Heima er bezt - 01.10.1983, Blaðsíða 30
Nemendur á unglingaskóla í Hlíðarhúsi 1935 ásamt kennara sínum Sigurði J. Gíslasyni. Húsið var vígt 1926 og átti mikinn þátt í öllu
félagsstarfi í Óslandshlíð. Þar starfaði skóli um 40 ára skeið. Þetta félagsheimili Geisla á Marbœlismelum stendur enn og er vel við
haldið.
RÖGNVALDUR MÖLLER
Ungmennafélagið Geisli
85 ára
HORFT TIL BAKA í SKAGAFIRÐI
✓
Oslandshlíð er lítið, en nokkuð þéttbýlt byggðarlag, innarlega við austanverðan
Skagafjörð, við rœtur hinna tignarlegu fjalla Tröllaskaga. Lítið er um stórbýli
í Oslandshlíð, en mörgum hefur búnast þar vel, og ég held, að um sára fátœkt
hafi ekki verið að ræða þar. Þarna bjó fólk, sem lifði af sínu, og reyndi að
fylgjast með því, sem gerðist í umheiminum, og auka þekkingu sína eftir því
sem unnt var. An efa hefur Bændaskólinn á Hólum haft veruleg áhrifá menningarlíf
þarna, og enginn vafi er á því, að íbúar Oslandshlíðar voru opnir fyrir menn-
ingarstraumum.
334 Heima er bezt