Heima er bezt - 01.01.1956, Side 35
Nr. 1-2 Heima 33
--------------------------------er bezt----------------------------
Nú skulum við athuga, hvaða gagn bændur gætu
haft af veðurfarsskýrslum til þess að mæta hagleysi.
Þess er þá fyrst að geta, að langhelzta ráðstöfun
þeirra hlýtur að vera fyrirhyggja og varfærni í ásetn-
ingi. Fyrr á tímum var að vísu siður, að fjármenn
mokuðu snjó af þúfum til þess að auðvelda fénu
krafsturinn. Nú mun þetta lagt niður, en óneitan-
lega dettur manni í hug, að oft væru dráttarvélar
betur notaðar til slíkra starfa en til þess að standa
óhreyfðar á veturna. Hvað sem um það er, þá verð-
ur drýgsta ráðið að búast alltaf við versta vetri. En
það er hægara að kenna heilræðin en halda þau,
og víst var mönnum vorkunn fyrr á tímum, þegar
liart hafði verið í ári, þótt þeir tefldu á tæpasta
vaðið. Það var kannski eina leiðin til þess að láta
afurðirnar hrökkva fyrir brýnustu nauðsynjum. Nú
er öldin önnur. Núlifandi kynslóð og sú, sem er
að kveðja, hefur lifað eitt mesta góðæristímabilið í
sögu þjóðarinnar. Veturnir milli 1920 og 1949 voru
svo mildir til jafnaðar, að ég hygg mega leiða rök
að því, að þá hafi ekki þurft að gefa fé meira en
24 þess, sem þurfti á harðindatímabilinu á síðari
hluta 19. aldar. Er augljóst af því, hvílíkum fyrn-
ingum hefur mátt safna á þessum árum, jafnvel þótt
fé væri fóðrað betur og auknar tekjur og tækni
notað til þess að bæta ræktun og heyskap. Þessu
mega Islendingar ekki gleyma, þegar þeir hrósa sér
af afrekum sínum á liðnum áratuafum.
Ég hef gert dálitla athugun á áraskiptum hagans
á Islandi, og mun hún e. t. v. birtast á öðrum vett-
vangi. Samkvæmt því virðist mér, að meðalbónd-
inn geti verið nokkurn veginn öruggur að verða
ekki heylaus nema einu sinni á hverjum 40 árum,
ef meðalfyrningar hans eru jafnmiklar og það hey,
sem hann gefur fé sínu til jafnaðar á vetri hverjum.
Væri fróðlegt að heyra frá gömlum búmönnum,
hvort reynsla þeirra bendir til þess, að regla þessi
fái staðizt. (Flutt í útvarpið 10. jan. 1956.)
Bróöurást
Framhald af bls. 14.
Hún kemur með góðgjörðir á bakka og setur
fyrir okkur.
— Gerið þið svo vel, segir hún. — En hvað þið
eruð alvarlegir og hátíðlegir að sjá. Það er eins og
þið væruð við jarðarför. Hvað kemur til? Hefur
nokkuð komið fyrir?
Það er líklega réttast, að ég taki af bróður mín-
um ómakið, að ljúga að henni í þetta skipti, flýgur
mér í hug, um leið og ég segi:
— O, sei, sei, nei. Það hefur ekkert komið fyrir.
Ég var aðeins að gera tilraun í þá átt, að kristna
manninn þinn í stjórnmálunum, en hann virðist
alveg óbetranlegur.
— Þú getur alveg sparað þér það ómak, segir hún
spotzk og kotroskin. Hann er ekkert óánægður með
sig, og ég er líka hæztánægð með hann svona eins
og hann er. Annars held ég að þú verðir ekki til
þess, að bæta hann á einn eða annan hátt, heldur
hið gagnstæða. Ert það ekki þú, sem hefur æst
upp í honum þetta spilafargan?
Ég forðast að líta á bróður minn og segi aðeins:
— Það er líklega erfitt að sverja fyrir það. En
vertu bara róleg. Þetta eldist af honum, vertu viss.
Við höfum líka komið okkur saman um, að fara
hóflega í sakirnar framvegis.
— Já, það er alltaf hyggilegast, að hætta hverjum
leik, þá bezt stendur, segir hún íbyggin.
Mér verður snöggvast bilt við og lít framan í
mágkonu mína. Grunar hana eitthvað? En í svip
hennar sé ég ekkert annað en brosandi góðvild, og
mér léttir stórum.
Svo höldum við áfram léttu, gamansömu hjali, í
mesta bróðerni, á meðan við drekkum kaffið.
Að því loknu stend ég upp, hveð hjónin með
þakklæti og held heim á leið, léttur í spori.
Ég er gagntekinn af ánægju og samvizkufriði,
eins og vera ber, þegar maður hcfur lokið óþægi-
legu skyldustarfi, með sóma og góðum árangri.
Það er gott, að geta verið öruggur um, að ekki
þurfi að vænta óþæginda af þessu framvegis. En
þó er ekki laust við að ég finni undir niðri ein-
hvern snert af efasemdum. Bróðir minn sagði að
vísu, að nú væri þessu öllu lokið.
En það er bó ekki alveg víst, að hann hafi sagt
mér fullkomlega satt.
Sá möguleiki er til, að hann hafi áformað að
halda áfram að fara á bak við okkur öll, aðeins
lara varlegar í sakirnar.
Hitt gæti líka verið, að hann hefði tekið þessa
ákvörðun upp á sitt eindæmi, þarna á stundinni,
og þá fyrir fortölur mínar. En er hægt að treysta
staðfestu hans, ef mótparturinn leitar fast eftir að
halda leiknum áfram? Það er spurningin.
Ég á annars bágt með að skilja, hvernig hann
bróðir minn hefur farið að því, að koma þessari
stelpu til við sig, eins og hann er þó hæglátur,
óframfærinn og yfirleitt hlédrægur.