Heima er bezt - 01.07.1956, Side 52

Heima er bezt - 01.07.1956, Side 52
55) Nú er tekið að kvölda, og dimmir óðum. Allt í einu sé ég tveimur skugga- verum bregða fyrir all-langt framundan mér á veginum. En þrátt fyrir myrkrið þvkist ég þekk ja, að annar þessara skugga sé Jónas. 56) Til vonar og vara bregð ég mér á bak við stórt tré. Mig langar sem sé ekk- ert sérstaklega til að hitta Jónas. Aíeð honum er annar piltur, nokkru eldri. Þeir tala saman nteð mesta ákafa, og er þeir nálgast tréð, þar sem ég hef falið mig, nema þeir staðar. 57) Ég heyri, að sá eldri, sem nefnist Sexteinn, er að reyna að telja um fyrir Jónasi og reyna að fá hann til að taka Jtátt í einskonar brögðum eða strákapör- um. En mér er ekki fyllilega ljóst, hvað hann á við, en skilst þó, að þeir eru að tala um að „næla í kort verkfræðingsins." 58) Þegar félagarnir báðir eru farnir, flýti ég mér aftur fram á veginn og hleyp heimleiðis. Ég verð að játa, að sam- tal Jónasar og Sexteins veldur mér dá- litlum kvíða og ótta. 59) Þegar ég kem loks heim er komið miðnætti. Móðir mín yfirheyrir mig með ótal spurningum, en það er alveg árangurslaust að reyna að skýra frá því, hvers vegna ég hafi verið svona lengi. 60) Ekki er mér samt trúað, fyrr en ég dreg upp 500 króna seðilinn, sem skip- stjórinn gaf mér. Hrifsar hún þegar seðilinn af mér og stingur honum á sig. „Farðu nú strax að hátta!“ 61) Uppi á lofti rekst ég á Stínu. Ég segi henni, um hvað Jónas hafi verið að spjalla við félaga sinn, og spyr hana hvað henni virðist ég eigi að gera. Ætti ég ekki helzt að aðvara Jónas? Og hver er annars þessi náungi, Sexteinn? 62) Stína segir mér allt, sem hún veit um Sextein. Hann sé náungi, sem lent hafi á glapstigum og reyni nú að ginna strákana í nágrenninu til allskonar ó- knytta og strákapara. Réttast væri að aðvara Jónas, því Sexteinn væri eflaust að ginna hann til einhverra óknytta. 63) Daginn eftir heyri ég póstmanninn segja frá innbroti hjá Wadmann verk- fræðingi, og að þjófarnir hafi stolið nokkrum verðmætum teikningum. Eg stend sem steini lostinn af ótta og skelf- ingu. Nú er of seint að aðvara Jónas! Hvað á ég nú að taka til bragðs?

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.