Heima er bezt - 01.01.1960, Page 33
komnir á móts við fjárhúsin. Atli nemur skyndilega
staðar og segir:
— Það er vafalaust eitthvað af Austurhlíðarhyskinu,
sem er með þennan hljóðagang. Ég fer ekki lengra.
— Ferðu ekki lengra? Finnst þér ekki sjálfsagt að
hjálpa, hver sem í hlut á?
— Nei, nágrannahyskinu hjálpa ég aldrei.
— Ekki þótt það væri statt í lífsháska?
— Alveg sama.
— Hingað til hef ég ekki álitið þig ódreng, pabbi.
Rödd Jónatans er bæði sár og þung. — Þú ræður, hvað
þú gerir, en ég fer og reyni að hjálpa ef ég get. Jónat-
an heldur áfram heim að fjárhúsunum. Atli fylgir hon-
um eftir eins og í leiðslu.
Þeir nema staðar á fjárhúshlaðinu í Austurhlíð. Fyrir
fótum þeirra liggur Jón bóndi. Hann hefur auðsjáan-
lega orðið fyrir alvarlegu slysi og getur enga björg sér
veitt. Jónatan lýtur niður að Jóni og spyr, hvað fyrir
hann hafi komið.
— Ég rann til á hálkunni og fauk um koll og get nú
í hvorugan fótinn staðið.
— Þá er fyrst að bera þig til bæjar, segir Jónatan.
— Ætlar þú að gera það miskunnarverk á mér, Jónat-
an Atlason?
— Já, við erum hér báðir feðgarnir, eins og þú sérð.
— Og Atli líka? Jón gefur frá sér hátt sársaukahljóð.
Jónatan snýr sér að föður sínum og segir ákveðinn:
Framhald á bls. 34.
URSLITIN
í barnagetrauninni
Jæja, krakkar mínir. Þá er nú þessari skemmtilegu
réttritunarþraut lokið, og er auðséð að þið hafið
haft gaman af henni, því að þátttaka var geysimikil.
Eins og þið vitið, gerði prentvillupúkinn okkur
smáglennu í orðinu hvatskeytlegur, en þó voru
mörg ykkar svo snúin að sjá við honum. Vegna
þeirra, sem ekki vöruðu sig á honum, var þessu
orði kippt út úr getrauninni, og hafði það því engin
áhrif á úrslitin. Nöfn þeirra, sem hlutskörpust urðu,
þegar dregið var úr réttum ráðningum, eru:
(SHEAFFER’S „CRAFTSMAN“ pennasett), og
Vignir Ámason, Goðabraut 3, Dalvík, sem hlaut
3. verðlaun (SHEAFFER’S „LINELINE" penna
Auk þess vom dregin út nöfn 50 annarra þátttak-
enda í þessari getraun, og fengu þeir lánsömu senda
jólapakka með S. I. B. S. leikföngunum skemmti-
legu, sem sagt var frá í desemberheftinu.
Orðin í réttritunarþrautinni, sem þið glímduð við,
eru svona rétt rituð og prentvillupúkalaus: Pat-
reksfjörður, Keflavík, söngvari, leyfisleysi, hvat-
skeytlegur, aðfangadagur, afbrýði, ábrystir, kvendi,
punktur, snoppungur, skatthol, buxnavasi, Skjálf-
andafljót, veizlumatur.
Vilborg Njálsdóttir, Sandi, Aðaldal, S.-Þing.,
sem hlaut 1. vcrðlaun (SHEAFFER’S „ADMIR-
AL“ pennasett), Jónas Þór Jóhannsson, Breiða-
vaði, pr. Egilsstaði, sem hlaut 2. verðlaun
Heimt er bezt 29