Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 8
6 Heima Nr. 1-2 --------------------------------er hezt --------------------------- til guðs með hrópi konunnar, en ekki annarra fjær- staddra manna. Skáldi er léð sú náð og lögð er á það sú kvöð, að varðveita frumtjáningu sína og miðla henni í lærðri tjáningu, svo sem mæltu máli. Því getur listaskáldið heldur ekki blekkt neinn með ósannindum fremur en hjartsláttur, andardráttur eða raddhreimur eða hver frumtjáning önnur. Tjáning skáldsins er innsti kjarni þess, lifandi uppspretta, sem streymir fram og er skylt að streyma fram. Vald listaskáldsins á máli er slíkt, að við njótum listar þess án þess að nokkur flytjandi blandi saman við hana frumtjáning sinni. List skáldsins neytir kosta málsins af rökvísri hugsun og lifandi, frum- stæðri tilfinningu, og bundið mál íslenzkt býður marga en stranga kosti. Skáld okkar hefur tekið þeim kostum í einfaldleik æðstu listar. En 'enginn verður skáld af tœkni eða kunnáttu einni saman. Enginn verður skáld af lærdómi í að- ferð eða athugun, listgáfuna tekur enginn hjá sjálf- um sér, hún er áskapaður hæfileiki, hún er náðar- gjöf. Hennar nýtur sá einn, er getur innsta eðli sitt eitt til vegar spurt. Því aðeins vaknar frumtjáning, að undir ólgi. Því aðeins hlýtur frumtjáning listrænt snið, að úr ein- hverju sé að vinna, svo að orki á aðra, barnið sem spekinginn, með jafn sannfærandi afli og uppruna- legu og hjartsláttur eða andardráttur. Frá upphafi vega hafa innblásin skáld kennt þess, að þau voru í náð. Æðsti guð gaf þeim íþrótt vammi firða, hann gaf þeim guðmóð, l'ann var í þeim, og skáldið lirópar Heill þeim, sem náðar nýtur. Þegar skáldið minnist svefnrofa sjálfs sín í brjósti barns eða unglings, kennir hinn þroskaði ungi ntaður þess, að Guð var að vekja sveininn. Og hann vakti sveininn til sífelldrar leitar og sveinninn játar með heilli samvizku: Eltir köllun og boði guðs hef ég gengið, enda er leitin mikilvæg, því að leita er að þroskast í Drottins nafni. Hið innblásna skáld okkar er þakklátur þiggjandi og hógyœr fyrir guði listar sinnar. Hann veit, hvers vert það er að njóta náðar, og sá einn á mikið, sem mikið hefur þegið. Allt líf er guðleg gjöf, öll gæfa liimnesk náð. Fyrir náð þessa guðs er ljúft að fórna öllu. Skáld- ið biður guð sinn: Tak gimsteina mína, en lát þú mig orð þín skilja — — — leið mig við þína hlið, og anda í brjóst mitt afli og guða vilja. Guðmóði gætt kennir skáldið helgi gáfu sinnar, því er listin heilög. Skilningurinn á helgi skáldlistar hefur jafnan verið ljós smáþegnum sem jörlum í ríki hennar. Þeir, sem brutu gegn þeirri helgi, guldu þess jafnvel með missi gáfunnar. Þjóðskáld okkar minnist eldra þjóðskálds og fátæks á veraldarvísu: Hann erfði hvorki gull né gimsteinasafn, græna skóga né tigið ættarnafn, hann hlaut annan og margfalt meiri arf, máttinn til þess að vinna heilagt starf. Ég hygg, að það sé ekki missagt, að þjóðskáldið mæli þau orð af sjálfs sín hjarta.er það leggur Bjarna Thorarensen í munn í ræðum við Sölva Helgason: „Mér er óljúft að ræða við aðra um skáldskap minn. Hann er mitt hjartans mál. Um hann tala ég aðeins við Guð og sjálfan mig. . . . Vissi hann, að Sölvi átti sér líka hjartans mál, sem honum var við- kvæmt og heilagt eins og skáldinu óður sinn?“ Oður skáldsins er hymnus, lofgjörð af lotningu og ást: Eg beygi kné mín og blessa þig, móðir jörð. Eg blessa þann mátt, sem gæddi þig lífi og anda. Hver hugsun mín er þúsundföld þakkargjörð. Og skáldið flytur jörð, sæ, sól himins og heil- ögum eldi lofgjörð sína, móðurinni, spekingnum, dýrlingnum, en ekki sízt hendinni, sem hamrinum lyftir og er hafin af innri þörf: af líknsamri lund, sem þráir að létta annarra störf. Skáld lotningar og ástar er líka skáld lífsjátningar og fagnaðar og óskastunda. Hver sál er heit af þakk- argjörð, ög allir lifa óskastund, sem elska bjartar nætur. Stundunr virðist lífsfögnuðurinn gálauslegur, en fylling og dýpt stundarkenndar getur verið svo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.