Heima er bezt - 01.10.1983, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.10.1983, Blaðsíða 14
 JÓNA GUÐRÚN VILHJÁLMSDÓTTIR: Sönn lífsreynslusaga i agurt haustkvöld, ung kona situr við opinn glugga og starir út á hafið, merlað af sindrandi perlum kvöldsól- arinnar. Hún strýkur ljósa lokka frá enninu sem svalur haustblærinn gældi við, henni var hrollkalt, hún hnýtti fastar að sér ullarhyrnuna er hún hafði um herðarnar. Hún sat sem í leiðslu, andlit hennar fölt og tekið, litlir tærir dropar læddust í leyfisleysi niður vanga hennar. hún lét þá eiga sig, það sá þá enginn. Ó, hve hún var einmana, dagamir langir og svefn- lausar nætur, þung stuna leið frá hjarta hennar út í víðáttuna, hún átti bágt þessi unga kona og fáir skildu raunir hennar en hún átti fögur ijós sem lýstu gegnum einmanaleikann. Börnin hennar þrjú, sem öll voru í bernsku. Það sem skyggði á var að maður hennar var drykkfelldur og sjaldan heima, en litlu sólargeislarnir hennar voru of ung til að skilja hvað elsku mamma átti bágt. Hún grét í hljóði, þá fékk hún útrás, hún var farin á taugum. Hún hrökk upp við minnsta hljóð er barst að eyrum hennar, hún skelfdist er aldan þeytti drifhvítu löðrinu upp að ströndinni. Stormur- inn ógnaði henni er hann þeytti lúður sinn. Nú átti hún fyrir höndum eina 322 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.