Heima er bezt - 01.07.1956, Qupperneq 32

Heima er bezt - 01.07.1956, Qupperneq 32
260 Heima Nr. 7-8 --------------------------------er bezt---------------------------- þeir, sem ynnu fyrri hálfleik, væru í meiri hættu en hinir, tíðkazt í fáeinum, gömlum spilum. Stúlkan sagði: „Við skulum láta þá, sem unnið hafa fyrra hluta, vera í aukinni hættu, en hækka um leið vinning þeirra fyrir slemmur.“ Þau reyndu þetta, og það gafst vel. Og upp af þess- um hrærigraut úr plafond, aktions-bridge, slemmum, hættusvæði og hugkvæmni Vanderbilts spratt svo vin- sælasti og skemmtilegasti leikurinn, sem nokkru sinni hefir verið háður í víðlendu ríki spilanna. Skömmu síðar spurði ég Mike Vanderbilt, sem gerzt hafði brautryðjandi kontrakt-bridgsins: „Hvað hét hún, þessi fallega kona, sem fyrst átti hugmyndina að honum?“ Hann hugsaði sig lengi um og svaraði svo: „Það man ég ekki.“ Og nú veit enginn, hver hún var. • -----o----- Við undrumst yfirlætisleysi fornra höfunda, er ekki létu nafns sín getið á handritum íslendingasagnanna. Of vægt er að orði kveðið, að við undrumst þau ósköp, er íslendingum tókst að týna sjálfu Lögbergi, og að því er virðist á fáum áratugum. En er þó hitt ekki miklu furðulegra, að í auglýsingaskrumi og metorða- vafstri tuttugustu aldarinnar skuli höfundurinn að vin- sælasta leik veraldar hjúpa sig viljandi og vafalaust af ráðnum hug blæjum þagnar og gleymsku? Höfunda Islendingasagnanna hefir að öllum líkindum ekki órað fyrir, að nöfn þeirra mundu geymast um óraleiðir sögunnar, ef þeir festu þau á bókfellið. Slíku er hér ekki til að dreifa. Unga stúlkan, er kenndi auðjöfrinum vesturheimska kontrakt-bridginn úti á rniðju Atlanzhafi fyrir 25 árum, er ekki enn meira en miðaldra. Hennar hefir verið leitað logandi ljósum, en árangurslaust. Vafalaust hefir þessi gáfaða kona fljót- lega vitað, þótt ef til vill hafi hana ekki grunað það í fyrstu, hvað beið hennar, ef hún einn góðan veðurdag kæmi fram á sviðið og segði: Sjáið, hér er ég! Nafn hennar yrði á hvers manns vörum. Hún væri aufúsu- gestur í glæstustu sölum, þægi heimboð frá höfuðborg- um og þyrfti aldrei að drepa hendi í kalt vatn. Samt lætur hún ekkert til sín heyra, horfir álengdar á upp- findinguna sína fara sigurför um víða veröld. Ef til vill hnyklar hún brýnnar dreymandi á svip, ef til vill bregður háðbliki úr glampandi augum. En hvað veldur? Virti þessi unga og fagra kona að vettugi auð og frægð? Vissi hún kannske, að gæfan siglir ekki alltaf með stöfuðum seglum yfir steindum borðum? Eða hafði hún eins og íslenzka skáldið fundið, að hvergi er færra „en í hópsins geim né hljótt þar sem glaumur er mestur.“ Eða blundaði kannske í hug hennar óljós uggur um, að fleiri vættir mundu vaka yfir bridge- borðinu en gleðin ein? Engri þessari spurningu verður að líkindum nokkru sinni svarað. Huldumærin í ævin- týri bandaríska auðkýfingsins hvarf jafn sviplega og hún kom eins og álfameyjarnar í íslenzkum þjóðsögn- um inn í órofa bergið. Og hún- eins og þaér skildi gullið sitt eftir í mannheimum. Það var álagagull. Maður er nefndur Tupper Bigelow í Toronto vest- anhafs. Hann hefir tekið sér fyrir hendur að safna skýrslum og heimildum um allt það, er gerist við bridgeborðið, varðar við lög og upp kemst. Þetta safn kvað nú vera orðið geysistórt og ná yfir málaferli og afbrot ótrúlega margvísleg. Algengustu málin eru hjónaskilnaðir. Dómarinn í Montreal kvað upp úr- skurð í einu slíku máli 22. júlí 1949. Maður að nafni Gay hafði sparkað í botninn á konunni sinni, af því að hún tapaði rúbertu á klaufalegri spilamennsku. Þótti frúnni þetta ósanngjörn refsing, kærði og krafðist skilnaðar. Fékk hún hann, og varð dómaranum að orði, er hann kvað upp úrskurðinn: „Einmitt þetta er orsök margra hjónaskilnaða hér í borginni.“ Annar kunnur, bandarískur dómari, Peabody, sagði meðal annars, er hann reifaði hjónaskilnaðarmál fyrir kviðdómendunum: „Maðurinn krefst skilnaðar vegna ósamkomulags, einkum vegna lélegrar spilamennsku og heimskulegrar þrákelkni við bridgeborðið. Ef honum gefst færi á að tvöfalda og ná sér rækilega niðri á andstæðingunum, tekur hún ævinlega sögnina af honum. Eg býst við, að þið, heiðruðu kviðdómendur, séuð mér sammála um, að slíkt er ekki aðeins óhæfileg frekja, heldur með- fædd ástríða til að láta aðra þjást (Sadisme).“ Auðvitað fékk mr. Rawlings skilnað greiðlega og ágreiningslaust. En hverfum frá smámunum eins og hjónaskilnuðum, kjaftshöggum, hnífsstungum, þjófnaði, ránum og of- beldi og svipumst um í salnum, þar sem dauðinn glottir yfir öxlina á spilamanninum. Það er hásumar," 8. júlí 1940. í litlu þorpi, sem Dondo nefnist, á bökkum fljótsins Cuanza í Vestur- Afríku, sátu þrír karlmenn og ein kona að spilum. Allt voru þetta Portugalir, enda landsvæði þetta portu- gölsk nýlenda. Spilafólkið var hjón nokkur að nafni Ferganza og tveir kaupmenn þar á staðnum, Mc Pherson og AIc Tavish. Spiluð var þráseta, og voru hjónin saman. Sat frúin í austur en hr. Ferganza í vest- ur. Mc Pherson var í suður, en Mc Tavish í norður. Voru þeir taldir mun sterkari spilamenn en hjónin. Spilað var geysihátt eða 10 escudos stigið, en það mun svara til 5—6 þús. íslenzkra króna á meðal rúbertu, eða 10—12 þús. kr. á tapaða rúbertu hjá báðum. Þegar komið var að örlagaspili leiksins, höfðu hjónin tapað um 70 þús. króna. Herra Ferganza var orðinn daufur í dálkinn og mun hafa brotið heilann um, hvort andstæðingarnir mundu ganga til samninga um gjald- frest og afbörganir.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.