Heima er bezt - 01.01.1956, Side 11
Páll Bergþ órsson
ve&urfrœ&ingur
er feeddur 13. ágúst 1923 i Fljótstungu i
Hvitársiðu og uppalinn þar, stúdent 1944.
Leerði veðurfreeði i Stokkhólmi, en hefir
verið starfsmaður Veðurstofunnar siðan
1949. Veturna 1953—1955 starfaði hann
hjá C. G. Rossby, prófessor i veðurfreeði
við háskólann i Stokkhólmi, en þar eru
gerðar tilraunir með notkun „rafeinda-
heila“ við veðurspár.
Útvarpsþœttir þeir, sem Páll Bergþórs->
son hefir flutt um veðrið nú um nokkurt
skeið, hafa frá því fyrsta notið óvenju-
legra vinseelda um land allt. „Heima er
bezt“ telur sér það þvi mikið happ, að fá
þátt þenna til birtingar, og von um fleira
frá hendi höfundar.
/'
Ajr en við ræðum í einstökum atriðum veðrið
í desember 1955, skulum við að venju lýsa
desembermánuði, eins og hann er að jafn-
aði á íslandi.
Sólin er lægri á lofti en í öðrum mánuðum árs-
ins; þrátt fyrir það er desember ekki kaldasti mán-
uðurinn að jafnaði. Víðast á landinu er janúar eða
jafnvel febrúar kaldastur, þó að munurinn sé ekki
ýkja mikill. En desember hefur ótvírætt einkenni
köldustu mánaða að því leyti, að innsveitir eru mun
kaldari en ströndin. Þetta stafar af því, hvað hafið
er tregt að taka hitabreytingum. Þó að flötur sjávar-
ins kólni, þá kemur jafnharðan hlýrri sjór upp á
yfirborðið úr djúpinu, og sumarylurinn endist lengi
vetrar. Milt sjávarloftið laugar útnes og eyjar, en
inni í landinu getur efsti hluti jarðvegsins kólnað
um mörg stig á einni nóttu. Þess vegna er til dæmis
algengt, að inni á Hólsfjöllum sé 5 stigum kaldara
en úti á Raufarhöfn, þó að á sumrin sé oft hlýrra
inni í landi.
Við suðurströndina er oftast um eins stigs hiti til
jafnaðar í desember, en eins stigs frost í innsveit-
um. Á Norðurlandi er um eins stigs frost við sjóinn,
en 2—4 stig í innsveitum.
VEÐRIÐ í DESEMBER
Úrkoman er mikil í desember í venjulegu ár-
ferði. Mest er hún á Suðausturlandi, jafnvel 200 mm
eða meira á láglendi, en minnkar, þegar vestar
dregur, og verður um 100 mm í Reykjavík og við
vesturströndina, en minni í innsveitum. Á norður-
landi er desemberúrkoman um 50 mm í meðalári.
Sá desember, sem nú er nýliðinn, var kaldur um
land allt, einkum í innsveitum, þar sem hitinn var
allt að því 3 stigum lægri en í meðallagi. Við strönd-
ina var einu til tveim stigum kaldara en í meðal-
desember.
Úrkoma var mikil á Norðurlandi, 70 mm á Akur-
eyri og 133 á Húsavík, mest snjór eins og vant er.
Mest af þesari úrkomu féll síðari hluta mánaðar-
ins, og varð þá snjóþungt og ófærð mikil. í öðrum
héruðum var úrkoman fremur lítil, einkum á Suð-
vesturlandi. í Reykjavík mældust aðeins 39 mm,
77 mm á Suðureyri, 19 á Hæli í Hreppum, 16 á
Hamraendum í Dalasýslu, en 38 í Síðumúla í Borg-
arfirði. Á Egilsstöðum á Völlum mældust 39 mm.
Þó að úrkoma væri lítil um mikinn hluta landsins,
Heima er bezt 9