Heima er bezt - 01.07.1956, Page 43

Heima er bezt - 01.07.1956, Page 43
Nr. 7-8 Heima 271 --------------------------------er bezt----------------------------- Dan stóð upp með skammbyssuna í handi. „Stattu ekki vælandi þarna úti,“ sagði hann við Glenn Griffin. „Ég kem að bakdyrunum.“ Það var ekki óp, sem barst til hans að utan, heldur hlátur, stuttur, hæðnislegur sigurhlátur. „Læstu svefnherbergisdyrunum, Cindý. Ef þú heyrir skotið niðri, skaltu'þrátt fyrir allt hringja. En ef ekk- ert kemur fyrir, skaltu ekki hringja.“ Fyrst bærði Cindý ekki á sér, en þegar Dan gekk niður bakstigann með öryggið á byssunni, heyrði hann, að dyrum svefnherbergisins var lokað og síðan aflæst. Hann geklt eins og í blindni gegnum litlu skonsuna við uppgönguna, nam aðeins andartak staðar til að hlera eftir gnauðinu í vindinum. Svo opnaði hann dyrnar. „Fleygið byssunni fyrst út,“ sagði Glenn Griffin í viðvörunartóni. Dan kastaði skammbyssunni út. Aftur var svo kom- ið, að hann átti ekkert val. Hann heyrði til þeirra, sem aldrei urðu ráðþrota. Hann stóð hræringarlaus og beið þess, er koma skyldi: byssukúlu, höggs mann- anna eða þá drengsins hans. Glenn kom fyrst út úr myrkrinu. Síðan kom Ralphie. Dan fann hönd drengsins í handlegg sér, heyrði niður- bælt kjökrið, um leið og drengurinn hallaði sér upp að honum. „Farðu upp, góði,“ sagði Dan. Drengurinn hlýddi fljótt og hljóp berfættur upp stigann, og Dan heyrði, er þær mæðgur tóku á móti honum. Nú stóð Glenn fyrir framan hann, hár vexti og mikilúðlegur, eins og ógreinilegur, flöktandi skuggi. Að baki Glenns grillti í Hank Griffin, undarlega stirð- legan og pervisinn að sjá. „Við náðum Robish líka,“ sagði Glenn Griffin, um leið og hann ýtti Dan inn í búrskonsuna. „Ég varð að kæla hann dálítið, Hilliard, til þess að koma honum í skilning um, hver hér ræður húsum.“ Maðurinn talaði kuldalega og án ástríðuhita. Það var ef til vill þessi skortur á æsingu, sem olli því, að Dan var orðinn rólegri, er hann hlaut höggið. Þetta var hið versta högg, og var greitt að ofan, um leið og hlaup skammbyssunnar kom við enni honum rétt við hársræturnar. Hann féll. Þetta var fyrsta höggið. Hann hafði enga hugmynd um, hve lengi þetta stóð yfir. Hann vaknaði í rúmi sínu í svefnherberginu og sá ekkert fyrir myrkri. Hann hreyfði sig og stundi við og heyrði stunur sínar eins og úr fjarlægð. Svo fann hann, að lófi Elenóru lagðist að munni honum, þýðlega og svalandi. Hann reyndi að setjast upp, en hún hélt aftur af honum. „Dan,“ hvíslaði hún, „Dan, vertu ekki að reyna á þig með að tala eða hreyfa þig. Dan, viltu gera fyrir mig það, sem ég segi þét, góði?“ Hún fann, að hann kinkaði kolli. Myrkrið var aftur að þéttast, ekki myrkrið í herberginu, sem olli því, að gluggaumgjörðirnar sáust ógreinilega, heldur rnyrkr- ið, sem áður hafði gleypt hann, er hann lá meðvitundar- laus og án sársauka. „Dan, ég gaf þér nokkrar svefntöflur Það fer bráð- um að elda aftur. Ef þú getur skilið það, sem ég segi, hlustaðu þá á mig.“ „Ralphie?“ „Honum líður vel, Dan. Hann sefur.“ „Og.... þeir, þeir þessir....?“ „Þeir eru hér enn. Cindý er inni hjá Ralphie, og einn þeirra er í svefnherbergi hennar hérna uppi. Hinir tveir eru niðri. Hlustaðu á mig, Dan. Ég hefi verið að hugsa málið í alla nótt. Þér varð á heimskuleg og hræðileg skyssa, en dásamleg, og ég elska þig. Nei, þetta var nú ekki það, sem ég ætláði mér að segja. Getur þú heyrt, hvað ég segi, góði? Ég vil gjarna taka það fram, að þú mátt aldrei gera neitt svipað aftur. Þú mátt ekki reyna að endurtaka þessa tilraun. Þeir hefðu getað drepið þig, Dan. Og þeir hefðu drepið þig í nótt, Dan, ef þeir hefðu elcki þurft að hafa gagn af þér. Heyrirðu til mín, Dan? Það er mikilvægt. Þú getur ekki frelsað okkur, ef þú deyrð. Við björgumst ekki, ef þú deyrð. Getur þú skilið það? Þú verður að skilja það, Dan. Getur þú það ekki? Ef þú gerir þér þetta ekki ljóst, mun eitthvað ógurlegt koma fyrir. Enginn hefur minnsta grun um, hvað hér er að gerast, ekki nokkur sála. Aðeins við, Dan. Ég grátbið þig. Lofaðu mér því, elsku Dan, lofaðu mér, að þú reynir ekkert þessu líkt aftur.“ „Ég lofa því,“ hvíslaði Dan, án þess að vita, hvað það var, sem hann átti að lofa, en sökum hreimsins í rödd hennar varð hann að játa þessu. „Já, góða, ég skil þetta.“ „Þú mátt ekki vera hugdjarfur,“ sagði kona hans, sem nú hafði lagzt við hlið hans. „Við viljum ekki, að þú sért hugdjarfur. Við viljum, að þú sért alheill og hress meðal okkar.“ Dan hafði einhverja óljósa hugmynd um, hvað kona hans var að fara, en gat samt ekki áttað sig á hlutun- um. „Kom þessi stúlka ekki?“ „Hún hringdi," sagði Elenóra blíðlega. „Einkaviðtal við herra James eftir miðnættið. Hún kemur ekki, Dan. Ég veit ekki, hvað það hefir í för með sér. Ég var svo önnum kafin, að ég gat ekki spurt þá. Hún kemur ekki, en þeir verða kyrrir hér. Reyndu nú að sofna aftur. Skurðurinn á enni þínu er ekki djúpur, en þú þarfnast hvíldar. Gerðu nú eins og ég segi þér.“ Hann fann varir hennar, mjúkar og votar, og ást hennar vermdi hann ef til vill meira nú en nokkru sinni áður. Hann fann heitan andardrátt hennar og lófann við kinn sér. Hann sofnaði. Það fór að rigna um hálfsexleytið um morguninn, rétt fyrir aftureldingu. Jessi Webb hafði rétt fest svefn, meðan höfuð hans hvíldi á handleggjunum, en er

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.