Heima er bezt - 01.07.1956, Page 24

Heima er bezt - 01.07.1956, Page 24
252 Heima Nr. 7-8 I— :----------------------------er bezt----------------------------- legra virtist að tveir færu saman. Auk þess var svo von á Hallgrími Krákssyni Siglufjarðarpósti von bráðar, á leið þangað, uin Ólafsfjörð og Fljót og gat komið til greina að verða honum samferða, þótt hann færi raunar lengri leiðir en mér var nauðsynlegt. Svo kom Hallgrímur í þann mund er veður þótti tiltækilegt. Slógumst við í för með honum og drógum við með honum póstsleðann, sem var nokkuð þungur í byrjun. Fyrsta daginn komumst við út í Svarfaðardal og gistum við tveir hjá frændfólki mínu á Böggvisstöð- um, en Hallgrímur þurfti að skila pósti á Dalvík og gisti annars staðar, en ákveðið var að hittast með morgni. Á Böggvisstöðum var okkur sagt, að Hallgrím- ur færi ætíð svokallaða Reykjaheiði í Ólafsfjörð og Lágheiði í Fljótin og væri það póstleiðin, en hinsvegar væri styttra fyrir okkur að fara Grímubrekkur og Ólafsfjarðarskarð og ákváðum við félagar að fara þá leið á eindæmi, ef Hallgrímur fengist ekki til þess líka. Morguninn eftir var nærri logn, en hríðarslitringur og mjög dimmt yfir. Mættum við Hallgrími á tilteknum slóðum og mæltumst til þess, að hann yrði með okkur, að minnsta kosti í Ólafsfjörðinn. Hann kvað það ekki koma til mála, með því að hann væri bundinn við póst- leiðina og eggjaði okkur mjög á að verða sér samferða, enda okkar leið lítið styttri og mesta óráð fyrir ókunn- uga að fara hana í þessu færi og veðurútliti. Við töld- um hinsvegar okkar Ieið ákveðna og áttum við þá skamman spöl samleið upp á Böggvisstaðadal neðan- verðan, sem Hallgrímur mundi fara upp eftir, en við beygja bráðlega af. Grímubrekkur er brattur og hár fjallgarður (rúmlega 1000 m. hár), milli Svarfaðardals og Ólafsfjarðar, en innar á sama fjallgarði, heitir Reykjaheiði, fullt svo há, en tæpast eins brött. Sé hún farin, er gengið inn Böggvisstaðadal, þaðan upp á hciðina og komið niður að Reykjum, innst í Ólafsfirði. Af Grímubrekkum er komið niður neðan við miðja sveit Ólafsfjarðar. Sími lá yfir Grímubrekkur og átti því ekki að vera mjög vandratað, en í dimmviðri gat þó út af borið og vara- samt ef svo hefði farið. Nú var farið að snjóa dálítið og svo blindað, að lítið sá framundan. Kom svo að vegamótunum, og kvaddi ég þá Hallgrím og þakkaði samfylgdina. En þá skeði það, sem mér hafði orðið verst við á æfinni til þess tíma. Félagi minn réttir mér hendina til kveðju og segist ætla áð verða Hallgrími samferða. Ég lét mér þó hvergi bregða og kvaddi hann virðulega, en þóttist sjá að þeir hefðu svo um samið á bak við mig í öruggri vissu um það, að ég yrði þá með, en of mikið sárnaði mér við förunaut minn til þess, að slíkt hvarflaði að mér. I.agði ég svo ótrauður á brekkuna. Þó hafði ég ekki gengið nema skamman spöl, þegar ég heyri dimma rödd Hall- gríms neðan að: „Bíddu! við ætlum að koma með þér“. í hreinskilni sagt, þá létti mér all-verulega, því ekki var ég með öllu laus við beyg undir niðri, af því að leggja þarna einn út í fullkomna óvissu um allt framundan. Þegar nokkuð kom upp í brekkuna, tók snjór mjög að dýpka, svo að versta færi gat talizt og bratti of mikill til þess að gengt væri á skíðum nema sumt af leiðinni. Þó var sæmilega fastur snjór undir þeim ný- fallna. A þessari leið sá ég nú þann mesta snjó, er ég hefi augum litið, því þótt veturinn 1910 væri einn mesti snjóavetur er menn þá mundu, varð elcki á mínum vegi önnur eins ógna snjódyngja og þarna; en það hafði ég meðal ahnars til marks um snjódýpið, að símalínan var gerð af venjulegum símastaurum, en ofan á þá á nokkr- um kafla var boltuð alllöng viðbót og á tveim stöðum náði snjórinn upp undir þræðina, svo að mátt hefði stíga yfir þá, hefði snjórinn verið nógu fastur til þess. Marga klukkutíma vorum við að brjótast upp, en úr því gekk ferðin mun hraðar, en ég kærði mig um. Tók nú Hallgrímur við allri stjórn, settist klofvega á staf- inn sinn, sagði okkur að gera það sama og fara í slóð- ina sína, eða sem næst því og hvarf svo eitthvað út í dimmuna, því raunar sáum við alls ekkert framundan. Er svo ekki að orðlengja það, að hér fór ég þá ein- stökustu ferð, sem ég hefi hingað til farið. I nokkrar mínútur að mér fannst, vissi ég hvorki í þennan heim né annan; fann að ég rauk eitthvað út í buskann með ógna hraða og að snjókófið lék um mig eins og í hvass- asta hríðarbyl. Öll sú litla hugsun, sem að komst, beind- ist að því að halda fast um stafinn, húkandi niður á skíðin, reyna að halda jafnvæginu og ná andanum. Inn- an lítillar stundar stöðvuðust skíðin að mestu, en hvar ég var eða hvað skeð hafði, vissi ég naumast fyrst um sinn. Man ég lítið til næstu stunda annað en það, að einhvernveginn náðum við félagar saman heilir á húfi, neðan við bröttustu brekkurnar, í dálítilli dalskoru. I raun og veru hafði hér verið um svo bratta og háa brekku að ræða, að ofætlun var fullgóðum skíðamönn- um að standa hana í góðu skíðafæri á hörðum sjó, hvað þá lítt æfðum, eins og mér, en lausi snjórinn nýfallni, sem víða var klofdjúpur, hafði gert þetta fært. Varð mér nú hugsað til þess, hvað úr mér hefði orð- ið einum á þessu ferðalagi og setti að mér hálfgerðan hroll, því þegar niður kom, vissi ég ekkert hvert halda skyldi, því síininn sást nú ekki, enda farið að skyggja. En hvað um það; nú hafði ég Hallgrím að förunaut og kunnugleiki hans og forsjá komu okku í öruggt húsaskjól fyrir nóttina. Þegar ég ákvað að fara Grímubrekkur, var að sjálf- sögðu ætlunin að fara Ólafsfjarðarskarð til Fljóta, sem er langsamlega stytzta leiðin, ef fara á neðan til í Fljót- in, en að tilmælum Hallgríms, sem mér fannst nú mak- legt að taka til greina, breytti ég áætlun og fór með honum um Lágheiði í Stíflu og niður öll Fljót, enda þótt það tefði mig minnst um einn dag, miðað við

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.