Heima er bezt - 01.10.1983, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.10.1983, Qupperneq 9
„Ásbyrgi er dýrlegasta sönghöll í heimi" sagði dr. Páll ísólfsson. Björg færðist öll í aukana á þessum helgistað, fór með kveð- skap og benti mér á andlitið sem liggur á klettabrúninni, til vinstri á myndinni. Mynd: ó.h.t. voru gerð heyrinkunnug, og þá varð þessu nú ekki lengur leynt hér í sveitinni, þvi fólkið heyrði símtalið! Rétt fyrir jólin fékk ég svo bréf frá Páli ísólfssyni þar sem hann tilkynnti mér sigurinn formlega. Daginn eftir að ég fékk þá tilkynningu spilaði ég við jarðarför, það var systir mín sem var jörðuð. Svona getur þetta stundum verið, ólík atvik sem liggja saman... En þannig hefur mér nú verið farið, að mér hefur ekki þótt neitt verra að vera við hljóð- færið, þótt einhverjir mér nákomnir væru jarðaðir. Bara betra að hafa eitthvað við að vera. Skemmtilegast er hygg ég að spila á jólum, páskum og hvítasunnu. Yfirleitt ræður presturinn sálmunum, en ég get borið fram mínar óskir og hafa þær yfirleitt verið vel teknar til greina. Síðan námskeiðin hófust hef ég fengið svo mikil ljósrit af ýmsum fallegum verkum. Fyrir jólin í fyrra höfð- um við í fyrsta skipti aðventukvöld í Garðskirkju. Þar skiptist á orgelleikur, söngur og upplestur. í lokin sungum við Heims um ból, og þá var slökkt á rafljósunum og bara höfð kertaljós. Hver maður hélt á sínu kerti. Ég ferðast alltaf talsvert, en ek ekki bíl sjálf. Ég er t.d. sótt þegar halda skal æfingar í kórnum. Ég er nú orðin sjötug og held ég læri ekki á bíl héðan af. Ekki held ég þó, að aldur- inn sé farinn að há mér. Og svo lengi lærir sem lifir, það finn ég á orgelleiknum, hann er alltaf einhverjum breyt- ingum undirorpinn eftir því sem tíminn líður. Eg hef aðeins brugðið því fyrir mig að semja tónlist. Bæði eru það sálmalög og annars konar lög. Eitt þeirra var flutt á skemmtikvöldi í Aratungu í tengslum við námskeiðið í sumar. Lagið er við gamalt vers, en höfundur þess texta er mér algerlega ókunnur. Versið kemur fyrir í sögunni „Fífukveikur“ eftir Guðmund á Sandi. Þar er sagt frá 10 ára stúlku, sem var einangruð í 9 eða 10 vikur í Keflavík hjá Gjögri. Faðir hennar var dáinn í framhýsi og þegar menn komu að bænum fenntum fannst stúlkan þarna inni. Hún var að prjóna og hafði yfir þetta vers: Maríusonur, mér er kalt, mjöll af skjánum taktu. Yfir mér alltaf vaktu. Lánið bœði og lífið er valt, Ijós og myrkur vega salt. 1 lágu koti á Ijóstýrunni haltu. Þetta var víst sannsögulegt atvik, því það er sagt frá því í annálum. Sagan er í 3. bindinu í ritsafni Guðmundar. Og Heimaerbezt 317

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.