Heima er bezt - 01.07.1956, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.07.1956, Blaðsíða 11
Nr. 7-8 Heima 239 --------------------------------er bezt---------------------------- ættu hlífðarföt, er nokkurt hald væri í fyrir rigningu og bleytuhríð. Ekki varð mönnum svefnsamt heldur en fyrri nóttina, en þegar kom fram undir morgun, birti allt í einu upp með sunnan og vestan froststormi. Var þá sveljandalegt að fara út í nepjuna, svo illa sem við vorum á okkur komnir, en hiklaust er lagt af stað, og ekki voru neinar sérstakar torfærur á leiðinni vegna snjóa. Og áfram var haldið, og allir náðu heim til sín fyrr eða seinna mánudaginn 19. september, og varð engum meint af þrátt fyrir allt þetta vos. Af okkur ferðafélögunum er nú einn enn á lífi auk mín, Björn Björnsson í Göngustaðakoti. Ég vil geta þess, að þessi ferð og allt, sem á dagana dreif, tók nokkuð á mig sök- um þess, að ég gat búizt við, að konan mín legðist á sæng að fyrsta barni okkar, meðan ég var í þessari ferð. Enda hafði svo orðið, að okkur fæddist dóttir á sunnu- dagsnóttina, sem við lágum í Glerárrétt, en báðar voru við beztu heilsu, er heim kom. Má geta nærri, hve glað- ur ég varð að sækja svona vel að og ná heim eftir allt þetta amstur. AF BRÚARSMÍÐ Á barnsárum mínum átti ég enga leikbræður og sýsl- aði einn míns liðs. Þótti mér þá betri leikvöllur á svoköll- uðum Lambhúshól norðan við bæjarlækinn. Bæjarlæk- urinn var allvatnsmikill, og komst ég ekki hjálparlaust yfir hann, en þegar dró að fráfærum, var lækurinn brú- aður, svo að mjaltakonur ættu hægara með að bera mjólkina frá kvíunum heim til bæjar. Var ég svo hrif- inn af þessari brúargjörð, að mín bezta skemmtun var að brúa ýmsar smásprænur og jafnvel veita úr lækjum smáseytlum og leggja á þær brýr. Var þar með vakinn áhugi minn á brúargerð. Annað var það, að í fyrsta sinn, sem ég fékk að fara í lambarekstur, tók það mjög á mig, hve illri meðferð mér fundust lömbin verða fyrir, þegar þau þurfti að reka í ýmsar þverár, sem urðu á leiðinni til afréttar. Kom þá í huga minn, hve æskilegt væri, að hægt væri að brúa þessar ár. Átti það síðar fyrir mér að liggja að smíða brýr á nokkrar þeirra og aðrar meiri, sem nú skal greina. Það mun hafa verið haustið 1894, að fyrstu göngur urðu ekki gengnar sökum stórrigningar og vatnavaxta. Næsta dag komust þó göngur á, en vatnavextir voru þá enn nokkrir og töfðu mjög, að féð kæmist á áfanga- staði. Tepptust fjárrekstrar, sem komu framan úr Þver- árrétt í Skíðadal, úti í tungunni milli Skíðadalsár og Svarfaðardalsár, og varð að vakta féð þar í tungunni yfir nóttina. Þetta atvik, held ég, að hafi orsakað það, að ýmsum kom til hugar, að nauðsynlegt væri að brúa Skíðadalsá og Svarfaðardalsá. Mér var þetta eins og öðrum brennandi áhugamál. Hafði ég frétt, að Einar bóndi á Hraunum í Fljótum hefði numið brúarsmíði úti í Noregi og byggt nokkrar stærri brýr í Skagafirði, og skömmu eftir nýár 1895 tók ég mér ferð á hendur vestur í Skagafjörð til að skoða brýrnar, er ég vissi, að Einar hafði gert, bæði á Grafará og Hofsá á Höfða- strönd. Tók ég allnákvæmt mál af þeim, og þegar heim kom, smíðaði ég líkan af annarri og leitaðist við að hafa öll hlutföll í fullu samræmi. Nú var farið að líta eftir, hvar tiltækilegast mundi að brúa árnar, og til frekari tryggingar var Einar á Hraunum fenginn hing- að í dalinn að álíta brúarstæðin. Kom honum alveg saman við okkur, sem höfðum hugsað okkur brúar- stæðin áður fyrr. Sá hann þá líkan það, sem ég hafði gert, líkaði honum það vel, og hvatti hann mig ein- dregið til þess að smíða brýrnar. Var ég mjög hikandi, þar sem ég hafði aldei séð smíðaða brú, og hér voru einnig þau vandkvæði, að sérlega erfitt var að koma þeim á. Þó fór svo, að þetta lukkaðist. Einar tók allt efni til í báðar brýrnar. Hvatti hann okkur til að snúa okkur urn efnisöflun til Kristins Havsteen, sem þá var framkvæmdastjóri Gránufélagsins, því að Einar kvaðst þekkja hann að því, að hann myndi leysa hlutverk sitt vel af hendi, ef hann á annað borð tæki það að sér. Fór- um við nú tveir, Jón Runólfsson á Hreiðarsstöðum og ég, til Akureyrar 30. júní 1895 og sömdum við Kristin Havsteen um útvegun á öllu efni til brúnna. Var hann nokkuð tregur til að byrja með, en þó tókust samning- ar með okkur, og innti hann starf sitt af hendi af frá- bærum drengskap. Efnið, bjóst hann við, að gæti komið í ágústmánuði með millilanda- og strandferðaskipinu „Thyru“, sem þá var hér í förum fyrir Sameinaða danska gufuskipafélagið. Sendi hann svo hraðboða í ágúst hingað út eftir, að nú kæmi efnið og skyldi hann sjá um, að „Thyra“ skilaði því út að Hrísey, þegar hún færi frá Akureyri. En þá yrðum við að vera við- búnir að veita því þar viðtöku. Fórum við ellefu saman hinn 10. ágúst yfir til Hrís- eyjar á tveim sexæringum og fengum leyfi til að skipa efninu þar í land. Fórum við yfir kvöldinu, áður en skipsins var von. Kom það svo tímanlega dags út undir eyna, og við hlupum í bátana og rerum fram til skipsins. Þegar við komum að skipslilið, sjáum við, hvar Kristinn Havsteen stendur við borðstokkinn. Ávarpar hann okk- ur strax og spyr, hvort okkur sé nokkurt kappsmál, að Gisli Jónsson með fyrstu sláttuvélina, sem notuð var.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.