Heima er bezt - 01.07.1956, Síða 50

Heima er bezt - 01.07.1956, Síða 50
278 . Heima Nr. 7_8 --------------------------------er bezt---------------------------- Elenóra horfði fast á andlit Glenns, en hann gætti þess að láta ekki sjá, hve óráðinn hann var. „Patterson er áreiðanlega ekki tortrygginn. Hann.... Ja, þér sáuð hann, slíkir menn....“ „Haldið yður saman!“ sagði Glenn og rétti Robish skammbyssuna. „Frú Hilliard, óskið þér eftir, að karl- inn kalli lögregluna hingað inn á flötina. Notið skyn- semi yðar. Hvað getum við annað gert?“ Robish stakk skammbyssunni í vasann á gráa jakk- anum af Dan, er hann var í. Hann gekk í áttina að bakdyrunum. Rödd Glenns stöðvaði hann. „Ef þú kemst í vandræði, skaltu ekki snúa hingað aftur, Ro- bish.“ „Ég? Ég veit ekki hvað það er, að komast í vand- ræði.“ Um leið og Elenóra féll fram á borðið, var hún að hugsa um, að hún hefði aldrei séð Robish svona kátan, upprifinn og æstan, og nú var hann ekkert ægilegur eða.... Um svipað leyti — rétt um klukkan tólf — gekk Dan Hilliard inn í veitingahús eitt, þar sem enginn þekkti hann, spurði eftir sendli, sagði síðan nokkur orð í flýti við miðaldra mann, sem var í hnotubrún- um einkennisbúningi, með messinghnöppum. Maður- inn kinkaði kolli, án þess að láta undrun í ljós, en horfði hvasst á Dan Hillard, er hann fékk honum hvítt umslag og fimm dala seðil. Því næst lagði sendiboðinn af stað, og Dan Hilliard gekk hvatlega út um dymar, út í rigninguna. Tæplega einni mínútu síðar hélt sendill- inn vestur Washingtonstræti í áttina til Alabama, þar sem lögreglustöðin var, gegnt fangelsi Marionumdæm- isins og skrifstofu lögreglunnar. Wallingfjölskyldan var ekki heima, og Patterson kom það raunar ekki á óvart, því að frú Walling var félags- Iynd kona, mynd af henni oft í blöðunum og þar fram eftir gcitum. Patterson gekk því aftur að bíl sínum og steig dálítið stirðlega upp í hann, því að rigningin hafði jafnan slæm áhrif á gigtina. En í þessu kom hann auga á mann, sem sat í bílnum. „Komdu bara inn, lagsi,“ sagði maðurinn. Patter- son sá skammbyssuna og hrakkaði ennið, um leið og hann hlassaði sér niður. „Aktu, en engan asa samt. Aktu austur á bóginn.“ Patterson ræsti bílinn og leit út undan sér á þenn- an beljaka, sem hafði hlassað sér niður við hlið hans. Maðurinn var í fallegum fötum, sem klæddu hann ekki. Patterson þekkti andlit mannsins eftir nokkra umhugsun, og svo varð honum hugsað um bílinn, sem stóð inni í skúr Hilliards, útvarpstilkynningamar og myndirnar í fréttablöðunum. „Hvers vegna var ég að bíða,“ spurði hann sjálfan sig. „Eftir hverju hinkraði ég? Og hvers vegna stanz- aði ég hjá Wallingshúsinu?" „Herra minn trúr,“ sagði hann hátt, „herra minn trúr, vesalings fólkið! “ Maðurinn virtist skemmta sér vel. Hann hló. „Já, hafði ég ekki rétt fyrir mér?“ Patterson hafði gleymt öllu, nema svipnum á frú Hilliard, er hún skrifaði ávísunina fyrir nokkrum mín- útum síðan. Hún sat við eldhúsborðið, en hann beið eins og venjulega í litla ganginum við bakdyrnar. Skammbyssu hafði verið beint að henni úr herberginu við hliðina. Hvers vegna hafði hann ekki getið sér þess til? Hvers vegna hafði hann verið svona seinn að hugsa? Ef hann hefði farið rakleiðis inn í einhverja verzl- un og hringt til Jessa Webb, hefði hann ef til vill getað orðið þeim að liði. Patterson hafði einmitt hripað niður númerið á bílnum, og nú var þessi lappi í vasa hans. Hann ætlaði að spyrja Jessa Webb um númerið, því að hann hlaut að þekkja gamla Patterson, þar eð hann hafði hér fyrrum oft tekið í spil með föður hans. Og þar sem Jessi var nú lögreglustjóri, hlaut hann að eiga að taka við þessum upplýsingum, og ef þær reyndust einskis virði, nú, já, þá var engu spillt, hann mundi aðeins verða talinn dálítið sérlund- aður og tortrygginn karlbjálfi. En hér hafði honum ekki skjöplazt. Og hann hafði ekkert gert! Og ef eitthvað illt kæmi nú fyrir þetta fólk, mundi hann aldrei geta fyrirgefið sér glópskuna. Nú fyrst var honum ljóst, að mistökin mundu brátt koma honum sjálfum í koll. Andardráttur hans varð örari og óreglulegur, og liðagigtarþrautirnar heltóku hægra hnéð. Petterson heyrði einhvert kynjahljóð í bílnum, þrátt fyrir stormgnauðið á rúðunni: karlinn við hlið hans raulaði dægurlag, og gleðin og eftir- væntingin leyndi sér ekki. Patterson gat getið sér til, af hverju þessi æsing mannsins stafaði. Hann fylltist ekki hryllingi. Hann var ekki skelk- aður. Hann hugsaði málin í kyrrþey og réð ráðum sínum. Þeir voru nú komnir austur úr bænum, ut a þjóð- veginn. Með vinstri olnboga þrýsti hann með stökustu gætni dyrahandfanginu niður. Hann reyndi að gera sér tímann í hugarlund, fór hann að tala hátt, um leið og smellurinn heyrðist: „Ég sver það við guð almátt- ugan, að ég skal ekki segja aukatekið orð! Ég er gam- all maður. Ég hef ekki gert yður neitt.“ Þá hló maðurinn við hlið hans. „Hvers vegna fellur þú ekki á kné og biður, lagsi?“ Nú voru dyrnar opnar. Uti fyrir sá hann tvær bláar bensíndælur alveg við veginn. Þar var einnig afgreiðslu- skúr úr tré. Hann mældi fjarlægðina sem gerzt og reyndi að draga andann hægar en hann langaði til. (Framhald.)

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.