Heima er bezt - 01.01.1960, Síða 24

Heima er bezt - 01.01.1960, Síða 24
þvottaborðið og stendur svo teinréttur með hendur fyrir aftan bak. Þjónustustúlka kemur inn með fötu og skrúbb. Hún fer að spyrja hann um Island og hann svarar á bjagaðri dönsku: Vi har háa fjalla, og stóra fossa. Hann setur húfuna upp og flýtir sér burt. Stúlkan horfir á eftir honum og segir við sjálfa sig: „Sikken en idiot! “ Stúdentinn lék Sveinn Björnsson, forseti Islands, og stúlkuna Elín Matthíasdóttir. I þriðja þætti tala tveir saman. Annar segist hafa far- ið til Finns Jónssonar og beðið hann að ráðleggja sér. Finnur hafi aðeins sagt: „Det er ikke værd at male fanden pá væggen för end det er nödvendigt.“ Stúdentarnir sögðu einatt, að það væri eina ráðlegg- ingin, sem Finnur gæfi. Valtýr Guðmundsson hafði farið til Ameríku og fengið svartan blett á frakkann sinn, og gekk stöðugt með blettinn. Þeir notuðu það tilefni til að segja, að Valtýr væri flekkóttur, en áttu við, að hann væri flekk- óttur í stjórnmálunum. I fjórða þætti er drukkinn stúdent, sem segist vera glorhungraður og ætla til frú Dahlman að fá sér eitt- hvað að borða. „Þú færð ekki inngöngu hjá henni,“ segja félagar hans, „úr því þú ert fullur. Hann segist skuli sýna þeim, að kerlingarskrattinn þori ekki annað. Hann bankar uppá. Þá kem ég út, leikin af Þóru Matthías- dóttur, með stóra hvíta svuntu og segi: „Eg tek ekki móti fullu fólki.“ Það átti að sýna hvað ég talaði lélega íslenzku. Valtýr Guðmundsson var formaður Islendingafélags- ins um skeið, en á seinasta tug aldarinnar var Steingrím- ur Jónsson frá Gautlöndum formaður nokkur ár. Hann tók upp þá nýlundu, að fá stundum danska skemmti- krafta á landamót, en áður höfðu aðeins íslendingar skemmt. Eftir að Steingrímur fór heim, tók Finnur prófessor Jónsson við stjórninni og stýrði af mikilli röggsemi. í stjórnartíð hans var haldin mikil samkunda árið 1900 í minningu 350 ára ártíðar Jóns Arasonar. Maðurinn minn hafði tekið töluverðan þátt í undirbúningi hófs- ins, því að hann hafði skorið út 50 fálka, málað þá og bundið við þá slaufur með íslenzku fánalitunum. Þetta skyldi nota við kottillion-dans, en það mun hafa verið í fyrsta og síðasta skipti, sem hann var dansaður á landamóti. Slaufunum var stungið í púða, sem hann hafði málað Fjallkonuna á. Þetta var mikil vinna, en setti sinn svip á samkomuna, enda þakkaði Sigurður Eggerz honum í ræðu. Aðgangur að hófinu var 5 krónur, og á borðum var lambasteik og ís, en vín urðu menn að kaupa sjálfir. Finnur flutti aðalræðu kvöldsins um Jón Arason, fróð- legt og skemmtilegt erindi. Stúdentar sungu ýmis lög, ■svo sem, „Hvað er svo glatt“ og „Ólafur reið með björgum fram'1, og stýrði Sigfús Blöndal söngnum. Að lokum var svo dansað, og stjórnaði Jón Þorkelsson dansinum, en á honum var einna mestur glæsibragur þeirra stúdenta, sem þá voru í Höfn. M. a. voru dans- aðir hringdansar, svo sem „Vefa vaðmál“. Allt hófið fór hið bezta fram. Mannsefnið mitt sá ég fyrst í draumi. Mig dreymdi, að ég væri stödd í skemmtigarðinum Tivolí. Þá kemur til mín ungur maður, heilsar mér og segir: „Það þarf ekki að kynna okkur frk. Dahlman, við höfum sézt áður. Þegar ég var seinna í Stokkhólmi með frú Hannover, fór ég og vinkona mín oft á veitingastað og hlustuðum á músik seinni hluta dags. Þar hittum við einu sinni tvo Dani, sem heilsuðu okkur, af því þeir heyrðu að við töluðum dönsku. Mér fannst ég kannast við annan þeirra. Hann hét Valdemar Andersen og lærði til sára- læknis í Svíþjóð. Það var nokkurs konar handiðn og tók námið fimm ár. Ári síðar var ég stödd í Tivolí, þegar þessi ungi maður kemur til mín og segir sömu orðin og í draumn- um. Hann var þá í sumarleyfi og átti eftir eitt ár af námstíma sínum. Þetta haust var það numið úr lögum að menn gerð- ust sáralæknar, en þeir, sem þegar voru það, máttu halda áfram starfi sínu. Hann kom þá til Hafnar og byrjaði að mála. Hann leitaði mig uppi og gerðist kost- gangari hjá mér, það var tveimur árum eftir að ég hóf matsölu. Hjá mér kynntust þeir Einar Jónsson mynd- höggvari og urðu vinir. Vegna áhrifa frá Einari, hætti hann námi í listaháskólanum, þar sem engum var leyft að fylgja sínum eigin hugmyndum. Hann fór þá til manns, sem hafði skóla fyrir nokkra málara. Myndir hans seldust vel og hann þótti efnilegur. Um þetta leyti vann hann einnig 4000 krónur í happdrætti og við gát- um gift okkur. Brúðkaupið fór fram 25. nóvember 1898. Finnur Jónsson var svaramaður minn og 60 manns voru í veizlunni. Eg hafði tekið mér nafnið Dahlman, þegar ég fór burt af Islandi. Forfaðir minn norskur, með því nafni, hafði setzt að í Reykjavík. Erlendur, bróðir minn, hafði tekið sér þetta nafn, þegar hann kom til Ameríku, og óskaði þess, að við systkinin, sem færum úr landi, tækj- um það upp. Alaðu rinn minn átti alnafna, sem einnig var málari og var oft villzt á myndum þeirra. Ég stakk upp á því við hann að bæta mínu nafni aftan við hans og gerði hann það. Björn Sigurðsson kaupmaður bað manninn minn að mála tvær altaristöflur í kirkjur á íslandi. Önnur er í Höfðakirkju í Höfðahverfi, hin einhvers staðar á Vest- urlandi. Auk þess málaði hann altaristöflu, sem fór til Jótlands. Eftir það var hann beðinn um að mála altaris- töflur hvaðanæva, t. d. frá Færeyjum, Islandi og ís- lenzkri nýlendu í Ameríku. Aður en hann gæti orðið við því, varð hann fyrir slysi. Það var ekið yfir hann og þrír fingur hægri handar urðu máttlausir. Eftir það gat hann ekki haldið á pensli, aðeins málað lítillega með krítarlitum. Framhald 20 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.