Heima er bezt - 01.07.1956, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.07.1956, Qupperneq 8
236 Heima ---er bezt Nr. 7-8 og segi ég þeim það. Þeir spyrja: „Er það rétt, að mikil síld sé fáanleg á Akureyri?“ Eg kveð svo vera. Þeir eru þá að leggja af stað með poka á bakinu að sækja síld til Akureyrar og bera á sjálfum sér út á Upsaströnd, Virð- ist mér þetta sýna glöggt, hversu hart hefur sorfið að. — — Þegar út yfir hálsinn kom, kom ég við á Hálsi og skýrði frá síldarfengnum á Oddeyri, því næst á Hamri, Völlum, Hofi og Ytra-Hvarfi og kom heim fyrir hátta- tíma. En frá bæjum þeim, sem ég kom á, var sendur hraðboði í allar áttir að segja tíðindin. Þegar ég svo vaknaði um morguninn, frétti ég, að áburðarhestar þeir, sem samferðamenn mínir tóku af mér, væru komn- ir heim og þá væru framdælir að leggja af stað að sækja sér síld. Heyrði ég sagt, að um 300 tunnur hefðu verið fluttar í þessari viku frá Oddeyri og hingað út eftir og allt landveg, því að hvergi var fleytt fyrir ís. Síldin var aðallega keypt til manneldis og þeir, sem höfðu einhver lítils háttar heyráð, miðluðu til þeirra, sem voru uppiskroppa. En nú vildi svo lánlega til, að á annan í hvítasunnu rak hval hér á Böggvisstaðasand. Var það hvalkálfur, sem skildist einhvern veginn við móður sína í vök út af Brimnestöng og þvældist inn með fjörunni og inn á Sand. iVIá með fullum sanni segja, að hvalrekinn yrði til að bjarga bæði mönnum og skepnum, því að nú gekk síldin til skepnufóðurs, þeg- ar hvalurinn lagðist mannfólkinu til.------ , Næsta vor, 1888, var mikið ísaár. Var ég þá ráðinn á fiskibát frá Böggvisstaðasandi. Þetta var Hvarfsbátur- inn svokallaði, eigendur hans voru Jóhann á Hvarfi og Jón á Hreiðarsstöðum, en formaður Sigurður Sigurðs- son, lengi nefndur Draupnisformaður, sonur Sigurðar á Hálsi og Böggvisstöðum. Fékk ég boð um að koma til báts sama kvöld og ég kom úr lambarekstri. Var þá ís svo farinn frá, að óhætt var talið að leggja línu. x\fli var einkar góður og ekki sérlega langsótt fyrst framan af, ekki róið lengra en út á Ólafsfjörð. Vertíðin stóð ekki nema eitthvað um hálfan mánuð, þá fór mjög að draga úr aflanum. Ég var svo kenjóttur með svefn, að ég gat aldrei sofið á sjó, en í landi var enginn tínii til svefns, ef afli var góður, því að þá gekk svo mikill tími í að gera að aflanum. Fór svo, að frá sunnudagsnótt seinni vikuna, sem við vorum við róðrana, sofnaði ég aldrei fram á fimmtudagskvöld. Þá hætti úthaldið. Ná- búi minn, Jón Halldórsson á Hjaltastöðum, var á sama bát. Fengum við ferju í Argerði og gengum heim að Hrísum og fengum að leggja okkur þar fyrir. Jón bóndi á Hrísum, tengdafaðir Þorsteins, er þar bjó einn- ig, kvaðst mundu fara á fætur klukkan fimm að morgni að hleypa kvíaám til beitar. Báðurn við hann að vekja okkur, er hann færi á fætur. Við sváfum frammi. Ekk- ert man ég eftir því, er ég var vakinn, og ekkert eftir ferðinni hér fram kjálkann, fyrr en ég varð að vaða Hofsána. Þá fyrst vaknaði ég. Kvaðst Jón ferðafélagi minn oft hafa yrt á mig, bæði er ég vaknaði um morg- uninn og eins á leiðinni, en ég h'efði aldrei neinu gegnt fyrr en í Hofsánni. Ekki varð mér neitt meint við þess^ ar vökur, en fljótt sofnaði ég, þegar ég kom heim, en svaf þó ekki mjög lengi, svona fram um miðjan dag, og var þá vel frískur. Sjómennsku stundaði ég mjög lítið eftir þetta, enda fór ég að verða svo sjóveikur, að ég þoldi alls ekki sjó. VERZLUN FÖÐUR MÍNS 1880 Verzlun var um þetta leyti nær öll sótt til Akureyrar, en Gránufélagið hafði þó tekið upp þá nýbreytni að senda skip með þungavöru út á Böggvisstaðasand. Einnig veitti það þar fiski móttöku. Hér á eftir fylgir til fróðleiks skýrsla um öll verzlunarviðskipti föður míns árið 1880. Hann skipti þá jöfnum höndum við Gránufélagið og Poppsverzlun, og eru viðskiptin á báðum stöðunum dregin saman. ÚTTEKIÐ: 550 pd. rúgur kr. 55.75 175 pd. bankabygg — 26.25 100 pd. baunir — 12.75 9 pd. munntóbak — 18.00 8 pd. rjól — 12.00 10 pd. kaffi — 9.40 5 pd. export — 2.50 9 pd. kandís — 4.50 1 pottur brennivín — 0.85 5 pd. hveiti — 1.25 4 pd. hagldabrauð — 1.00 1 pd. rúsínur — 0.45 1 pd. fíkjur — 0.33 l/, pd. kanel — 0.50 50 pd. hrísgrjón — 8.50 5 pd. sykur — 2.50 Blásteinn og litunarefni — 4.45 13 álnir hvítt léreft — 3.90 1 al. sirs — 0.35 5 dúsín tölur — 0.82 tvænn axlabönd — 2.85 hattur — 3.00 olíukápa — 11.00 sjóhattur — 1.50 silkitvinni og tvinni — 2.55 ritföng — 0.75 trjáviður — 3.90 Peningar — 25.00 greitt einstald. — 55.38 5 ljáblöð — 6.75 naglar og naglajárn — 4.20 91^4 pd. skeifnajárn — 2.23 þrennir ullarkambar — 4.15 1 spaðablað — 1.50 olíulampi — 3.65 sagfíll — 0.55 matskeið — 1.20

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.