Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 6
TIL LESENDA „HEIMA ER BEZT“ hefir nú eins og áður var tilkynnt skipt um heimili, eiganda og ritstjórn. Þeim umskiptum er það að kenna, að fyrstu hefti árgangsins verða síðbúnari en ætlað var, með því að vistaskiptum fylgir ætíð nokkurt umstang, en þess væntum vér, að slík seinkun þurfi ekki að koma oftar fyrir. Þótt ritið hafi haft vistaskipti, og eins og sjá má, skipt að nokkru leyti um ytri búnað, þá er ætlunin, að það haldi í megindráttum sömu stefnu og fylgt hefir verið frá upphafi, þ. e. að höfuðkjarni þess verði innlendur fróðleikur um menn og málefni, þjóðhætti og þjóðleg fræði að við bættri. náttúru landsins. Einnig greinar um forystumenn á ýmsum sviðum. Þó er það ætlun vor, að hafa efnið nokkru fjölbreyttara en verið hefir, með því að flytja einnig nokkuð af erlendu efni til skemmtunar og fróðleiks, þar á meðal framhaldssögur, sem fyrst og fremst verða valdar til skemmtunar. Þá verða og fluttar umsagnir um bækur eftir því sem þær berast, og væntum vér að útgefendur minnist þess. Það er trúa vor, að rit eins og „Heima er bezt“ fylli skarð í hópi íslenzkra tímarita, þótt þau að vísu séu ærið mörg. Ritið hefir þegar haslað sér völl á sérstöku sviði, sem ekki þarf að lýsa nánar fyrir lesendum þess. Og þótt nokkru verði þar við aukið, þá leitar það ekki inn á umráðasvæði ann- arra. Það vonast eftir að haflda sínum eigin reit, svo að hann sé til gagns og ánægju lesendunúm, og að þar verði hlúð að þeim verðmætum, sem ekki mega glatast. Það vill einnig sem fyrr vera vett- vangur þeirra, sem frá mörgu kunna að segja, en gera sér annars ekki tíðförult með frásagnir sínar til blaða eða tímarita. Ætlum vér að hinum fyrri lesendum ritsins muni það vel líka, að efni þess verði sótt til fleiri sviða. Margir eru þeir víðsvegar um land, sem á undan- förnum árum hafa sent „Heima er bezt“ e.fni til birtingar. Væntum vér þess, að þeir haldi áfram tryggð sinni við ritið, og láti það njóta þess, sem þeir eiga í pokahorninu af skemmtun og fróðleik, er það ritinu mikils virði, til þess að geta haldið fram stefnunni sem verið hefir. Allt þjóðlegt efni er þakksamlega þegið, söguþættir um menn og at- burði, sagnir af þrekraunum, fyrirburðum, þjóð- sagnir o. s. frv. ennfremur smellnar stökur og lausa- vísur, svo sem verið hefir að undanförnu. Sakir síhækkandi verðlags á öllum hlutum höfum vér séð oss tilneydda að hækka áskriftarverð ritsins upp í kr. 80.00 og lausasöluverð einstakra hefta í kr. 10.00. Efni í ritið, bækur til umsagnar svo og annað, er snertir innihald þess sendist til ritstjórans, Stein- dórs Steindórssonar, Pósthólf 66 Akureyri, en öll erindi um fjármál og afgreiðslu til útgefanda, Prent- verks Odds Björnssonar, Akureyri. Óskum vér svo öllum landsmönnum árs og friðar og væntum góðrar samvinnu og samstarfs í fram- tíðinni. ÚTGEFENDUR. VERÐLAUNASAMKEPPNI fyrir AHUGALJOSMYNDARA „Heima er bezt“ hefir ákveðið að efna til verðlaunasamkeppni fyrir áhuga- ljósmyndara. Veitt verða þrenn verðlaun fyrir beztu ljósmyndir. Ljósmynd- iinar þurfa á einhvern hátt að minna á vetur á tslandi. Þær eiga að vera 8i/2 cm á breidd, „svartar og hvítar" og helzt á glansandi pappír. Filman þarf að fylgja með myndinni. — Með hverri mynd þarf að fylgja stutt gieinargerð (allt að 100 orð), sem sé nánari skýring á myndinni. Verðlaunamyndirnar munu birtast í „//eirrta er bezt“ og áskilur tímaritið sér einnig rétt til birtingar á þeim myndum sem berazt, enda þótt þær hljóti ekki verðlaun. Munu eigendur þeirra mynda fá greidd venjuleg birtingarlaun. Myndirnar mega ekki hafa birzt á prenti áður. MYNDIRNAR ÞURFA AÐ HAFA BORIZT TÍMARITINU FYRIR 15 MAÍ 1956 V J 4 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.