Heima er bezt - 01.01.1956, Blaðsíða 17
Hinn einmana hugsnður situr á bakka Signu. Hún situr og beinir huganum að nýju yrkisefni.
F^rancoise Sagan heitir
franska stúlkan, sem
skrifaði fyrstu skáld-
söguna sína „BONJOUR
TRISTESSE“, átján ára
gömul og varð stórauðug á
því. Rúmt ár er liðið síðan
bókin var gefin út, og sejd-
ist hún strax í risaupplögum
i Evrópu og Ameríku. —
„BONJOUR TRISTESSE"
kom út i islenzkri þýðingu
siðastl. haust undir nafninu
„SUMARÁST". - Brezka
blaðakonan Venetia Murray fór til Parisar, til þess
að sjá, hvaða áhrif frœgðin hefði haft á skáldkonuna.
Einkennilegt var að sjá stúlkuna og bílinn saman.
Hún er greindarleg stúlka, og það er eitthvað við
úfið hárið og látlausu regnkápuna, sem minnir á
Vinstri bakka Signu. En hún sat hokin í kapp-
akstursbíl, er kostaði 7.000
ensk pund, og var að velta
því fyrir sér, hvort hún ætti
að kaupa hann. Hún hafði
skilið Jaguarbílinn sinn eft-
ir í Suður-Frakklandi, af því
að hún vildi komast sem
fyrst til baka, og það var
miklu fljótlegra að fljúga.
Nú þurfti hún að fá sér
annan — en, þegar til kom,
vildi hún ekki þennan. „Það
er ekki hægt að opna þakið,“
sagði stúlkan, sem litur út
eins og hún eigi ekki grænan eyri. „Ég er heldur
ekki viss um, að ég eigi 7.000 pund eins og stendur."
Svona er Framjoise Sagan. Fyrir tveim árum skrif-
aði Fran^oise, þá átján ára að aldri, skáldsöguna
Sumarást, og reyndist hún einn mesti sigur á sviði
bókmenntanna eftir styrjöldina. Fyrir hana voru
Hinn
óframfœrni
höfundur
metsölutókar
Heima er bezt 15