Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 36
34 Þetta er þó bara skratti löguleg hnáta, og ætti ekki að vera í vandræðum með að fá lagsmenn við sitt hæfi. Lágvaxin, dökkhærð, þéttholda hnyðra, fjörleg, liispurslaus og sennilega lífsreynd í bezta lagi. Full- komin andstæða mágkonu minnar. Bróðir minn hafði ekki hlífst við, að taka dæmi hreint og beint af sjálfum sér. Já, hún mundi lík- lega vera nokkuð útundir sig, stúlkan. Líklega mundi ráðning gátunnar sú, að hún sé svo lífsreynd, þrátt fyrir ungan aldur, að hún kæri sig ekki um aðra en þroskaða og veraldarvana menn. Það gæti verið ómaksins vert, að kynnast slíkum kvenmanni, já, í rauninni töluvert freistandi. Það má ef til vill með sanni segja, að maður eigi á baki að sjá æskunni, með öll sín tækifæri. En það er þó fjandi hart, ef maður er þar með öllum heill- um horfinn. Nú — og úr því, sem komið er, mun nú líka stúlkukindin sennilega þurfa huggunar við. Egyptmn Framhald af bls. 26. legri staður er til á jarðriki. Ekkert minnismerki mun auðkenna hvílustað minn. En ekkert getur þaggað niður í rödd hjarta míns. Líf mitt hófst — eins og því er að Ijúka nú — i algerum einstæðingsskap. Aleinn barst ég með straumi Nílar — i bikbornum sefbát, er var saman- bundinn með fuglasnöruhnútum. Sú venja var við- höfð i Þebu, til þess að losna við börn, sem voru fœdd i óþökk foreldra sinna Oft höfðu hin aldurhnignu hjón, Kípa og Sen- mút, er höfðu alið hann upp sem sinn eigin son, sagt frá því, hvernig þau fundu hinn ótrausta sef- bát — hvernig Kípa hafði sagt lágum rómi: „Guð- irnir hafa bænheyrt okkur. Þeir hafa sent okkur son.“ Visnir fingurnir hikuðu, áður en þeir gripu ritil- inn á ný. „Ekki höfðu þau grun um,“ skrifaði hann, „hvaða böl þessi gjöf guðanna mundi færa þeim Joseph Hayes, höfundur framhaldssögunnar „Þrír óboðn- ir gestir" er kunnur blaðarnaður og rithöf- undur í Ameriku. Síðan 1943 hefir hann einkum ritað útvarps- og sjónvarpsþætti og smásögur. Sagan „Þrír óboðnir gestir" var mikill sigur fyrir höfundinn. Hún varð strax metsölubók og valin meðal bóka The Literary Guild bókaklúbbsins. Sneri þá höfundurinn henni í leikrit, og var það sýnt við feikna aðsókn á Broadway. Dómar blaðanna um leikinn voru mjög góðir, og kom öllum saman um, að leik- ritið væri í senn svo spennandi, að naum- ast yrði lengra komizt, en auk þess ritað af sálfræðilegri nærfærni, bæði um gestina þrjá, hina flýjandi fanga, og þó einkum Hilliardfjölskylduna, sem fyrir heimsókn- inni verður. Síðan hefir sagan verið kvik- mynduð, og einnig í því formi notið mik- illa vinsælda. Myndir þær, sem hér fylgja, eru allar úr kvikmyndinni. Kristmundur Bjarnasori þýddi með leyfi höfundar. Söguþráckirinn Glenn og Hank Griffin og glæpafélagi þeirra, Robish, eru á flótta frá ríkisfang- elsinu. Þeir velja sér heimili Hilliardfjöl- skyldunnar í kyrrlátu úthverfi Indiana- polisborgar sem felustað. Þeir neyða fjöl- skylduna til að gegna sínum daglegu störf- um utan heimilisins, eins og ekkert hafi í skorizt, með því að einhverjum meðlimi hennar er alltaf haldið í gislingu í hús- inu. Smám saman ríður lögreglan þéttara net utan um staðinn, sem þremenning- arnir hafa valið sér sem fylgsni, en því meir sem lögreglan nálgast heimili Hil- liards, þeim mun hættulegri verður sjálf- helda fjölskyldunnar. Sagan nær hámarki í nærri óbærilegum spenningi, þegar.... ' '! ' ■: ■ ■ ■ IR JOSEPH HAYES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.