er alveg ótrúlega Franyhald á bls. 45. Til hægri: Rithöfundurinn að skemmta sér i nœturklúbb á Vinstri Bakka Signu. Úr þessu umhverfi fœr hún hugmyndir í hinar vinseelu skáldsögur sínar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.