Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 6
Ragna Sigurðardóttir 1939. minnar, sama hver í hlut átti og þó um bráðókunnugt fólk væri að ræða. — F.n segðu mér eitthvað frá vkkur krökkunum. Það hafa væntanlega verið fleiri börn á staðnum en þið svstkinin fjögur? — Já, við höfum verið svona fimmtán að vetrinum og fleiri á sumrin. Yið höfðum alltaf fastan heimilis- kennara á veturna, þessi krakkahópur, en á sumrin und- um við okkur oft langtímum saman fvrir ofan Prests- sctrið. Þar áttum við miklar bvggingar og rákum stórbú. — Yar prestur á staðnum um þetta leyti? — Nci, þetta var örnefni, líkt og Gvendarskál. — Helga svstir þín, þáverandi skólastjóri Húsmæðra- kcnnaraskóla íslands, sagði mér eitt sinn frá því er hún stóð upp á hundaþúfu norður á Hólum, lítil hnáta, og hélt fvrirlestur um bakstur á drullukökum vfir hinum krökkunum. F.f til vill hcfur þessi fvrirlestur verið hald- inn þarna hjá Prestssetrinu? — Það cr mjíig sennilegt. \ ið vorum alltaf að svsla við að búa til mat uppi í búi undir stjórn Helgu svstur. — Fr þctta ekki furðulegt? Þið hafið greinilega haft kiillun til vissra starfa þcgar í bernsku, svsturnar. Hvcrnig var þcssu varið mcð bræður þína? — Ja, Páll bróðir minn var strax alvcg galinn í hest- um. Þegar við fóruni í hcstalciki þá var það hann sem réði, annað kom ekki til greina. Og það var eitt, sem var afar skrýtið við Palla, hann lærði að reikna með því að setja tölurnar í samband við götin á skeifunum. — Hann hefur þá hugsað sem svo, að einn gangur væri fjórum sinnum sex. — Einmitt. F.ru ekki alltaf sex göt á skeifunum? Það var Lilja Sigurðardóttir, frá Víðivöllum í Skagafirði, sem varð fvrst til að taka eftir þessu. Hún var þá heim- iliskennari hjá okkur og mikið var henni skemmt þegar hún uppgötvaði það einn daginn, að Palli gat ekki reikn- að nema í skeifum. Hún hló og hló. — Ekki hefur hana þá geta grunað, að þessi ungi nemandi hennar ætti eftir að verða einhver þekktasti hestamaður landsins. — Það er fráleitt. En Lilja var stórmerk kona og góð. Hún er látin fvrir nokkrum árum. — En hvað segir þú um Ingimar, var líka hægt að sjá hvað í honum bjó, þegar hann var barn? Hann hefur ekki verið að leika sér að fíflum og sólevjum öðru frem- ur? — Þá má vel vera, þó ég minnist þess nú ekki í svip- inn. Hann tók að vísu rækilega heima í blómagarðin- um einu sinni, því hann var nærri druknaður í brunni sem þar var. Ég glevmi því aldrei þegar stúlkur komu með Ingimar meðvitundarlausan inn til móður minnar. Síðan hef ég verið svo vatnshrædd, að ég hef aldrei þorð að vaða dvpra en upp í mitti. Og ég hef aldrei getað lært að svnda. — Yonandi kemur það ekki að sök, þú ættir að geta komist til Kanaríevja fvrir því. En segðu mér eitt, voru ekki einhverjar skemmtanir í sambandi við Bændaskól- ann á Hólum? — Það var til að mvnda dansað um hverja helgi úti í leikfimisalnum, sem var í sérstöku húsi. Við fengum leyfi til að fara á þessi helgarböll, svsturnar, þegar við vorum farnar að vaxa úr grasi. Það var alltaf skortur á kvenfólki í dansinum. — Og þeir hafa boðið vkkur upp, piltarnir, þótt þið væruð ekki háar í loftinu? — Já, já, okkur þótti þetta lifandis ósköp gaman. Mér er þó minnisstætt eitt laugardagskvöld, ætli ég hafi ekki verið á níunda árinu. Ég hafði setið lengi úti í húsi og vcrmt bekkina, en aldrei kom ncinn til þess að bjóða mér upp. Helga svstir var á gólfinu, en hún var líka tveimur árum eldri en ég. Loks þoldi ég ekki mátið, hljóp sem fætur toguðu inn í hús til mömmu og hróp- aði, öskrandi af reiði: „Þeir vilja ekki dansa við mig helvítis strákarnir“. Móðir mín horfði á mig litla stund, steinþegjandi og undrandi á svipinn. Þetta var í fvrsta sinn, sem hún hevrði blótsyrði af mínum vörum. Nú, svo var það Þorrablótið, þá var nii aldeilis líf í tuskunum. Það kvöld var fjölmennt heim til Hóla, fólk kom frá bæjunum í dalnum og víðar að, jafnvel frá Sauðárkróki og utan úr Fljótum. Gleðin byrjaði alltaf klukkan níu að kvöldi. Það voru haldnar stuttar ræð- ur, lesið upp, leikið og sungið. Svo var dansað til klukk- an tíu að morgni og spilað á tvær harmoníkur allan tímann. 186 //cima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.