Heima er bezt - 01.10.1983, Page 27
í Lóni í Kelduhverfi, N-Þingeyjarsýslu, er
langstærsta fiskeldisstöð á íslandi, tilrauna
eldisstöð ISNO hf. Eigendur hennar eru íslenska
hlutafélagið Tungulax hf. og norska laxeldis-
fyrirtækið MOWI.
Á árinu 1983 var slátrað þarna um 25 tonnum
af eldislaxi, sem er yfirleitt um 1-2 kg að þyngd.
Á árinu 1984 er áætlað að slátra um 50 þúsund
löxum og öðru eins 1985. Til samanburðar má
benda á, að heildarstangveiðin og netaveiðin
úr öllum ám og vötnum á íslandi 1983 var um
59 þúsund laxar.
í Lóni fóru fram umfangsmiklar athuganir á laxeldisaðstöðu árin
1976-80 á vegum Fiskifélags íslands. Voru þar Ingimar Jó-
hannsson og Björn Jóhannesson fremstir í flokki. Fiskifélagið
annast einkum kannanir á fiski í sjó, en Lón er í flokki nokkurra
sérstæðra vatna, þar sem saman blandast ferskvatn og sjór.
Sjórinn er eðlisþyngri en jafnframt hlýrri. Hann liggur því undir
ferskvatnslaginu og eru skilin oft býsna skörp, yfirleitt á um 3
m dýpi. Hitinn í Lóninu er mestur á sumrin á 3-5 m dýpi, 12°-16°,
en þá er yfirborðslagið um 8°-9°.
Ferskvatnið kemur einkum úr volgrum og köldum lindum.
Sums staðar leggur Lónið aldrei og þar eru nú gerðar tilraunir
með að ala seiði, sem þangað voru látin á kviðpokastigi. Inn-
streymi sjávar er breytilegt eftir sjávarföllum og einnig dýpt og
stöðu óssins. Mikil blöndun sjávar og ferskvatns getur skapað
hættu, því hitastigið lækkar. Önnur vandamál gætu verið súr-
efnisskortur og fleiri erfiðleikar vegna úrgangs sem til fellur.
100
þúsund
gripir
w
a
gjöf
Myndir ogtexti:
ÓlafurH. Torfason
Heima er bezt 331