Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 54
]) Mikki flaðrar upp um mig með há-
væru gelti og ég faðma hann allshugar
feginn. Síðan heilsa ég vini mínum,
prófastinum, með virktum, en hann er
nú kominn til að hjálpa mér til að ná
rétti mínum.
2) Réttarhöldin yfir Lang og Krans
eiga nú að fara að hefjast. Fjárhaldsmað-
ur minn lofar að gera allt sem í hans
valdi stendur til þess, að ég fái fulla
uppreisn. Einnig lofar hann að gera
allt sem hann geti fyrir Villa.
3) Hálfur mánuður líður tíðindalaust,
en einn góðan veðurdag kemur prófast-
urinn til að láta okkur heyra málalokin
og er himinlifandi: Eg hef fengið fulla
uppreisn, og hvorki ég né Villi þurfum
altur til uppeldisheimilisins.
4) Ég fer nú með fjárhaldsmanni mín-
um heim á prestssetrið, en áður hef ég
kvatt Villa með kærleikum. Hann hefur
reynzt mér sannur vinur og við lofum
hvor öðrum að skrifast á.
5) Það verða fagnaðarfundir, er ég kem
heim á prestssetrið og hitti fósturmóður
mína. Nú get ég einnig frætt Línus á
því, að hann þurfi ekki lengur að óttast
grunsemdir lögreglunnar. Gleðst hann
innilega af þessum fréttum.
6) Nú líða nokkrir friðsamir dagar. En
þá segir prófasturinn mér, að kona nokk-
ur hafi í höndum skjöl, sem sanni, að
ég sé sonur hennar, sem hafi horfið. Seg-
ir hann, að hún muni brátt koma til að
sækja mig.
7) Nokkrum dögum seinna kemur svo
konan. Hún kynnir sig og segist heita
frú Myring. Til þess að koma í veg fyrir
allan mótþróa af okkar hálfu, hefur hún
með sér tvo hrausta leynilögreglumenn.
8) Ég get ekki trúað því, að þetta sé
móðir mín. Mér getur ekki fundizt
þessi hörkulega kona með skerandi rödd-
ina aðlaðandi. Hún er reglulega frá-
hrindandi.
9) En mér er nauðugur einn kostur að
fylgjast með henni, því ég get ekki bar-
izt við lögin. En Mikka fæ ég ekki að
hafa með, svo að prófasturinn lofar að
annast hann fyrir mig.